Skipulags- og umhverfisnefnd - 193Skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu erindisins vegna forfalla skipulags- og byggingarfulltrúa og þar sem ekki náðist að afla fullnægjandi upplýsinga um atriði sem fram koma í umsögn Skipulagsstofnunar um tillöguna.Bókun fundarTil máls tóku JÓK og UÞS.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
Tillaga um breytingu á deiliskipulagi fyrir Háls var auglýst þann 2. júní og var frestur til að gera athugasemdir til 16. júlí sl. Engar athugasemdir bárust.Skipulags- og umhverfisnefnd - 193Þar sem engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma er skipulags- og byggingarfulltrúa falið skv. 2. mgr. í gr. 5.7.1 í skipulagsreglugerð að senda breytingu á deiliskipulagi fyrir Háls til athugunar hjá Skipulagsstofnun.Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
Tillaga að byggingum á lóðunum Grundargötu 82 og Grundargötu 90 hafa verið grenndarkynntar. Alls bárust 3 athugasemdir.Skipulags- og umhverfisnefnd - 193Skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu erindisins vegna forfalla skipulags- og byggingarfulltrúa.
Skipulags- og umhverfisnefnd - 193Farið var yfir umhverfisskýrslu, hún skoðuð og rædd. Skipulags- og byggingarnefnd óskar efti því að blóm verði sett í blómaker bæjarins og að passað verði uppá að nægilega margar ruslatunnur verði til taks fyrir hátíðina okkar.
Einnig viljum við leggja til að verkefni vinnuskólans í framtíðinni verði skoðuð með tilliti til umhverfisskýrslu.
Vert er að kanna hvort hægt sé að koma á samstarfi við Skógræktarfélagið um umhirðu gróðurs á vegum bæjarins.