Farið yfir Aðalskipulag Grundarfjarðarbæjar 2018-2038, einnig drög að umhverfisskýrsluSkipulags- og umhverfisnefnd - 190Björg Ágústsdóttir fór yfir tillögu á vinnslustigi og umhverfisskýrslu. Matthildur Kr. Elmarsdóttir var með á símafundi.
Skipulags-og umhverfisnefnd samþykkir framlagða tillögu á vinnslustigi að Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar. Einnig samþykkir nefndin drög að umhverfisskýrslu sem lögð hefur verið fram.
Skipulags-og umhverfisnefnd leggur til að skipulagstillagan verði sett í kynningu, skv. 2.mgr.30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Rósa Guðmundsdóttir sat fundinn undir þessum lið.
Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar og vísar til 5. liðar á dagskrá þessa fundar.
Lögð fram að nýju tillaga að deiliskipulagi Kirkjufellsfoss, dags. 18.4.2018, sem unnin er fyrir Grundarfjarðarbæ af ráðgjafafyrirtækinu AltaSkipulags- og umhverfisnefnd - 190Kirkjufellsfoss Skipulags- og umhverfisnefnd:
Lögð fram að nýju tillaga að deiliskipulagi Kirkjufellsfoss, dags. 18.4.2018, sem unnin er fyrir Grundarfjarðarbæ af ráðgjafafyrirtækinu Alta. Tillagan er unnin í samstarfi við landeigendur jarðarinnar Kirkjufells. Í tillögunni felst nýtt bílastæði vestan við fossinn með nýrri tengingu við þjóðveginn ásamt áningar- og salernisaðstöðu. Gönguleiðir meðfram fossinum verða lagfærðar og sérstaklega er hugað að aðgengi fyrir alla frá bílastæði að fossinum. Deiliskipulagið er sett fram á deiliskipulagsuppdrætti í mkv. 1:1000 og greinargerð, dags. 18. 4.2018.
Lýsing fyrir verkefnið var kynnt frá 5.1.2018 til 1.2.2018 og í kjölfarið var tillaga að deiliskipulagi kynnt á vinnslustigi frá 14.3.2018 til og með 3.4.2018. Ábendingar bárust á kynningartíma sem hafðar voru til hliðsjónar við gerð deiliskipulagstillögunnar.
Tillagan var auglýst 5.4.2018 á vef sveitarfélagsins, Fréttablaðinu og í svæðisbundnum fréttamiðli. Athugasemdafrestur var til 17.5.2018. Athugasemdir bárust frá Vegagerðinni dags. 18.4.2018 og Lögmönnum Höfðabakka, f.h. Sædísar Helgu Guðmundsdóttur dags. 23.4.2018. Misfórst að birta auglýsingu í Lögbirtingarblaðinu en hún var birt 18.5.2018 með athugasemdafresti til 29.6. 2018.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, með vísan í 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagi áfangastaðar við Kirkjufellsfoss ásamt meðfylgjandi umsögn um athugasemdir, dags. 18.5.2018 og leggur til að deiliskipulagið verði sent Skipulagsstofnun til yfirferðar.
Jafnframt lagt fram yfirlit yfir athugasemdir sem hafa borist og tillögur að afgreiðslu þeirra, unnar eru af ráðgjafafyrirtækinu Alta og dags. 18. maí 2018.
Skipulags- og umhverfisnefnd vísar málinu til bæjarstjórnar, að höfðu samráði við Alta eftir samtal þeirra við Skipulagsstofnun vegna auglýsingaferlisins.
Þorsteinn Steinsson sat fundinn undir þessum lið.Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar og vísar til 7. liðar á dagskrá þessa fundar.
Lögð fram að nýju tillaga að deiliskipulagi fyrir áfangastað við Kolgrafafjörð, dags. 18.4.2018, sem unnin er fyrir Grundarfjarðarbæ af ráðgjafafyrirtækinu Alta.Skipulags- og umhverfisnefnd - 190Kolgrafafjörður Skipulags- og umhverfisnefnd:
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga að deiliskipulagi fyrir áfangastað við Kolgrafafjörð, dags. 18.4.2018, sem unnin er fyrir Grundarfjarðarbæ af ráðgjafafyrirtækinu Alta. Tillagan er unnin í samstarfi við landeigendur. Í tillögunni felst að útbúa aðstöðu til að njóta útsýnis og náttúrulífs við vesturenda brúarinnar. Á áfangastað er gert ráð fyrir útsýnispalli á grjótvarnargarði, svæði til áningar ásamt salernisaðstöðu. Á áfangastað verða upplýsingaskilti um nánasta umhverfi, náttúru svæðisins og nærliggjandi þjónustu. Deiliskipulagið er sett fram á deiliskipulagsuppdrætti í mkv. 1:1000 og greinargerð, dags. 18.4.2018.
Lýsing fyrir verkefnið var kynnt frá frá 3.11.-26.11.2016. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma sem hafðar voru til hliðsjónar við gerð deiliskipulagstillögunnar. Tillaga að deiliskipulagi var kynnt á vinnslustigi frá 14.3.2018 til og með 3.4.2018. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust á kynningartíma vinnslutillögunnar.
Tillagan var auglýst 5.4.2018 á vef sveitarfélagsins, Fréttablaðinu og með auglýsingu í svæðisbundnum fréttamiðli. Athugasemdafrestur var til og með 17.5.2018. Engar athugasemdir bárust við auglýsta tillögu. Misfórst að birta auglýsingu í Lögbirtingarblaðinu en hún var birt 18.5.2018 með athugasemdafresti til 29.6.2018.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, með vísan í 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagi áfangastaðar við Kolgrafafjörð og leggur til að deiliskipulagið verði sent Skipulagsstofnun til yfirferðar.
Skipulags- og umhverfisnefnd vísar málinu til bæjarstjórnar, að höfðu samráði við Alta eftir samtal þeirra við Skipulagsstofnun vegna auglýsingaferlisins.
Þorsteinn Steinsson sat fundinn undir þessum lið.Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar og vísar til 6. liðar á dagskrá þessa fundar.
Almenna umhverfisþjónustan ehf leggur fram tillögu af húsum til bygginga á lóðunum Grundargötu 82 og 90Skipulags- og umhverfisnefnd - 190Skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa í samráði við Almennu umhverfisþjónustuna ehf. að grenndarkynna fyrirhugaðar byggingar á lóðunum við Grundargötu 82 og 90.
Skipulags- og umhverfisnefnd áréttar samþykkt um úthlutun lóða í Grundarfirði og bendir á reglur um tímamörk.
Ólafur Tryggvason vék af fundi undir þessum lið.Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar og leggur til að grenndarkynnt verði í húsum að Grundargötu nr. 76, 78, 80, 84, 86, 88, 92 og 94. Bæjarstjórn áréttar samþykkt um úthlutun lóða í Grundarfirði og bendir á reglur um tímamörk.
Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir leyfi Grundarfjarðarbæjar fyrir lagningu vatnslagnar.Skipulags- og umhverfisnefnd - 190Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir legu nýrrar vatnslagnarBókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
Tímamörk á lóðaúthlutunumSkipulags- og umhverfisnefnd - 190Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna lóðahöfum um tímamörk á þegar úthlutuðum lóðum.
Skipulags- og umhverfisnefnd vísar í samþykkt um úthlutun lóða í Grundarfirði og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að fella úthlutun lóða úr gildi að liðnu einu ári frá úthlutun þeirra hafi framkvæmdir ekki hafist eða fullnægjandi gögn borist.Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar. Bæjarstjórn áréttar samþykkt um úthlutun lóða í Grundarfirði og bendir á reglur um tímamörk.
Lögð fram tillaga að hjólastíg/göngustíg við Sæból
Skipulags- og umhverfisnefnd - 190Skipulags- og umhverfisnefnd list vel á tillöguna og leggur til að heildstæð vinna við hjólastíga verði unnin eftir að nýtt aðalskipulag tekur gildi.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur einnig til gangbrautir bæði á móts við Sæból 16 og framan við Sæból 24.
Bókun fundarBæjarstjórn tekur undir tillögu skipulags- og umhverfisnefndar og felur skipulags- og byggingafulltrúa að vinna að málinu.