Skólanefnd - 142Lögð fram skýrsla skólastjóra og gerði hann grein fyrir henni. Fór hann meðal annars yfir breytingar í starfsmannahaldi o.fl. Bent var á mikilvægi þess að skoða sérstaklega aðstöðu fyrir heilsdagsskóla, þar sem fjölgun nemenda hefur verið mikil. Skólanefnd óskar eftir að skipuð verði sérstök starfsnefnd sem skoða skal mögulegar lausnir svo þjónusta heilsdagsskólans verði ekki skert. Lagt er til að í nefndinni verði skólastjóri, starfsmaður heilsdagsskóla og fulltrúi skólanefndar. Nefndin getur kallað eftir áliti fagaðila eftir þörfum. Útskrift grunnskólans er 1. júní nk. Ennfremur lögð fram fundargerð skólaráðs frá 30. apríl varðandi skólapúls og skóladagatal.
Farið var yfir skóladagatalið og var skóladagatali 2018-2019, vísað til síðari umræðu.
Þá gerði skólastjóri sérstaka grein fyrir starfsmannakönnun grunnskóla 2017-2018. Skólinn kom vel út úr skólapúlsinum og er ánægjulegt að sjá hvað starfið gengur almennt vel.
Skólanefnd - 142Lagt fram skóladagatal Eldhamra fyrir 2018-2019. Skólastjóri gerði grein fyrir skóladagatalinu. Skólanefnd leggur til að starfsdagar kennara skuli vera fimm eins og hjá grunnskólanum. Skólaslit Eldhamra verða 5. júní nk. Kennsla helst óbreytt fram að sumarfríi, sem er 25. júní nk. Skóladagatal Eldhamra 2018-2019 var vísað til síðari umræðu.
Skólanefnd - 142Lagt fram skóladagatal fyrir Tónlistarskólann 2018-2019. Skólanefnd leggur til að starfsdagar kennara skuli vera fimm eins og hjá grunnskólanum. Skólastjóri gerði grein fyrir því og starfsemi skólans. Alls voru 50 nemendur við nám í skólanum á þessu skólaári. Skólaslit verða 16. maí nk. að afstöðnum lokatónleikum. Skóladagatal 2018-2019 vísað til síðari umræðu.
Skólanefnd - 142Lögð fram skýrsla skólastjóra leikskólans Sólvalla. Skólastjóri fór yfir hana og gerði grein fyrir starfseminni. Í leikskólanum eru 20 starfsmenn í 18,13 stöðugildum. Börnum hefur verið að fjölga í leikskólanum og eru þau alls 51. Til skoðunar hefur verið stytting vinnuviku og finnst starfsfólki spennandi að prófa slíkt fyrirkomulag. Skólanefnd óskar eftir nánari útfærslu á hugmyndum um styttingu vinnuvikunnar. Ennfremur lagt fram skóladagatal leikskólans fyrir 2018-2019. Skóladagatali vísað til síðari umræðu. Skólastjóri gerði grein fyrir skóladagatalinu og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.
Skólanefnd leggur til að sérstakir starfsdagar í leikskólanum verði fimm talsins eins og í grunnskólanum.