Skólanefnd - 135Sigurður G. Guðjónsson, skólastjóri, Unnur Birna Þórhallsdóttir, fulltrúi starfsmanna og Anna Rafnsdóttir, fulltrúi nemenda, sátu fundinn undir þessum lið.
Sigurður fór yfir skýrslu sína í upphafi skólaárs 2016-2017. Nemendafjöldi er um 80. Farið yfir starfsmannamál o.fl.
Jafnframt gerð grein fyrir tölvupósti frá Hesteigendafélaginu þar sem óskað er samstarfs um reiðmennsku fyrir börn. Skólastjóra falið að svara erindi Hesteigendafélagsins.
Skólanefnd - 135Björg Karlsdóttir, skólastjóri, Kristín Alma Sigmarsdóttir, fulltrúi starfsmanna og Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir, fulltrúi foreldraráðs leikskólans, sátu fundinn undir þessum lið.
Björg gerði grein fyrir skýrslu sinni um starfsemi leikskólans og fór yfir starfsmannamál. Fjöldi barna er 51, en gert ráð fyrir að börnin verði 53 fyrir áramót.
Skólanefnd fagnar auknum námsáhuga starfsfólks, en telur nauðsynlegt að setja skýrari reglur um fjölda starfsmanna í námi hverju sinni.
Skólanefnd hvetur til uppfærslu á heimasíðu leikskólans. Skólanefnd mun endurskoða fjölda starfsdaga leikskólans skólaárið 2016-2017 að ósk leikskólastjóra.
Skólanefnd mælir með því að undirbúin verði afmælishátíð í tilefni af 40 ára afmæli leikskólans í janúar 2017.
Lagt til að árlegt fimm vikna sumarleyfi hefjist viku síðar en leikskóladeildarinnar Eldhamra og hefji störf að nýju að sumarleyfi loknu á sama tíma og leikskóladeildin.
Skólanefnd - 135Lagt fram til kynningar bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 03.05.2016, með ábendingu til skólanefnda um kostnað vegna námsgagna.
Jafnframt lögð fram hvatning Velferðarvaktarinnar til sveitarfélaga, dags. 09.08.02016 um að leggja kostnaðarþátttöku foreldra vegna ritfangakaupa af, eða halda henni í lágmarki.
Skólanefnd tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í bréfi Velferðarvaktarinnar og leggur til að málið verið skoðað vel fyrir næsta skólaár.