Skotfélagið Skotgrund leggur inn til kynningar ófullgerðar teikningar vegna fyrirhugaðra framkvæmda við byggingu á nýju húsnæði fyrir skotæfingar í Hrafnkelsstaðabotni í Kolgrafafirði.
Skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í áform Skotfélagsins og þakkar fyrir greinargóða kynningu á væntanlegri framkvæmd. Skipulags- og umhverfisnefnd felur byggingarfulltrúa að láta vinna deiliskipulag af svæðinu sem skotfélagið hefur til umráða.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur byggingarfulltrúa að láta vinna deiliskipulag af svæðinu sem skotfélagið hefur til umráða.