Lagður fram ársreikningur Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2015. Bæjarráð samþykkir ársreikninginn með áritun sinni og telst hann tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn.
Jónas Gestur Jónasson, endurskoðandi og Kristinn Kristófersson fóru yfir helstu tölur í ársreikningi 2015.
Allir tóku til máls.
Rekstrartekjur samstæðunnar voru 929,2 millj. kr., þar af voru 780,3 millj. kr. vegna A-hluta.
Rekstrarniðurstaða samkvæmt samanteknum ársreikningi A og B hluta var jákvæð upp á 40,2 millj. kr. en rekstarafkoma A hluta var jákvæð um 4,2 millj. kr. Rekstrarniðurstaða er umtalsvert betri en áætlun gerði ráð fyrir.
Framlegðarhlutfall rekstrar af samanteknum ársreikningi var 16,89% en 11,66% af A hluta.
Heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins voru 1.422 millj. kr. og skuldaviðmið 149,11% en var 161,1% árið áður.
Eigið fé sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum ársreikningi er 560,9 millj. kr. í árslok 2015 og eiginfjárhlutfall er 30,46% en var 29,62% árið áður.
Veltufé frá rekstri í samanteknum ársreikningi var 111,1 millj. kr. og handbært fé í árslok 111,4 millj. kr. en var 44,9 millj. kr. árið áður.
Helstu tölur úr samanteknum ársreikningi í þús. kr.:
Samþykkt samhljóða að vísa ársreikningi Grundarfjarðarbæjar árið 2015 til síðari umræðu.
Kristinn Kristófersson og Marinó Mortenssen sátu fundinn undir þessum lið og kynntu ársreikning ársins 2015, endurskoðunarskýrslu og samanburð á ársreikningum sveitarfélaga á Snæfellsnesi fyrir árið 2015.
Allir tóku til máls.
Ársreikningur Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2015 samþykktur samhljóða og undirritaður.
Bæjarráð samþykkir ársreikninginn með áritun sinni og telst hann tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.