Verkfræðistofan Efla hf hefur lagt inn drög fyrir hönd Landsnets að lagningu 66kV jarðstrengs, Grundarfjarðarlínu 2, frá nýja tengivirkinu að Ártúni 21 að tengivirki í Ólafsvík, alls um 26 km leið.Skipulags- og umhverfisnefnd - 165Skipulags-og umhverfisnefnd samþykkir erindið.Bókun fundarSamþykkt
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar samþykkti á fundi 5. nóvember 2015 að endurauglýsa breytingu á deiliskipulagi samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiluskipulagið fór í auglýsingu 9. desember 2015. Frestur til að koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri til skipulags- og byggingarfulltrúa var til 21. janúar 2016. Ein athugasemd barst með tölvupóst.Skipulags- og umhverfisnefnd - 165Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við Sveitarstjórn að deiluskipulagsbreytingin verði send skipulagsstofnun samkv. 1.mgr 42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags-og byggingarfulltrúa að bæta inná deiliskipulagið kvöð um umferð og lagnir eins og fram kemur í lóðarleigusamningi lóðar 4a og að svara framkominni athugasemd.Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir tillögu skipulags- og umhverfisnefndar með 4 atkvæðum gegn 3 atkvæðum.