299. fundur 08. maí 2025 kl. 16:30 - 20:29 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK) forseti bæjarstjórnar
  • Garðar Svansson (GS)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG)
  • Loftur Árni Björgvinsson (LÁB)
  • Davíð Magnússon (DM)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Forseti setti fund.

Forseti lagði til að tekinn yrði með afbrigðum inn á dagskrá fundarins dagskrárliðurinn "Starf forstöðumanns menningar- og markaðsmála" sem yrði liður 12 á dagskrá. Aðrir liðir færast aftur sem því nemur.

Samþykkt samhljóða.

Gengið var til dagskrár.

1.Ársreikningur 2024 - síðari umræða

Málsnúmer 2504006Vakta málsnúmer

Ársreikningur var samþykktur við fyrri umræðu á síðasta fundi, en endurbætt eintak er hér lagt fyrir fundinn, með leiðréttingu á tekjum og skuldahlutfalli.



Leiðrétt bókun frá fyrri umræðu:



Rekstrartekjur samstæðunnar námu 1.810 millj. kr., en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 1.754 millj. kr. Rekstrartekjur A-hluta námu 1.541 millj. kr. en áætlun gerði ráð fyrir 1.488 millj. kr.



Rekstrarniðurstaða samkvæmt samanteknum ársreikningi A og B hluta var jákvæð um 83,6 millj. kr. Fjárhagsáætlun samstæðu með viðauka gerði ráð fyrir 42,2 millj. kr. jákvæðri niðurstöðu. Sé litið til A hluta eingöngu, þá er rekstarafkoma A-hluta jákvæð á árinu um 43,5 millj. kr.



Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2024 nam 1.382 millj. kr. skv. efnahagsreikningi, þar af nam eigið fé A-hluta 1.018 millj. kr. Eiginfjárhlutfall var 35,01%, en var 31,45% árið áður.



Heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins námu 2.056,6 millj. kr., en námu 2.023,4 millj. kr. árið 2023. Skuldahlutfall skv. reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga er 91,05% í samanteknum ársreikningi, en var 93,0% árið 2023. Hjá A-hluta var hlutfallið 88,89%, en var 86,4% á árinu 2023.



Veltufé frá rekstri í samanteknum ársreikningi var 251,8 millj. kr. og handbært fé í árslok 61,4 millj. kr., en var 111 millj. kr. árið áður.

Jónas Gestur Jónasson lögg. endurskoðandi og Marinó Mortensen frá Deloitte sátu fundinn undir þessum lið.

Þeir kynntu ársreikning Grundarfjarðarbæjar 2024, sem tekinn er til síðari umræðu, endurskoðunarskýrslu og samanburð á ársreikningum og ýmsum kennitölum sveitarfélaga á Snæfellsnesi fyrir árið 2024.

Allir tóku til máls.

Ársreikningur Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2024 samþykktur samhljóða.

Gestir

  • Jónas Gestur Jónasson, lögg. endursk. Deloitte - mæting: 16:30
  • Marinó Mortensen frá Deloitte - mæting: 16:30

2.Skoðun á tekjum Grundarfjarðarbæjar

Málsnúmer 1808015Vakta málsnúmer

Lögð fram samantekt og greining SSV, dr. Vífils Karlssonar, á tekjum Grundarfjarðarbæjar frá 2002, með samanburði við tekjur annarra sveitarfélaga.

Vífill Karlsson sat fundinn í fjarfundi undir þessum lið.

Í greiningunni eru m.a. útsvarstekjur bæjarins frá íbúum í aldurshópi 18-67 ára greindar og bornar saman við tekjur þessa aldurshóps hjá öðrum sveitarfélögum. Skv. niðurstöðum er útsvarsgrunnur og þar með útsvarsgreiðslur mun lægri hjá Grundarfjarðarbæ, sé horft til þessa aldurshóps útsvarsgreiðenda, heldur en hjá samanburðarsveitarfélögunum, sem eru Snæfellsbær, Sveitarfélagið Stykkishólmur, Vopnafjarðarhreppur, Húnabyggð og Bolungarvíkurkaupstaður.

Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að leita eftir frekari upplýsingum varðandi útsvarstekjur bæjarins.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Vífill Karlsson, hagfræðingur, SSV - mæting: 17:40

3.Minnispunktar bæjarstjóra

Málsnúmer 2205020Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri fór yfir minnispunkta sína, sbr. framlagt skjal.

4.Störf bæjarstjórnar á kjörtímabilinu 2022-2026

Málsnúmer 2205021Vakta málsnúmer

Forseti tilkynnti að Ágústa Einarsdóttir sé komin í leyfi frá bæjarstjórnarstörfum, sbr. ósk hennar á 296. fundi bæjarstjórnar, en hún eignaðist barn 21. apríl sl. Davíð Magnússon hefur frá sama degi tekið sæti hennar sem aðalmaður í bæjarstjórn.

Fundarmenn færa foreldrunum, Ágústu og Sveini, hamingjuóskir með nýfæddan son.

Forseti lagði til að Davíð Magnússon verði aðalmaður í bæjarráði.

Samþykkt samhljóða.

Rætt um fyrirhugað samtal um sameiningarmál við fulltrúa Snæfellsbæjar, en stefnt er að því eftir 13. maí nk.

GS sagði frá fundi SSV sem hann sat á um daginn, þar sem hann fékk upplýsingar um helstu fundi SSV til framtíðar.

Haustþing SSV verður haldið 24. september 2025.
Aðalfundur verður haldinn 25. mars 2026.
Aukaaðalfundur verður haldinn 24. júní 2026.

5.Ályktun um viðhald þjóðvega á Snæfellsnesi

Málsnúmer 2009014Vakta málsnúmer

Enn ræðir bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar um samgöngumál og ástand þjóðvegar 54, Snæfellsnesvegar, þar sem ástandið hefur aldrei verið verra. Á það ekki síst við í næsta nágrenni Grundarfjarðar, á Snæfellsnesi og langleiðina suður í Borgarnes.

Bæjarstjórn hefur margsinnis gert athugasemdir við hættulegt ástand þjóðvegarins. Fyrr á þessu ári sendu sveitarstjórnir á Vesturlandi ákall til forsætisráðherra og innviðaráðherra um að brýn þörf væri til að bregðast strax við bágbornu ástandi tiltekinna vegarkafla, með neyðarfjárveitingu í allra brýnustu viðgerðirnar, til að tryggja íbúum, atvinnulífi og ferðafólki lágmarks öryggi á vegunum.

Bæjarstjórn þakkar ráðherrunum fyrir að hafa brugðist hratt við ákalli sveitarstjórnarfólks á Vesturlandi og boðið til fundar 10. mars sl. þar sem tækifæri gafst til þess að ræða þessi mál. Engin svör eða viðbrögð hafa þó borist við erindi sveitarstjórna á Vesturlandi síðan og lýsir bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar vonbrigðum sínum með það.

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar ítrekar fjölmargar fyrri bókanir sínar um ástand þjóðvegar 54, Snæfellsnesvegar.

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar lýsir enn og aftur yfir þungum áhyggjum af síversnandi og hættulegu ástandi þjóðvega á Snæfellsnesi og að Borgarnesi, ástandi sem er að stórum hluta til komið vegna skorts á viðhlítandi viðhaldi.

Ástand þjóðveganna hefur sjaldan verið eins slæmt og nú. Hættan sem leiðir af ástandi veganna er algjörlega óviðunandi fyrir notendurna. Á það jafnt við um íbúa, gesti, atvinnubílstjóra og neyðarflutninga. Jarðsig og frostskemmdir hafa gert veginn ósléttan yfirferðar, slitlag er gróft og bútakennt eftir áralangar holufyllingar, vegkantar eru víða brotnir og hafa gefið eftir á löngum köflum og víða eru vegir of mjóir. Á sumum stöðum er vatnsagi á vegi mikið vandamál.

Verulega aukin umferð, þar á meðal stórauknir þungaflutningar á síðustu árum, sumar sem vetur, kallar á aukin framlög til vegagerðar, ekki síst til almenns viðhalds. Þó nýjar vegaframkvæmdir séu af hinu góða, þá má ekki gleymast að sinna viðhaldi eldri vega. Í þeim liggja mikil verðmæti sem fara forgörðum, sé viðhaldi þeirra ekki sinnt.

Í febrúar sl. þurfti Vegagerðin að moka tjöru af „blæðandi“ þjóðvegum á Snæfellsnesi. Fjölmargir akandi vegfarendur urðu fyrir óþægindum og tjóni á ökutækjum sínum, vegna ástands þjóðveganna, þegar þykk tjara lagðist á hjólbarða og aðra fleti bifreiða. Slíkt er ekki einungis hvimleitt, heldur er umferðaröryggi stórlega ógnað í slíku ástandi, auk þess sem það veldur eigendum ökutækja fjárhagstjóni. Viðbúið er að slíkt ástand geti skapast aftur eins og ástand umræddra vega er.

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar ítrekar fyrri óskir um stóraukna fjármuni til nauðsynlegra viðgerða og viðhaldsframkvæmda á þjóðvegi 54.

Samþykkt samhljóða.

6.Bæjarráð - 635

Málsnúmer 2504002FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 635. fundar bæjarráðs.

7.Bæjarráð - 636

Málsnúmer 2504005FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 636. fundar bæjarráðs.
  • Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.
    Bæjarráð - 636
  • 7.2 2502020 Greitt útsvar 2025
    Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar jan.-mars 2025.
    Bæjarráð - 636 Skv. yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 13,5% miðað við sama tímabil í fyrra.
  • Lögð fram beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi um afskrift á álögðum opinberum gjöldum. Afskrifaður höfuðstóll er að fjárhæð 8.008.907 kr.
    Bæjarráð - 636 Lagt til að bæjarráð samþykki beiðni sýslumanns.

    Bæjarráð samþykkir afskrift á álögðum opinberum gjöldum að fjárhæð 8.008.907 kr. auk vaxta.

    Samþykkt samhljóða.
  • 7.4 2501025 Framkvæmdir 2025
    Farið yfir framkvæmdir.
    Bæjarráð - 636 Lögð fram tillaga VA-arkitekta um efnisval á klæðningu á íþróttahúsi.

    Tillaga arkitektanna um Equitone samþykkt, sem og litaval klæðningar.

    Samþykkt samhljóða.

    Ástandsmat á húsi Sögumiðstöðvar var unnið sl. vetur, eins og áður hefur komið fram í bæjarráði. Verðkönnun vegna framkvæmda við viðgerðir fór fram í byrjun apríl. Ekkert tilboð barst í verkið, en því átti að ljúka í byrjun júní. Um er að ræða viðhaldsviðgerðir og endurbætur húss.

    Bæjarráð veitir Sigurði Val Ásbjarnarsyni, tæknifræðingi, ásamt bæjarstjóra, heimild til að leita samninga við húsasmíða- og múrarameistara um fast verð í verkefnið og til annarra nauðsynlegra aðgerða til að verkið fari fram á næstu vikum og ljúki áður en vetrarstarf hússins hefst.

    Bæjarráð vísar í fyrri bókun sína og tillögu, sbr. 634. fund, þar sem gerður var fyrirvari á mögulegri útleigu rýmis í Sögumiðstöð á komandi sumri. Í ljósi niðurstaðna verðkönnunar og nauðsynlegs framkvæmdatíma endurbóta, er lagt til að húsið verið ekki leigt út í sumar.

    Samþykkt samhljóða.

    Jafnframt rætt um stöðu framkvæmda á geymslusvæðinu við Ártún 8 og stöðu gangstéttarframkvæmda á Hrannarstíg, og fyrirhugaðar framkvæmdir í búningsklefum íþróttahúss. Húsinu verður lokað í næstu viku meðan á framkvæmdum stendur.

    Þá var rætt um bætta aðstöðu við íþróttavöll (salerni, geymsla) og er það mál í vinnslu.
    Bókun fundar Til máls tóku JÓK, GS og BÁ.
  • Lagt fram minnisblað áhaldahúss með tillögu um kaup á nýrri Avant vinnuvél og viðbótarbúnaði.
    Bæjarráð - 636 Farið yfir málið með verkstjóra áhaldahúss.

    Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja kaup á nýjum Avant og viðbótartækjum og að eldri Avant vinnuvél verði seld. Þessu verði mætt með millifærslu innan fjárfestingaáætlunar ársins.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Til máls tóku JÓK, GS og BS.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
  • Bæjarstjórn fól bæjarráði og bæjarstjóra umboð til ákvarðanatöku málsins.

    Lögð fram drög að útboðsgögnum vegna þróunar miðbæjarreits, en þau verða þó einnig lögð fram til endanlegrar skoðunar/afgreiðslu í bæjarstjórn 8. maí nk.
    Bæjarráð - 636 Bæjarráð ræddi fyrirliggjandi gögn og vísar þeim til samþykktar í bæjarstjórn.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagt fram kauptilboð Grundarfjarðarbæjar í jörðina Grund, sem samþykkt hefur verið af hálfu skiptastjóra dánarbús f.h. eigenda jarðarinnar, sbr. staðfestingu dags. 30. apríl 2025.
    Jafnframt lagður fram tölvupóstur sem barst í dag frá skiptastjóra.
    Bæjarráð - 636 Bæjarráð vísar í umfjöllun bæjarstjórnar og umboð veitt til undirbúnings málsins.

    Bæjarráð fagnar því að þessi áfangi sé í höfn. Jarðakaupin eru gerð með framtíðarhagsmuni sveitarfélagsins og íbúa í huga.

    Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2025.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara skiptastjóra dánarbúsins vegna tölvupóstsins sem barst í dag, í samráði við lögmann bæjarins.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Bæjarstjórn fagnar þessum áfanga við kaup á jörðinni Grund og staðfestir kaupin í samræmi við framlagt kauptilboð.

    Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að ganga frá samningi.

    Samþykkt samhljóða.
  • 7.8 2409014 Gjaldskrár 2025
    Lögð til breyting á gjaldskrártexta, hvað varðar föstudagstímana í leikskólanum, milli 14-16.
    Bæjarráð - 636 Rætt um hvort gera þurfi breytingar á gjaldskrá leikskóla vegna sérstaks skráningartíma á föstudögum, sbr. umræðu á fundi skólanefndarfundi 27. mars sl. Til frekari skoðunar.
  • Lagt fram nýtt lóðarblað, sbr. uppmælingu.
    Bæjarráð - 636 Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn samþykki nýtt lóðarblað.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
  • Lagt fram nýtt lóðarblað fyrir Smiðjustíg 9. Lóðarhafi gerði fyrirspurn um skráða stærð í fasteignaskrá þar sem lóðin var 828 m2. Við uppmælingu var stærð lóðar breytt og verður hún 611,3 m2.
    Bæjarráð - 636 Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn samþykki nýtt lóðarblað.

    Bæjarráð samþykkir jafnframt að að fela bæjarstjóra að svara erindi lóðarhafa um endurgreiðslu á ofgreiddri lóðarleigu í samræmi við lög, auk þess em álagning ársins 2025 verði leiðrétt.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
  • Lagður fram til kynningar samningur við Skátafélagið Örninn um flöggun á hátíðisdögum 2025-2026.
    Bæjarráð - 636
  • Lagt fram til kynningar aðalfundarboð Nývest. Fundurinn verður haldinn 6. maí nk.
    Bæjarráð - 636
  • Lagðar fram til kynningar samþykktir Nývest með breytingatillögum ásamt ársskýrslu stjórnar.
    Bæjarráð - 636
  • Lagt fram til kynningar bréf HSH dags. 16. apríl sl. með þökkum fyrir veittan stuðning. Héraðsþing HSH var haldið í samkomuhúsinu 7. apríl sl.
    Bæjarráð - 636
  • Lagt fram til kynningar ársuppgjör Meistaraflokks kvenna í blaki fyrir tímabilið 2023-2024.
    Bæjarráð - 636
  • Lagður fram til kynningar ársreikningur UMFG vegna ársins 2024.
    Bæjarráð - 636
  • Lagt fram til kynningar ársuppgjör Listvinafélags Grundarfjarðarkirkju fyrir árið 2024.
    Bæjarráð - 636
  • Lagt fram til kynningar ársuppgjör Sjómannadagsráðs fyrir árið 2023.
    Bæjarráð - 636
  • Lagt fram til kynningar ársuppgjör Sjómannadagsráðs fyrir árið 2024.
    Bæjarráð - 636

8.Skipulags- og umhverfisnefnd - 268

Málsnúmer 2504003FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 268. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Vísað er í fyrri umfjöllun skipulags- og umhverfisnefndar og bæjarstjórnar um miðbæjarreit, bæði um uppbyggingu á reitnum og síðan um aðalskipulagsbreytingu.

    Haldnir voru fundir með íbúum til að kynna hugmyndir um uppbyggingu á miðbæjarreit; opinn fundur í samkomuhúsinu 2. apríl sl. og tveir fundir sérstaklega með eigendum húsa á nærliggjandi lóðum. Þriðji slíkur fundurinn er jafnframt fyrirhugaður.

    Auglýst var skipulagslýsing og vinnslutillaga fyrir breytingu aðalskipulags, vegna miðbæjarreits, og var tillagan auglýst í Skipulagsgátt frá 15. til 24. apríl sl. Frestur til að gera athugasemdir/umsagnir rann út 24. apríl sl.

    Alls bárust fimm umsagnir, frá Slökkviliði Grundarfjarðar, Minjastofnun Íslands, Veitum ohf., Heilbrigðiseftirliti Vesturlands og Vegagerðinni.
    Umsagnir má sjá í framlagðri samantekt í fylgiskjali.

    Einnig er lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi, sem lagt er til að auglýst verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Undir þessum lið eru einnig lagðar fram til kynningar tillögur að fyrirkomulagi gatnamóta og lóðarmarka miðbæjarreits, við Hrannarstíg og Grundargötu, sem tekur mið af nýbyggingu á miðbæjarreit. Thijs Kreukels samgönguverkfræðingur hjá VSB verkfræðistofu vann þar undirbúningsvinnu og var hann gestur fundarins undir þessum lið að hluta.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 268 Thijs var boðinn velkominn á fundinn. Hann, Nanna og Sigurður fóru yfir hugmyndir um lóðarstærð og fyrirkomulag við lóðarmörk. Málið er til frekari vinnslu síðar.

    ---

    Farið yfir framlagðar umsagnir sem bárust á auglýsingatímanum.

    Þar sem um er að ræða lýsingu og vinnslutillögu er ekki þörf á að bregðast sérstaklega við athugasemdum á þessu stigi. Þær hafa þó verið hafðar til hliðsjónar við áframhaldandi vinnu og við gerð tillögu um breytingu á aðalskipulagi, sem nú liggur fyrir fundinum. Einnig verða þær hafðar til hliðsjónar við gerð deiliskipulags þegar þar að kemur.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi, sem auglýst verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að auglýsa hana, að fengnu samþykki bæjarstjórnar.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar og framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi, sem auglýst verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulagsstofnun hefur nú lokið yfirferð yfir aðalskipulagsbreytingu og nýtt deiliskipulag iðnaðarsvæðisins vestan Kvernár.

    Lagt fram til upplýsingar.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 268 Skipulags- og umhverfisnefnd fagnar því að þessu skipulagsferli sé að ljúka.

    Skipulagsstofnun mun í framhaldinu auglýsa aðalskipulagsbreytinguna í B-deild Stjórnartíðinda.

    Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulagsfulltrúa að gera lítilsháttar lagfæringar á deiliskipulaginu, í samræmi við ábendingar Skipulagsstofnunar, og að því loknu að auglýsa það í B-deild Stjórnartíðinda og á vef bæjarins og vekja athygli á tilheyrandi kærufresti.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Auglýsingatíma tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagstillögu á vinnslustigi lauk 25. apríl sl.

    Lögð fram samantekt með yfirliti yfir þær umsagnir/athugasemdir sem bárust og tillögur að viðbrögðum við þeim.

    Alls bárust átta athugasemdir frá eftirtöldum aðilum og voru þær samhljóða við bæði aðalskipulagsbreytinguna og deiliskipulagstillöguna;

    - Veitur
    - Náttúruverndarstofnun
    - Minjastofnun Íslands
    - Heilbrigðiseftirlit Vesturlands
    - Vegagerðin - Vestursvæði
    - Landsnet
    - Rarik
    - Slökkvilið Grundarfjarðar

    Sjá má athugasemdir/umsagnir í samantektarblaði í fylgiskjali og einnig í Skipulagsgátt.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 268 Ábendingar á þessu stigi eru hafðar til hliðsjónar og ekki þarf að svara þeim formlega. Farið hefur verið yfir umsagnir og athugasemdir sem bárust á kynningartíma tillögunnar.

    Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja viðbrögðum nefndarinnar eftir, í samvinnu við
    framkvæmdaraðila.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • 8.4 2502017 Reglur um umgengni
    Lögð fram að fengnum athugasemdum frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, lokatillaga að samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss í Grundarfirði, í samræmi við bókun 266. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 268 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir engar athugasemdir við framkomna tillögu að samþykkt um umgengni og þrifnað og vísar málinu til bæjarstjórnar til samþykktar.
    Bókun fundar Til máls tóku JÓK og LÁB.

    Bæjarstjórn fagnar framkominni samantekt af reglum um umgengni og þrifnað utanhúss í Grundarfirði og samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Lögð fram fyrirspurn frá eiganda Sólbakka um að skráningu frístundahúss á lóðinni verði breytt í íbúðarhús.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 268 Húsið sem um ræðir stendur á Sólbakka, lóð A, og er deiliskipulagt sem frístundahús samkvæmt breyttu deiliskipulagi sem tók gildi á árinu 2021. Áður var í gildi deiliskipulag frá árinu 2013 þar sem gert var ráð fyrir íbúðarhúsi, einu á hvorri lóð (A og B-lóð).

    Til að breyta megi skráningu hússins þyrfti að breyta deiliskipulagi og gera ráð fyrir íbúðarhúsi, sem ekki er gert ráð fyrir nú.
    Þar sem áður hefur verið í gildi samþykkt deiliskipulag þar sem gert var ráð fyrir íbúðarhúsi, telur skipulags- og umhverfisnefnd að breyting sem gerði ráð fyrir slíku aftur teldist óveruleg breyting deiliskipulags, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.

    Skipulags- og umhverfisnefnd gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemd við slíka óverulega breytingu sem gerð yrði á deiliskipulagi, en bendir á að þetta sé háð endanlegu samþykki bæjarstjórnar.

    Ennfremur leggur nefndin áherslu á að aðrar og meiri kröfur séu gerðar um íbúðarhús en frístundahús í byggingarreglugerð og beinir því til fyrirspyrjanda að ráðfæra sig við byggingarfulltrúa, enda yrði íbúðarhúsið að uppfylla ákvæði byggingarreglugerðar sem slíkt.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Lögð fram til kynningar ný merkjalýsing eftir endurmælingu á lóðinni við Smiðjustíg 9.

    Lóðarblað verður lagt fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 268 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir engar athugasemdir við merkjalýsinguna fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar til samþykktar. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Lögð fram til kynningar ný merkjalýsing eftir endurmælingu á lóðinni við Borgarbraut 6.

    Lóðarblað verður lagt fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 268 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir enga athugasemd við merkjalýsinguna fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar til samþykktar. Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Þjónustufulltrúi skipulags- og byggingarfulltrúa greinir frá því að hugsanlega verði hægt að stytta grenndarkynningu vegna framkvæmda að Nesvegi 5 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010 áður en frestur til að gera athugasemdir rennur út 15. maí nk.

    Engin önnur mál.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 268

9.Reglur og gjaldskrá geymslusvæðis að Ártúni 8

Málsnúmer 2503028Vakta málsnúmer

Lagðar fram tillögur að reglum og gjaldskrá með uppfærslu gjalds fyrir geymslusvæði.

Lagt til að gjald fyrir 3x8m svæði verði 10.000 kr. á mánuði og fyrir 3x12m verði 15.000 kr. á mánuði.

Samþykkt samhljóða.

10.Útboð á sölu byggingarréttar á miðbæjarreit

Málsnúmer 2504009Vakta málsnúmer

Lögð fram útboðsgögn og drög að auglýsingu um útboð á sölu byggingarréttar á miðbæjarreit.

Til máls tóku JÓK, BÁ og LÁB.

Fyrirliggjandi útboðsgögn innihalda fyrirfram skilgreindar reglur um útboð byggingarréttar á lóðunum (miðbæjarreit) og fela í sér frávik frá Samþykkt um úthlutun lóða í Grundarfirði og að hluta til gjaldskrá fyrir gatnagerðargjöld í Grundarfirði.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi útboðsgögn og auglýsingu.

Samþykkt samhljóða.

11.Starf forstöðumanns bókasafns og menningarmála

Málsnúmer 2504018Vakta málsnúmer

Á 298. fundi bæjarstjórnar, sem var aukafundur, 28. apríl sl. samþykkti bæjarstjórn að breyta starfslýsingu fyrir starf forstöðumanns bókasafns og menningarmála. Fól bæjarstjórn tveimur bæjarfulltrúum, auk bæjarstjóra, að gera tillögu um breytta starfslýsingu og var hún send bæjarfulltrúum til skoðunar 6. maí sl.



Tillagan, með lítilsháttar breytingum, er nú lögð fram til afgreiðslu.

Vísað til næsta liðar á dagskrá fundarins.

12.Starf forstöðumanns menningar- og markaðsmála

Málsnúmer 2505012Vakta málsnúmer

Í tillögunni felst að breytt starf verði til, forstöðumaður menningar- og markaðsmála. Auk þess verði hlutastarf í bókasafni, sem mögulega mætti sameina með öðrum verkefnum.

Í inngangi tillögunnar segir:

"Starfið felur í sér ábyrgð á menningar- og markaðsmálum á vegum bæjar og hafnar.
Menningarmál fela í sér mikil gæði fyrir íbúa, en einnig fyrir gesti. Mikilvægt er að halda áfram á þeirri braut að byggja upp breytta starfsemi bókasafns, auk hins hefðbundna hlutverks þess, m.a. fjölbreyttan stuðning og þjónustu við íbúa, ekki síst nýja íbúa, með upplýsingagjöf og með því að hvetja til félagsstarfs, viðburða, fræðslu og samveru í menningarhúsum bæjarins. Ennfremur að virkja íbúa til að leggja sitt af mörkum til lista- og menningarstarfs.

Vilji er til þess að efla Grundarfjörð sem áningarstað ferðafólks, hvort sem það kemur á landi eða sjó. Ferðaþjónusta hefur verið að byggjast upp á svæðinu í langan tíma en Snæfellsnesið á enn mjög mikið inni, þegar kemur að uppbyggingu í greininni. Svæðið er einstakt og tækifærin mikil. Kirkjufell laðar að sívaxandi fjölda ferðamanna, árið um kring. Ákvarðanir bæjarstjórnar í skipulags- og umhverfismálum, í uppbyggingu hafnar og fleira, hafa miðað að uppbyggingu Grundarfjarðar sem áhugaverðs áningarstaðar. Nauðsynlegt er að fylgja þeim verkefnum betur eftir með upplýsingagjöf og markaðssetningu.

Markaðsstarf hafnarinnar hefur vaxið verulega og mikil viðbótarvinna hefur lagst á hafnarstjóra í tengslum við aukin umsvif í móttöku skemmtiferðaskipa. Á nýliðnum vetri fór mikil vinna hafnarstjóra og bæjarstjóra í að gæta hagsmuna hafnarinnar vegna breytinga í gjaldtöku ríkisins sem snertir skemmtiferðaskip og ekki er þar allt komið fram enn. Það er því rík ástæða til að gæta vel að okkar markaðshlutdeild og að viðhalda og byggja enn frekar upp góða þjónustu hafnar og góð viðskiptatengsl. Allt krefst það vinnu, ekki síst í markaðsmálum og samskiptum."

Gert er ráð fyrir að höfnin taki þátt að hluta, í starfi forstöðumanns menningar- og markaðsmála.

Allir tóku til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða starfslýsingu fyrir starf forstöðumanns menningar- og markaðsmála.

Bæjarstjórn samþykkir að gera breytingu á 2. gr. Starfsreglna bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar við ráðningu starfsmanna, þannig að í 6. tölulið standi "forstöðumaður menningar- og markaðsmála".

Samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn samþykkir að ráða Pálma Jóhannsson í starfið og felur bæjarstjóra að ganga frá ráðningarsamningi, með vísan í 1. mgr. 6. gr. í Starfsreglum um ráðningu starfsmanna hjá Grundarfjarðarbæ.

Samþykkt samhljóða.

13.Dögg Mósesdóttir - Saga Grundarfjarðar styrkumsókn

Málsnúmer 2505008Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Daggar Mósesdóttur um styrk vegna framleiðslu myndarinnar "Þorp verður til" sem fyrirhuguð er, um sögu Grundarfjarðar.

Lagt til að styrkja verkefnið um 500.000 kr. sem yrði greitt úr Uppbyggingarsjóði íþrótta- og menningarmála.

Samþykkt samhljóða.

Umsækjendum er bent á að sækja um frekari styrk í aðdraganda fjárhagsáætlunargerðar fyrir næsta fjárhagsár.

14.FSS - Forvarnastefna Snæfellsness

Málsnúmer 2505011Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar og afgreiðslu.

Bæjarstjórn vísar forvarnarstefnu Snæfellsness til umfjöllunar í skólanefnd, íþrótta- og tómstundanefnd og menningarnefnd.

Samþykkt samhljóða.

15.SSV - Listvinnuskólinn

Málsnúmer 2505003Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar samkomulag um styrk úr Sóknaráætlun Vesturlands til verkefnisins Listavinnuskólinn. Styrkfjárhæðin er 450.000 kr.

16.Snæfellsbær - Svarbréf frá bæjarstjórn SNB v. samtals um sameiningarmál

Málsnúmer 2505004Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar svarbréf Snæfellsbæjar, dags. 28. apríl sl., varðandi ósk um fund til að ræða möguleika á sameiningu sveitarfélaganna á Snæfellsnesi. Beiðnin var samþykkt.

17.Samband íslenskra sveitarfélaga - Orkufundur Samtaka orkusveitarfélaga

Málsnúmer 2505006Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fundarboð Samtaka orkusveitarfélaga um orkufund 26. maí nk.

18.Náttúruhamfaratrygging Íslands - Boð á ársfund

Málsnúmer 2505007Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fundarboð Náttúruhamfaratryggingar Íslands um ársfund 22. maí nk.

19.Skipulagsstofnun - Skipulagsdagurinn 2025

Málsnúmer 2505005Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fundarboð Skipulagsstofnunar um skipulagsdaginn 2025 sem haldinn verður 23. október nk.

20.Jeratún ehf - Fundargerð stjórnar og ársreikningur

Málsnúmer 2505010Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnarfundar Jeratúns ehf., sem haldinn var 25. apríl sl., ásamt ársreikningi félagsins vegna ársins 2024.

21.EBÍ - Nýjar samþykktir EBÍ-breytingar á kjöri í fulltrúaráð EBÍ

Málsnúmer 2505009Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynnningar bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands (EBÍ), dags. 2. apríl sl., ásamt fundargerð fundar fulltrúaráðs EBÍ sem haldinn var 19. mars sl. m.a. með upplýsingum um breytingar á samþykktum félagsins.

22.SSKS - Fundargerðir 2025

Málsnúmer 2503009Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 80. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum, sem haldinn var 12. mars sl.

23.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga - Fundargerðir 2025

Málsnúmer 2505002Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga:

Fundargerð 85. fundar sem haldinn var 19. mars sl.

Fundargerð 86. fundar sem haldinn var 28. mars sl.

Fundargerð 87. fundar sem haldinn var 1. apríl sl.

Fundargerð 88. fundar sem haldinn var 15. apríl sl.

24.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2025

Málsnúmer 2502011Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga:

Fundargerð 972. fundar sem haldinn var 11. mars sl.

Fundargerð 973. fundar sem haldinn var 14. mars sl.

Fundargerð 974. fundar sem haldinn var 19. mars sl.

Fundargerð 975. fundar sem haldinn var 20. mars sl.

Fundargerð 976. fundar sem haldinn var 4. apríl sl.

Fundargerð 977. fundar sem haldinn var 11. apríl sl.

Fundargerð 978. fundar sem haldinn var 30. apríl sl.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 20:29.