636. fundur 02. maí 2025 kl. 14:00 - 17:28 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG) varaformaður
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
    Aðalmaður: Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Varaformaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2025

Málsnúmer 2501016Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2025

Málsnúmer 2502020Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar jan.-mars 2025.

Skv. yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 13,5% miðað við sama tímabil í fyrra.

3.Sýslumaðurinn á Vesturlandi - Afskriftarbeiðni

Málsnúmer 2412001Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi um afskrift á álögðum opinberum gjöldum. Afskrifaður höfuðstóll er að fjárhæð 8.008.907 kr.

Lagt til að bæjarráð samþykki beiðni sýslumanns.

Bæjarráð samþykkir afskrift á álögðum opinberum gjöldum að fjárhæð 8.008.907 kr. auk vaxta.

Samþykkt samhljóða.

4.Framkvæmdir 2025

Málsnúmer 2501025Vakta málsnúmer

Farið yfir framkvæmdir.

Lögð fram tillaga VA-arkitekta um efnisval á klæðningu á íþróttahúsi.

Tillaga arkitektanna um Equitone samþykkt, sem og litaval klæðningar.

Samþykkt samhljóða.

Ástandsmat á húsi Sögumiðstöðvar var unnið sl. vetur, eins og áður hefur komið fram í bæjarráði. Verðkönnun vegna framkvæmda við viðgerðir fór fram í byrjun apríl. Ekkert tilboð barst í verkið, en því átti að ljúka í byrjun júní. Um er að ræða viðhaldsviðgerðir og endurbætur húss.

Bæjarráð veitir Sigurði Val Ásbjarnarsyni, tæknifræðingi, ásamt bæjarstjóra, heimild til að leita samninga við húsasmíða- og múrarameistara um fast verð í verkefnið og til annarra nauðsynlegra aðgerða til að verkið fari fram á næstu vikum og ljúki áður en vetrarstarf hússins hefst.

Bæjarráð vísar í fyrri bókun sína og tillögu, sbr. 634. fund, þar sem gerður var fyrirvari á mögulegri útleigu rýmis í Sögumiðstöð á komandi sumri. Í ljósi niðurstaðna verðkönnunar og nauðsynlegs framkvæmdatíma endurbóta, er lagt til að húsið verið ekki leigt út í sumar.

Samþykkt samhljóða.

Jafnframt rætt um stöðu framkvæmda á geymslusvæðinu við Ártún 8 og stöðu gangstéttarframkvæmda á Hrannarstíg, og fyrirhugaðar framkvæmdir í búningsklefum íþróttahúss. Húsinu verður lokað í næstu viku meðan á framkvæmdum stendur.

Þá var rætt um bætta aðstöðu við íþróttavöll (salerni, geymsla) og er það mál í vinnslu.

Gestir

  • Sigurður Valur Ásbjarnarson, skipulagsfulltrúi - mæting: 14:15

5.Fjárhagsáætlun 2025

Málsnúmer 2409008Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað áhaldahúss með tillögu um kaup á nýrri Avant vinnuvél og viðbótarbúnaði.

Farið yfir málið með verkstjóra áhaldahúss.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja kaup á nýjum Avant og viðbótartækjum og að eldri Avant vinnuvél verði seld. Þessu verði mætt með millifærslu innan fjárfestingaáætlunar ársins.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Elvar Þór Gunnarsson, verkstjóri áhaldahúss - mæting: 15:30

6.Útboð á sölu byggingarréttar á miðbæjarreit

Málsnúmer 2504009Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn fól bæjarráði og bæjarstjóra umboð til ákvarðanatöku málsins.



Lögð fram drög að útboðsgögnum vegna þróunar miðbæjarreits, en þau verða þó einnig lögð fram til endanlegrar skoðunar/afgreiðslu í bæjarstjórn 8. maí nk.

Bæjarráð ræddi fyrirliggjandi gögn og vísar þeim til samþykktar í bæjarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

7.Grund - kaup á jörð

Málsnúmer 2504023Vakta málsnúmer

Lagt fram kauptilboð Grundarfjarðarbæjar í jörðina Grund, sem samþykkt hefur verið af hálfu skiptastjóra dánarbús f.h. eigenda jarðarinnar, sbr. staðfestingu dags. 30. apríl 2025.

Jafnframt lagður fram tölvupóstur sem barst í dag frá skiptastjóra.

Bæjarráð vísar í umfjöllun bæjarstjórnar og umboð veitt til undirbúnings málsins.

Bæjarráð fagnar því að þessi áfangi sé í höfn. Jarðakaupin eru gerð með framtíðarhagsmuni sveitarfélagsins og íbúa í huga.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2025.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara skiptastjóra dánarbúsins vegna tölvupóstsins sem barst í dag, í samráði við lögmann bæjarins.

Samþykkt samhljóða.

8.Gjaldskrár 2025

Málsnúmer 2409014Vakta málsnúmer

Lögð til breyting á gjaldskrártexta, hvað varðar föstudagstímana í leikskólanum, milli 14-16.

Rætt um hvort gera þurfi breytingar á gjaldskrá leikskóla vegna sérstaks skráningartíma á föstudögum, sbr. umræðu á fundi skólanefndarfundi 27. mars sl. Til frekari skoðunar.

9.Lóðarblað Borgarbraut 6

Málsnúmer 2504003Vakta málsnúmer

Lagt fram nýtt lóðarblað, sbr. uppmælingu.

Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn samþykki nýtt lóðarblað.

Samþykkt samhljóða.

10.Lóðarblað Smiðjustígur 9

Málsnúmer 2504017Vakta málsnúmer

Lagt fram nýtt lóðarblað fyrir Smiðjustíg 9. Lóðarhafi gerði fyrirspurn um skráða stærð í fasteignaskrá þar sem lóðin var 828 m2. Við uppmælingu var stærð lóðar breytt og verður hún 611,3 m2.

Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn samþykki nýtt lóðarblað.

Bæjarráð samþykkir jafnframt að að fela bæjarstjóra að svara erindi lóðarhafa um endurgreiðslu á ofgreiddri lóðarleigu í samræmi við lög, auk þess em álagning ársins 2025 verði leiðrétt.

Samþykkt samhljóða.

11.Skátafélagið Örninn - Samningur um fánaumsýslu 2025-2026

Málsnúmer 2504022Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar samningur við Skátafélagið Örninn um flöggun á hátíðisdögum 2025-2026.

12.Nýsköpunarnet Vesturlands - Aðalfundarboð

Málsnúmer 2504020Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar aðalfundarboð Nývest. Fundurinn verður haldinn 6. maí nk.

13.Nýsköpunarnet Vesturlands - Ársskýrsla stjórnar og tillaga að breytingum

Málsnúmer 2504021Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar samþykktir Nývest með breytingatillögum ásamt ársskýrslu stjórnar.

14.HSH - Þakkir frá héraðsþingi

Málsnúmer 2504019Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf HSH dags. 16. apríl sl. með þökkum fyrir veittan stuðning. Héraðsþing HSH var haldið í samkomuhúsinu 7. apríl sl.

15.Meistaraflokkur kvenna í blaki - Ársuppgjör 2023-2024

Málsnúmer 2504012Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar ársuppgjör Meistaraflokks kvenna í blaki fyrir tímabilið 2023-2024.

16.UMFG - Ársreikningur 2024

Málsnúmer 2504013Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur UMFG vegna ársins 2024.

17.Listvinafélag Grundarfjarðarkirkju - Ársuppgjör 2024

Málsnúmer 2504011Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar ársuppgjör Listvinafélags Grundarfjarðarkirkju fyrir árið 2024.

18.Sjómannadagsráð Grundarfjarðar - Ársuppgjör 2023

Málsnúmer 2504014Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar ársuppgjör Sjómannadagsráðs fyrir árið 2023.

19.Sjómannadagsráð Grundarfjarðar - Ársuppgjör 2024

Málsnúmer 2504015Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar ársuppgjör Sjómannadagsráðs fyrir árið 2024.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 17:28.