268. fundur 30. apríl 2025 kl. 15:00 - 16:38 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS) formaður
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Þorkell Máni Þorkelsson (ÞMÞ)
    Aðalmaður: Davíð Magnússon (DM)
  • Heiðrún Hallgrímsdóttir (HH)
  • Lísa Ásgeirsdóttir (LÁ)
Starfsmenn
  • Sigurður Valur Ásbjarnarson (SVÁ) skipulagsfulltrúi
  • Guðmundur Rúnar Svansson (GRS) starfsmaður umhverfis- og skipulagssviðs
  • Nanna Vilborg Harðardóttir (NVH) starfsmaður umhverfis- og skipulagssviðs
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Guðmundur Rúnar Svansson Þjónustufulltrúi skipulags- og byggingarfulltrúa
Dagskrá
Davíð Magnússon er fjarverandi og Þorkell Máni Þorkelsson situr fundinn í hans stað. Sigurður Valur Ásbjarnarson skipulagsfulltrúi og Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri eru í fjarfundi.

Formaður setur fund og gengið er til dagskrár.

1.Breyting aðalskipulags - miðbæjarreitur

Málsnúmer 2503031Vakta málsnúmer

Vísað er í fyrri umfjöllun skipulags- og umhverfisnefndar og bæjarstjórnar um miðbæjarreit, bæði um uppbyggingu á reitnum og síðan um aðalskipulagsbreytingu.



Haldnir voru fundir með íbúum til að kynna hugmyndir um uppbyggingu á miðbæjarreit; opinn fundur í samkomuhúsinu 2. apríl sl. og tveir fundir sérstaklega með eigendum húsa á nærliggjandi lóðum. Þriðji slíkur fundurinn er jafnframt fyrirhugaður.



Auglýst var skipulagslýsing og vinnslutillaga fyrir breytingu aðalskipulags, vegna miðbæjarreits, og var tillagan auglýst í Skipulagsgátt frá 15. til 24. apríl sl. Frestur til að gera athugasemdir/umsagnir rann út 24. apríl sl.



Alls bárust fimm umsagnir, frá Slökkviliði Grundarfjarðar, Minjastofnun Íslands, Veitum ohf., Heilbrigðiseftirliti Vesturlands og Vegagerðinni.

Umsagnir má sjá í framlagðri samantekt í fylgiskjali.



Einnig er lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi, sem lagt er til að auglýst verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Undir þessum lið eru einnig lagðar fram til kynningar tillögur að fyrirkomulagi gatnamóta og lóðarmarka miðbæjarreits, við Hrannarstíg og Grundargötu, sem tekur mið af nýbyggingu á miðbæjarreit. Thijs Kreukels samgönguverkfræðingur hjá VSB verkfræðistofu vann þar undirbúningsvinnu og var hann gestur fundarins undir þessum lið að hluta.



Thijs var boðinn velkominn á fundinn. Hann, Nanna og Sigurður fóru yfir hugmyndir um lóðarstærð og fyrirkomulag við lóðarmörk. Málið er til frekari vinnslu síðar.

---

Farið yfir framlagðar umsagnir sem bárust á auglýsingatímanum.

Þar sem um er að ræða lýsingu og vinnslutillögu er ekki þörf á að bregðast sérstaklega við athugasemdum á þessu stigi. Þær hafa þó verið hafðar til hliðsjónar við áframhaldandi vinnu og við gerð tillögu um breytingu á aðalskipulagi, sem nú liggur fyrir fundinum. Einnig verða þær hafðar til hliðsjónar við gerð deiliskipulags þegar þar að kemur.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi, sem auglýst verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að auglýsa hana, að fengnu samþykki bæjarstjórnar.

Gestir

  • Thijs Kreukels, VSB

2.Iðnaðarsvæði - tillaga að deiliskipulagi 2021

Málsnúmer 2101038Vakta málsnúmer

Skipulagsstofnun hefur nú lokið yfirferð yfir aðalskipulagsbreytingu og nýtt deiliskipulag iðnaðarsvæðisins vestan Kvernár.



Lagt fram til upplýsingar.



Skipulags- og umhverfisnefnd fagnar því að þessu skipulagsferli sé að ljúka.

Skipulagsstofnun mun í framhaldinu auglýsa aðalskipulagsbreytinguna í B-deild Stjórnartíðinda.

Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulagsfulltrúa að gera lítilsháttar lagfæringar á deiliskipulaginu, í samræmi við ábendingar Skipulagsstofnunar, og að því loknu að auglýsa það í B-deild Stjórnartíðinda og á vef bæjarins og vekja athygli á tilheyrandi kærufresti.

3.Grund 2 - Breyting á Aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag

Málsnúmer 2311006Vakta málsnúmer

Auglýsingatíma tillögu að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagstillögu á vinnslustigi lauk 25. apríl sl.



Lögð fram samantekt með yfirliti yfir þær umsagnir/athugasemdir sem bárust og tillögur að viðbrögðum við þeim.



Alls bárust átta athugasemdir frá eftirtöldum aðilum og voru þær samhljóða við bæði aðalskipulagsbreytinguna og deiliskipulagstillöguna;



- Veitur

- Náttúruverndarstofnun

- Minjastofnun Íslands

- Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

- Vegagerðin - Vestursvæði

- Landsnet

- Rarik

- Slökkvilið Grundarfjarðar



Sjá má athugasemdir/umsagnir í samantektarblaði í fylgiskjali og einnig í Skipulagsgátt.

Ábendingar á þessu stigi eru hafðar til hliðsjónar og ekki þarf að svara þeim formlega. Farið hefur verið yfir umsagnir og athugasemdir sem bárust á kynningartíma tillögunnar.

Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja viðbrögðum nefndarinnar eftir, í samvinnu við
framkvæmdaraðila.

4.Reglur um umgengni

Málsnúmer 2502017Vakta málsnúmer

Lögð fram að fengnum athugasemdum frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, lokatillaga að samþykkt um umgengni og þrifnað utanhúss í Grundarfirði, í samræmi við bókun 266. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.



Skipulags- og umhverfisnefnd gerir engar athugasemdir við framkomna tillögu að samþykkt um umgengni og þrifnað og vísar málinu til bæjarstjórnar til samþykktar.

5.Sólbakki A fyrirspurn um breytta notkun húsnæðis

Málsnúmer 2504010Vakta málsnúmer

Lögð fram fyrirspurn frá eiganda Sólbakka um að skráningu frístundahúss á lóðinni verði breytt í íbúðarhús.



Húsið sem um ræðir stendur á Sólbakka, lóð A, og er deiliskipulagt sem frístundahús samkvæmt breyttu deiliskipulagi sem tók gildi á árinu 2021. Áður var í gildi deiliskipulag frá árinu 2013 þar sem gert var ráð fyrir íbúðarhúsi, einu á hvorri lóð (A og B-lóð).

Til að breyta megi skráningu hússins þyrfti að breyta deiliskipulagi og gera ráð fyrir íbúðarhúsi, sem ekki er gert ráð fyrir nú.
Þar sem áður hefur verið í gildi samþykkt deiliskipulag þar sem gert var ráð fyrir íbúðarhúsi, telur skipulags- og umhverfisnefnd að breyting sem gerði ráð fyrir slíku aftur teldist óveruleg breyting deiliskipulags, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemd við slíka óverulega breytingu sem gerð yrði á deiliskipulagi, en bendir á að þetta sé háð endanlegu samþykki bæjarstjórnar.

Ennfremur leggur nefndin áherslu á að aðrar og meiri kröfur séu gerðar um íbúðarhús en frístundahús í byggingarreglugerð og beinir því til fyrirspyrjanda að ráðfæra sig við byggingarfulltrúa, enda yrði íbúðarhúsið að uppfylla ákvæði byggingarreglugerðar sem slíkt.

6.Lóðarblað Smiðjustígur 9

Málsnúmer 2504017Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ný merkjalýsing eftir endurmælingu á lóðinni við Smiðjustíg 9.



Lóðarblað verður lagt fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir engar athugasemdir við merkjalýsinguna fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar til samþykktar.

7.Lóðarblað Borgarbraut 6

Málsnúmer 2504003Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ný merkjalýsing eftir endurmælingu á lóðinni við Borgarbraut 6.



Lóðarblað verður lagt fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

Skipulags- og umhverfisnefnd gerir enga athugasemd við merkjalýsinguna fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar til samþykktar.

8.Önnur mál umhverfis- og skipulagssviðs

Málsnúmer 2201020Vakta málsnúmer

Þjónustufulltrúi skipulags- og byggingarfulltrúa greinir frá því að hugsanlega verði hægt að stytta grenndarkynningu vegna framkvæmda að Nesvegi 5 í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010 áður en frestur til að gera athugasemdir rennur út 15. maí nk.



Engin önnur mál.
Formaður slítur fundi 16:38. Lokið er við fundargerð að loknum fundi og rafræns samþykkis aflað hjá fundarmönnum.

Fundi slitið - kl. 16:38.