311. fundur 07. maí 2026 kl. 14:00 - 17:08 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK) forseti bæjarstjórnar
  • Garðar Svansson (GS)
  • Davíð Magnússon (DM)
    Aðalmaður: Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Loftur Árni Björgvinsson (LÁB)
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Forseti setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Ársreikningur 2025

Málsnúmer 2604005Vakta málsnúmer

Síðari umræða um ársreikning 2025. Lagðir fram ársreikningar með smávægilegum leiðréttingum sem gerðar voru milli umræðna og farið var yfir á 654. fundi bæjarráðs.

Jónas Gestur Jónasson lögg. endurskoðandi og Marinó Mortensen frá Deloitte sátu fundinn undir þessum lið.

Þeir kynntu ársreikning Grundarfjarðarbæjar 2025, sem tekinn er til síðari umræðu, endurskoðunarskýrslu og samanburð á ársreikningum og ýmsum kennitölum sveitarfélaga á Snæfellsnesi fyrir árið 2025.

Allir tóku til máls.

Ársreikningur Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2025 samþykktur samhljóða.

2.Minnispunktar bæjarstjóra

Málsnúmer 2205020Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri fór yfir minnispunkta sína, sbr. framlagt skjal.

3.Störf bæjarstjórnar á kjörtímabilinu 2022-2026

Málsnúmer 2205021Vakta málsnúmer

Fram kom hjá forseta og bæjarstjóra að bæjarstjórn hafi haldið 50 bókaða fundi á kjörtímabilinu, að þessum fundi meðtöldum, og að bæjarráð hafi haldið 65 fundi.

Einnig kom fram að íbúafjöldi í apríl var 896 manns, en 898 manns í maí.

Garðar ræddi um merkingu kjörstaða, sérstaklega m.t.t. íbúa af erlendum uppruna. Æskilegt væri að setja upp vegvísa að kjörstað fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí nk. Einnig mætti auglýsa nánar bæði utankjörfundarstað og kjörstað til hægðarauka.

Garðar ræddi einnig aukningu bílasöfnunar á lóðum íbúðarhúsa og einnig gáma við atvinnuhúsnæði. Hann telur fulla þörf á því að ný skipulags- og umhverfisnefnd fari ítarlega yfir þessi mál.

Bæjarfulltúar þökkuðu hver öðrum fyrir farsælt samstarf á kjörtímabilinu.

4.Ályktun um viðhald þjóðvega á Snæfellsnesi

Málsnúmer 2009014Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn hefur ályktað reglulega um viðhald þjóðvega síðan 2020. Frá því á 282. fundi sínum í febrúar 2024 hefur bæjarstjórn tekið þennan dagskrárlið til umræðu á hverjum einasta fundi sínum. Bæjarstjórn harmar að ástand þjóðveganna hafi ekki lagast meira en raun ber vitni, þrátt fyrir brýna þörf fyrir umbætur og óskir íbúa á svæðinu. Bæjarstjórn vonast til þess að umbætur verði á mikilvægum innviðum Snæfellinga á allra næstu misserum.

Samþykkt samhljóða.

5.Bæjarráð - 653

Málsnúmer 2604002FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 653. fundar bæjarráðs.
  • 5.1 2604005 Ársreikningur 2025
    Lagður fram ársreikningur Grundarfjarðarbæjar, samstæðu og sjóða fyrir árið 2025.
    Bæjarráð - 653 Bæjarráð samþykkir með áritun sinni að vísa ársreikningnum til bæjarstjórnar og telst hann tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í bæjarstjórn.

    Samþykkt samhljóða.

6.Bæjarráð - 654

Málsnúmer 2604003FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 654. fundar bæjarráðs.
  • Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.
    Bæjarráð - 654
  • 6.2 2602002 Greitt útsvar 2026
    Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-mars 2026.
    Bæjarráð - 654 Samkvæmt yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 10,3% miðað við sama tímabil í fyrra.
  • 6.3 2604005 Ársreikningur 2025
    Lögð fram endurbætt gögn, frá fyrri umræðu sem fram fór 9. apríl sl. í bæjarstjórn. Um er að ræða leiðrétta framsetningu, en enga breytingu á fjárhæðum.

    Bæjarráð - 654
  • Í tengslum við afgreiðslu ársreiknings 2025 hefur HLH ehf. tekið saman gögn og greiningar um fjárhagsstöðu bæjarins. Lagt fram til skoðunar og umræðu.

    Arnar Haraldsson hjá HLH ehf. er gestur fundarins undir þessum lið, í fjarfundi.
    Bæjarráð - 654 Lögð var fram fjárhagsgreining HLH Ráðgjafar á rekstri, skuldum og sjóðsstreymi Grundarfjarðarbæjar fyrir tímabilið 2002?2029. Farið var yfir greininguna og hún rædd.

    Úr texta Arnars:

    Niðurstöður sýna jákvæða rekstrarniðurstöðu 2025, veltufé yfir 10% og skuldaviðmið innan lögboðinna marka. Árangur hefur náðst með lækkun skuldahlutfalls A-hluta en mikilvægt að halda þeirri vegferð áfram, A-hlutinn er í dag 120%.
    Afkoma sveitarfélagsins er viðkvæm fyrir ytri skilyrðum og ekki er mælt með frekari skuldaaukningu A-hluta ? mælt er með áframhaldandi niðurgreiðslu skulda og að eiginfjárframlag til nýrra stórfjárfestinga verði ekki lægra en 50% á næstu árum.

    Arnari var þakkað fyrir komuna og góða yfirferð.
  • Lagt fram yfirlit um núverandi laun bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Grundarfjarðarbæ. Bæjarráð - 654 Bæjarráð leggur til að laun bæjarfulltrúa og nefndarmanna verði óbreytt.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
  • Ákvörðun um gjaldfrjáls afnot stjórnmálasamtaka af húsnæði bæjarins, rætt í framhaldi af umræðu um málið á fundi bæjarstjórnar 9. apríl sl.
    Bæjarráð - 654 Bæjarráð leggur til að stjórnmálasamtök, þ.e. listar sem eiga fulltrúa í sveitarstjórn hverju sinni, fái gjaldfrjáls afnot af húsnæði bæjarins fyrir almenna, opna fundi um bæjarmálefni (ekki starf kosningamiðstöðvar), tvisvar á ári hverju, en fjórum sinnum á kosningaári. Auk þess verði gjaldfrjáls afnot af húsnæði bæjarins ef þar er haldinn sameiginlegur, opinn framboðsfundur þeirra lista sem bjóða fram.

    Jafnframt lagt til að fjárframlag til stjórnmálasamtaka verði 250 þús. kr. á kjörtímabili (greitt á kosningaári), en það hefur verið 150 þús. kr. á hvert framboð í nokkuð langan tíma.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
  • Lögð fram til kynningar og afgreiðslu drög að verklagsreglum vegna tilkynninga ef starfsfólk slasast við vinnu sína eða til og frá vinnu.

    Unnið skv. fyrirmynd annarra sveitarfélaga.
    Bæjarráð - 654 Bæjarráð samþykkir framlögð drög, sem fer til umsagnar í stofnunum bæjarins.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Vísað er til 10. liðar þessa fundar.
  • Lagðar fram inntökureglur Leikskólans Sólvalla frá 2024 ásamt tillögum að breytingum á reglunum. Breytingarnar eru smávægilegar og leiða af þeim breytingum sem eiga sér stað á leikskólastigi.
    Bæjarráð - 654 Bæjarráð samþykkir tillögur að breytingum á reglunum. Bæjarstjóri mun kynna breytingarnar fyrir skólanefnd.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagt fyrir yfirlit yfir kostnað við viðbótaropnun Sundlaugar Grundarfjarðar og tillaga/hugmynd til skoðunar:

    Til skoðunar er hvort hafa eigi lengri opnun sundlaugar á föstudagskvöldum í sumar, þ.e. í staðinn fyrir að loka kl. 21, þá verði opið til kl. 23:00.

    Tilgangurinn er sá að laða ungt fólk (ungmenni) í sund á föstudagskvöldum - hafa mætti sérstaka stemningu, t.d. tónlist eða annað, a.m.k. stundum.

    Einnig gæti þetta verið kjörið tækifæri fyrir gönguhópa og slíka, sem koma seint heim í áningarstað, að skella sér í sund.

    Þetta yrði gert í samtals 11 skipti, þ.e. fyrst föstudag 5. júní (sjómannadagshelgi) og síðasti langi opnunardagur 14. ágúst (föstudagur eftir almyrkvann, sem er 12. ágúst).

    Launakostnaður vegna þessarar viðbótaropnunar er áætlaður rúmlega 360 þús. kr.
    Bæjarráð - 654 Bæjarráð samþykkir tillögu að viðbótaropnun sundlaugar á ofangreindu tímabili. Bæjarráð er jákvætt fyrir því að bæta við lengri opnunartíma fleiri föstudaga í maí og ágúst, ef tök eru á.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagð fram erindi menningarnefndar um félagsmiðstöð og aðstöðu fyrir félagsstarf.
    Bæjarráð - 654 Bæjarstjóri sagði frá vinnu sem er í gangi við að finna annað húsnæði fyrir félagsmiðstöð unglinga og aðstöðu fyrir félagsstarf. Málið er í vinnslu.
  • 6.11 2601004 Framkvæmdir 2026
    Yfirferð ýmissa framkvæmdaverkefna og fleiri verkefna.

    Nanna, Hinrik og Örvar voru gestir fundarins, hvert í sínu lagi.

    Bæjarráð - 654 Örvar fór m.a. yfir stöðu framkvæmda í Sögumiðstöð, en þar eru að hefjast endurbætur á innsta rýminu, syðst í húsinu. Lagfæra þarf ástand veggja og ganga frá raflögnum í samræmi við auknar kröfur um frágang og um notkun rýmis.

    Hann sagði frá skoðun á þaki grunnskóla. Bæði þurfti að laga í kringum loftnetsmastur sem Míla fékk leyfi til að setja upp á þaki fyrir nokkrum árum og er það gert á kostnað Mílu, en einnig var farið í skoðun á þaki „gamla skóla“ til að meta leka sem orðið hefur vart við í skólanum. Verið er að meta ástand þaks og þörf fyrir viðgerðir.

    Hann sagði frá því að leitað hafi verið tilboða í nýja húseiningu (gámaeiningu) fyrir starfsmannaaðstöðu á gámastöðinni við Ártún 6, en gert er ráð fyrir endurnýjun hennar í fjárhagsáætlun 2026.
    Hann sagði einnig frá því að verið er að undirbúa utanhússframkvæmdir á samkomuhúsinu. Þar á að endurnýja glugga, mála húsið að utan og bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða.

    Hinrik fór yfir ýmis mál tengd íþróttamiðstöð og íþróttavelli. Hann sagði frá því að um miðjan apríl sl. hafi verið auglýst almennt útboð á utanhússviðgerðum á íþróttahúsi. Klæða á allt húsið og austurhlið tengigangs milli íþróttahúss og grunnskóla, skipta á um megnið af gluggum, en búið var þó að skipta um hluta af gluggum í fyrra og hittifyrra. Einnig er þakviðgerð inní verkinu. Tilboðsfrestur er til 6. maí.

    Hinrik fór yfir undirbúning að því að koma upp blakvelli utanhúss, á flötinni fyrir neðan hoppubelgssvæðið ? skv. erindi sem bæjarstjórn hafði samþykkt frá Ungmennafélaginu á sl. ári.
    Einnig fór hann yfir mönnunarmál í sundlaug/íþróttahúsi.

    Nanna sagði frá ársfundi Icewater-verkefnisins, sem haldinn var í Grundarfirði í síðustu viku og heppnaðist mjög vel. Það var fyrsti ársfundur í verkefninu, sem hófst í fyrra og stendur út árið 2030. Hingað mættu yfir 60 manns frá þeim aðilum sem taka þátt í þessu stóra verkefni.

    Nanna fór m.a. yfir fyrirhugaðar framkvæmdir á leiksvæðum, en í undirbúningi eru frekari umbætur á skólalóðum grunnskóla og leikskóla. Á grunnskólalóð á að bæta lýsingu, setja upp „boltagildru“ ? þ.e. girðingu neðst í skólalóð, út við göngusvæðið við Borgarbraut og stækka á sandkassa. Á lóð leikskóla á að gera „drullu-eldhús“ og náttúrulegt svæði í hluta lóðar, ofl.

    Hún fór yfir og leitaði álits bæjarráðs á forgangsröðun framkvæmda við aðra leikvelli bæjarins, en hún vill leggja áherslu á að bæta leiksvæðið við Sæból (bak við blokk) í sumar.

    Nanna sagði frá framkvæmdum við blágrænu regnbeðin. Hún sagði frá vinnu við að efla umferðaröryggi við grunnskóla, en unnið er eftir áætlun um einfaldar aðgerðir þar að lútandi, sem áður höfðu verið samþykktar í skólanefnd, skipulagsnefnd og bæjarráði. Hún ræddi einnig um tillögur til að bæta umhverfið í kringum íþróttahús, með lagningu stíga ? og sagði frá því að smíða ætti færanleg blómaker fyrir sundlaugargarð.

    Nanna fór yfir stöðu gatna og gangstétta á Borgarbraut og Hrannarstíg. Tveir verktakar eru með gangstéttaframkvæmdir sem ekki náðist að klára á sl. ári, sem þeir munu klára nú í vor, m.a. á austurhluta Hlíðarvegar, í Sólvöllum o.fl.

    Fengist hefur samþykki Vegagerðarinnar til að hækka/bæta hraðahindrunina sem gerð var sl. sumar austast á Grundargötu, en hún er of lág.

    Nanna og Björg sögðu frá samskiptum við Vegagerðina, en á síðasta ári óskuðu þær eftir f.h. bæjarins að Vegagerðin myndi „endurhanna“ hraðalækkandi aðgerðir á Grundargötu, breidd og útfærslu götunnar og fleira sem tengist umferðaröryggi. Árið 2005-6 stóð Vegagerðin einmitt fyrir slíkri hönnun og framkvæmdum, sem juku umferðaröryggi Grundargötu, en þörf er á að betrumbæta það núna, 20 árum síðar. Vegagerðin hefur nú samþykkt að fara í þessa vinnu og áttu þær fund með verkfræðingi Vegagerðarinnar fyrir stuttu. Mörg verkefni bæjarins hanga á því að útfærsla Grundargötu verði kláruð að þessu leyti, af hálfu Vegagerðarinnar.

    Þær sögðu einnig frá því að í gangi hefði verið vinna við finna heppilegustu legu göngustígs, frá þéttbýli og út að Kirkjufellsfossi, en stígur lægi í gegnum land bæjarins (Hellnafellsland) og land Kirkjufellsjarðarinnar. Landeigendur Kirkjufells þyrftu að samþykkja allar tillögur um slíkan stíg og hvar honum væri best fyrirkomið með tilliti til öryggis, upplifunar og hagsmuna landeigenda, sem og m.t.t. reiðstígs sem liggur um landið.

    Björg sagði frá því að sl. vetur hafi verið útbúin hönnunargögn, unnin af EFLU, vegna gatnagerðar í næsta áfanga (Hjallatún og inní Grafartún og hliðruð tenging við þjóðveg) á iðnaðarsvæðinu vestan Kvernár. Reiknað væri með framkvæmdum við það í haust/síðari hluta árs, og að verðkönnun færi fram.

    Hún sagði frá því að nýr lóðavefur hafi verið settur í loftið um sl. mánaðamót, þar sem gerð er grein fyrir lausum lóðum í bænum með haldgóðri lýsingu lóðanna og uppbyggingarsvæða (miðbæjarreitur, Nesvegur 4) og Háubakka, þar sem deiliskipulag og aðalskipulagsbreyting eru í auglýsingaferli.

    Örvari, Hinrik og Nönnu var þakkað fyrir þeirra innlegg á fundinum.

  • Dagskrárliðurinn var geymdur og tekinn fyrir í lok fundarins.


    Lögð fram gróf kostnaðaráætlun unnin af EFLU fyrir Grundarfjarðarbæ um byggingu ákveðinnar tegundar íþróttahúss.

    Bæjarráð - 654 Í forsendum sem bæjarstjórn lagði upp, var óskað eftir áætlun um kostnað við að byggja um 1.200 m2 stórt hús, u.þ.b. 30 x 40 metrar, en að einnig yrði gerð grein fyrir hve mikið kostnaður breyttist ef farið væri af stað með 200 m2 stærra eða minna hús. Húsið væri staðsett í námunda við grunnskólann.
    Undirstöður og grind hússins væru hannaðar með það fyrir augum að unnt yrði að stækka (lengja) húsið síðar. Í húsinu verði gert ráð fyrir (a) valkosti með gervigras og (b) valkosti með hefðbundnu gólfi.

    Heiðrún Ösp og Jóhannes frá Eflu fóru yfir áætlunina og svöruðu spurningum bæjarráðsfulltrúa.

    Að lokinni yfirferð var þeim þakkað fyrir komuna og góðar upplýsingar.

    Bæjarráð stefnir að því að kynna þessi gögn fyrir stjórn UMFG.
  • Tillaga er um að Grundarfjarðarbær styrki UMFG um tiltekna fjárhæð til að hægt sé að ráða framkvæmdastjóra félagsins. Um væri að ræða nýjan styrk, til viðbótar áður samþykktum fjárstuðningi og öðrum stuðningi við félagið.

    Lögð fram á fundinum samantekt íþrótta- og tómstundafulltrúa um styrki annarra sveitarfélaga, til samanburðar. Einnig lögð fram samantekt UMFG á mögulegum verkefnum sem slíkur framkvæmdastjóri félagsins myndi sinna.

    Bæjarráð - 654 Hinrik fór yfir samantekt um styrki annarra sveitarfélaga.

    Bæjarráð samþykkir árlegt viðbótarframlag til UMFG að fjárhæð 2,5 millj. kr., til reksturs, sem yrði verðbætt árlega miðað við vísitölu neysluverðs.

    Gerður yrði viðauki við fjárhagsáætlun ársins sem lagður yrði fyrir bæjarstjórn.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagður fram tölvupóstur frá ritara Skógræktarfélags Eyrarsveitar, þar sem áréttað er efni erindis sem snýst um að Skógræktarfélagið vill fá afnot af svæði úr landi Hallbjarnareyrar (ríkisjörð) til að rækta birkiskóg. Bréfritari telur að ónóg gögn hafi legið fyrir fundi bæjarráðs 18. desember sl. þegar erindið var tekið fyrir og afgreitt.
    Bæjarráð - 654 Í erindi Skógræktarfélagsins sem fyrir lá, var nefnt að Ríkiseignir væru jákvæðar fyrir verkefninu en vildu fá afstöðu bæjarins og ábúenda. Skipulagsfulltrúi átti samtal við Ríkiseignir (FSRE) og fyrir lágu minnispunktar af því samtali.
    Spurt var hvort breyta þyrfti landnotkun í skipulagi og hvort bærinn væri jákvæður gagnvart þessari tillögu.

    Afgreiðsla bæjarráðs 18. desember sl. var þannig:

    "Í ljósi framangreindra upplýsinga telur bæjarráð ekki tímabært að efna til samningsviðræðna við ríkið um land í þessu skyni."

    Afgreiðsla bæjarráðs 18. desember sl. endurspeglar afstöðu bæjarfulltrúa til málsins, og byggir á mati út frá þeim skyldum sem myndu leggjast á sveitarfélagið samhliða slíku verkefni, þ.e. einkum um greiningu og mögulegar skipulagsbreytingar.

    Áréttað er að bæjarráð var ekki að taka afstöðu til þess hvort Skógræktarfélaginu væri heimilt að semja við FSRE, en fyrir liggur að til þess þarf ekki samþykki bæjarstjórnar.

    Bæjarráð ítrekar fyrri bókun sína, um að það leggi áherslu á gott samstarf við Skógræktarfélagið um uppbyggingu á þeim svæðum sem þegar eru undir í skógrækt á vegum félagsins.

  • 6.15 2604013 Beam verkefni
    Lögð fram gögn frá íþrótta- og tómstundafulltrúa, um Erasmus-verkefni sem ber heitið BEAM: Building Entrepreneurial Attitude and Mindset.

    Markmið þess er að þróa hagnýtt og notendavænt stuðningslíkan sem hjálpar til við að efla frumkvöðlahugsun, sköpun, þátttöku og samfélagslega virkni ungs fólks í dreifbýli.

    Hverjir henta í verkefnið?
    Starfsfólk sem vinnur með ungmennaráðum
    Æskulýðsráðgjafar eða leiðbeinendur
    Tómstunda- og félagsmálafræðingar
    Starfsfólk sem vill efla frumkvöðlafærni og þátttöku ungs fólks

    Snæfellsbær sótti um þetta verkefni/styrk, og hefur boðið nágrönnum að vera með, þ.e. Grundarfjarðarbæ og Sveitarfélaginu Stykkishólmi, en einnig eru í verkefninu sveitarfélög í Suður-Eistlandi.
    Bæjarráð - 654 Hinrik fór yfir verkefnið og kynnti þátttöku Grundarfjarðarbæjar í því. Bæjarráð tekur undir með íþrótta- og tómstundafulltrúa og þakkar Snæfellsbæ fyrir að bjóða nágrönnum sínum þátttöku í verkefninu.

  • Lagður fram til kynningar undirritaður kaupsamningur um fasteignina.
    Bæjarráð - 654
  • Lagt fram til kynningar ársuppgjör Listvinafélags Grundarfjarðarkirkju fyrir árið 2025.
    Bæjarráð - 654
  • Lögð fram til kynningar fundargerð og fundargögn aðalfundar Cruise Iceland sem haldinn var 12. mars sl. Einnig lagður fram ársreikningur 2025.
    Bæjarráð - 654

7.Bæjarráð - 655

Málsnúmer 2605002FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 655. fundar bæjarráðs.
  • Lögð fram valkostagreining á lagningu göngu- og hjólreiðastígs úr þéttbýli og að Kirkjufellsfossi, sem unnið hefur verið að með upplýsingum frá Vegagerðinni, m.a. um kostnað. Í greiningunni er tekin afstaða til samspils göngustígs við reiðveg, þjóðveg og fleira.

    Nanna Vilborg Harðardóttir er gestur fundarins undir þessum lið.

    Bæjarráð - 655 Nanna og Björg kynntu framlagða greiningu. Fimm valkostir eru um legu göngu- og hjólreiðastígs, ca. frá rimlahliði við Hellnafell og út að Kirkjufellsfossi. Stígur liggur að hluta til um land í eigu bæjarins, en þó að mestu í gegnum land jarðarinnar Kirkjufells.

    Bæjarstjóri hefur kynnt/sent landeigendum Kirkjufells þessa greiningu.

    Grundarfjarðarbær hefur átt loforð um framlag frá Vegagerðinni (ríki) sem er mótframlag við kostnað bæjarins við lagningu göngustígs, en ljóst er að sú fjárhæð nægir ekki nema fyrir hluta kostnaðar við dýrari valkostina, eins og stendur.

    Fram kom hjá bæjarstjóra að Framkvæmdasjóður ferðamannastaða féllst ekki á styrkbeiðni bæjarins til lagningu göngustígs, en sótt var um í október sl.

    Lagt fram, og málið verður unnið áfram með landeigendum og hagaðilum.

    Bókun fundar Rætt um valkostagreiningu sem lögð fram var fram til kynningar á þessum fundi bæjarráðs, um legu göngustígs út þéttbýli að Kirkjufellsfossi.

    Allir tóku til máls.

    Skýrslan er í kynningu hjá landeigendum og verður málið unnið áfram með þeim og hagaðilum.
  • Fulltrúum UMFG var boðið til fundarins.

    Þau voru boðin velkomin.

    Kynnt var kostnaðaráætlun sem Efla vann fyrir bæjarstjórn, um byggingu 1200-1400 m2 íþróttahúss, út frá tilteknum forsendum. Valkostir voru kostnaðarreiknaðir. Ekki er unnið með ákveðna staðsetningu húss í þessum greiningum.

    Bæjarráð - 655 Einnig kynnt að bæjarstjórn lét gera næmnigreiningu um fjárhagsþol bæjarins til byggingar húss allt að 800 millj. kr. Niðurstaðan er að slík fjárfesting er fjárhag bæjarsjóðs ofviða. Forgangsverkefni er að auka tekjur bæjarsjóðs, til að eiga svigrúm til lækkunar skulda og frekari fjárfestinga eins og þessarar.

    Farið yfir og rætt um valkosti og kostnað.

    Málið er áfram til skoðunar og vilji bæjarráðs/bæjarstjórnar er að vinna áfram að undirbúningi, í samvinnu við UMFG.

    Fulltrúum UMFG var þakkað fyrir komuna og góðar umræður.

  • Lögð fram beiðni sýslumanns um umsögn um umsókn um rekstrarleyfi fyrir íbúð að Grundargötu 12B.

    Einnig lagt fram minnisblað lögmanns bæjarins um málið og nýlega breytingu á lögum sem málið varðar.

    Bæjarráð - 655 Aflað var ráðgjafar lögmanns, í ljósi þeirra lagabreytinga sem gerðar voru á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald í apríl 2024, en kanna þarf betur réttarstöðuna hvað varðar útgáfu gistileyfis á þessu svæði.

    Bæjarstjóra falið að skoða nánar með lögmanni.

  • Lagt fram ársuppgjör GVG fyrir starfsárið 2024-2025.
    Einnig fundargerð aðalfundar félagsins.
    Bæjarráð - 655

8.Skipulags- og umhverfisnefnd - 279

Málsnúmer 2604007FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 279. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Í vinnslu er tillaga að breyttu deiliskipulagi Skerðingsstaða, sbr. fyrirspurn sem afgreidd var á 278. fundi nefndarinnar 26. mars sl.


    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Farið yfir stöðu málsins.

    Sótt hefur verið um byggingarleyfi fyrir byggingu fimm frístundahúsa í landi jarðarinnar, í samræmi við gildandi deiliskipulag innan byggingarreits sem ætlaður er fyrir frístundahús. Það sé þó háð samþykki landeiganda.

    Tillaga um breytingu deiliskipulags er í vinnslu, skv. upplýsingum frá fulltrúa umsækjanda.

  • Í kjölfar kaupa Grundarfjarðarhafnar á Nesvegi 4 er óskað eftir breytingu á lóðarmörkum eignarinnar, þannig að hluti lóðar, sem notaður hefur verið undir bílastæði að sunnanverðu, verði hluti af svæði sem í deiliskipulagstillögu er nú nefnt „hafnartorg“. Lóðin minnkar þá skv. framlagðri tillögu. Samhliða verði deiliskipulagsmörkum breytt.

    Tilgangur breytingarinnar er að nýta betur svæðið sem áður var bílastæði við Nesveg 4 og bæta flæði gangandi umferðar til og frá hafnarsvæði að miðbæ og auka umferðaröryggi, með því að tengja það betur við „hafnartorgið“.

    Lóðin að Nesvegi 4 er hluti af Deiliskipulagi Framness austan við Nesveg, en hafnartorgið eða opna svæðið milli hafnarhúss að Nesvegi 2 og hússins að Nesvegi 4 er hluti af Deiliskipulagi Grundarfjarðarhafnar, sem nú er í vinnslu.
    Lagt er til að deiliskipulagsmörkum verði breytt samhliða þessari breytingu á lóðarmörkum Nesvegar 4, þannig að „bílastæðahlutinn“ falli innan marka nýs Deiliskipulags Grundarfjarðarhafnar sem er í vinnslu, en ekki innan deiliskipulags hafnarsvæðisins (Framnes austan við Nesveg). Hafnartorgið verði þannig skýrari heild.

    Skipulagsfulltrúi óskar eftir umboði til að breyta deiliskipulagi í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010, og ennfremur óskar hann eftir afstöðu nefndarinnar til þess hvort grenndarkynning þurfi að fara fram vegna breytingar og hverjir séu þá grenndaraðilar.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að skipulagsfulltrúi fái umboð til að breyta lóðarmörkum Nesvegar 4 skv. framlagðri tillögu og gera nýja merkjalýsingu fyrir Nesveg 4. Einnig samþykkir nefndin að skipulagsfulltrúi fái umboð til að breyta deiliskipulagi hafnarsvæðis (Framnes austan við Nesveg) í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010 og á móti, að láta breyta mörkum Deiliskipulags Grundarfjarðarhafnar sem er í vinnslu.

    Nefndin telur grenndarkynningu í samræmi við ákvæði 2. mgr. 43. gr. óþarfa þar sem ekki er um neinar framkvæmdir að ræða, heldur einungis breytingu á mörkum. Sömuleiðis sé breyting á notum umrædds svæðis ekki slík að kalli á grenndarkynningu. Hafa megi í huga, að Deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar sé enn í vinnslu og telji einhver sig hafa grenndarhagsmuni vegna breytingar þessa rýmis, gefst kostur á að koma með athugasemdir þegar deiliskipulagstillaga svæðisins verður auglýst.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Lögð fram fyrirspurn frá The First Iceland Mint ehf. um hvort stöðuleyfi fáist fyrir söluskúr/sölustarfsemi á svæði nærri Kirkjufelli í landi Sólbakka/Háls. Svæðið er ekki deiliskipulagt.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Umrætt svæði, sem óskað er eftir að söluskúr/aðstaða muni standa á, liggur fast uppvið aðliggjandi reiðveg. Svæðið er ekki deiliskipulagt. Deiliskipulag Háls/Sólbakka nær ekki yfir svæðið, en skv. aðalskipulagi er þetta innan skilgreinds landbúnaðarlands.

    Vegna framlagðrar fyrirspurnar telur skipulags- og umhverfisnefnd að ekki séu heimilar forsendur fyrir veitingu stöðuleyfis fyrir sölustarfsemi á umræddum stað/svæði.

    Svæðið sem um ræðir hefur nýlega verið merkt inn á kortavef Google Maps sem bílastæði.
    Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulagsfulltrúa að afla upplýsinga frá landeigendum um þá landnotkun.

  • Ugla Handverk sækir um stöðuleyfi á miðbæjarreit, fyrir gamlan en ökufæran strætisvagn sem áður hefur verið með starfsemi á hafnarsvæði valda daga á hverju sumri.
    Óskað er eftir að láta vagninn standa allt sumarið á miðbæjarreit.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Skipulags- og umhverfisnefnd telur að huga þurfi að umgjörð miðbæjarreits í heild sinni vegna fjölgunar söluvagna á svæðinu.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að veita Uglu handverk ehf. stöðuleyfi á miðbæjarreit, með fyrirvara um að sölusvæðið verði stækkað innan miðbæjarreitsins og nýting lóðanna Hamrahlíðar 6 og 8 verði aukin - og er það tillaga nefndarinnar til bæjarstjórnar.

    Að fenginni afgreiðslu bæjarstjórnar verði starfsmönnum skipulags- og umhverfissviðs falið að ræða við stöðuleyfishafa á miðbæjarreit vegna fjölgunar söluvagna á svæðinu. Ekki er talin þörf á grenndarkynningu vegna þessa, þar sem reiturinn er á skipulögðu miðbæjarsvæði, sem heimilar slíka starfsemi. Skipulagsfulltrúa er þó falið að upplýsa eigendur nærliggjandi lóða á Grundargötu og Hamrahlíð um stöðuna.

  • Skotgrund sækir um leyfi til að stækka athafnasvæði sitt tímabundið vegna mótahalds dagana 18.-19. júlí næstkomandi. Ennfremur er sótt um leyfi til að mega loka veginum um Kolgrafafjörð (frá skotsvæðinu og yfir að Seleyrum) meðan á mótinu stendur, en Grundarfjarðarbær er veghaldari gamla þjóðvegarins um Kolgrafafjörð.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti fyrir sitt leyti sambærilega umsókn í febrúar 2025 vegna móts sem haldið var í ágúst sl.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við tímabundna lokun vegarins og stækkun athafnasvæðis út fyrir leiguland félagsins vegna mótahalds 18.-19. júlí nk. Nefndin telur mikilvægt að kynna vel lokun vegarins, komi til lokunar, og að greinilega verði gengið frá merkingum um hana við aðkomuleiðir inn í Kolgrafafjörð.

    Skipulagsfulltrúa falið að veita leyfið, með fyrirvara um afgreiðslu bæjarstjórnar.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Eigandi Hrannarstígs 34 fyrirhugar að setja svaladyr/útidyr með stórum glugga þar sem nú er stór stofugluggi á suðurhlið hússins. Sjá nánar á skissu.

    Taka þarf afstöðu til þess hvort um grenndarkynningarskylda framkvæmd sé að ræða vegna útlitsbreytingar. Ennfremur er Grundarfjarðarbær eigandi 5 íbúða af 7 í raðhúsalengjunni og þarf sem slíkur að taka afstöðu til framkvæmda sbr. lög 26/1994 um fjöleignarhús.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Skipulags- og umhverfisnefnd telur engin grenndaráhrif af útlitsbreytingunni og grenndarkynning þurfi ekki að fara fram vegna hennar. Þá gerir nefndin fyrir sitt leyti ekki athugasemd við að Grundarfjarðarbær sem eigandi annarra íbúða í raðhúsalengjunni samþykki fyrirhugaða breytingu á sameignarhluta sbr. lög 26/2994 um fjöleignarhús, en vísar því að öðru leyti til bæjarráðs/bæjarstjórnar.
  • Landeigandi í útsveit sendir fyrirspurn um afstöðu bæjarins til þess að komið verði upp fjárrétt í fjallskilasvæðinu.

    Erindi lagt fyrir nefndina sem fer skv. erindisbréfi sínu með fjallskilamálefni skv. ákvæðum laga nr. 6/1986. Einnig lagt fram minnisblað þjónustufulltrúa skipulags- og byggingarfulltrúa með upplýsingum um málefnið.

    Í dag er fé af fjalli rekið í fjárhús einnar bújarðarinnar og dregið sundur þar. Ekki er lögð fram tillaga að staðsetningu og ekki liggur fyrir afstaða annarra sauðfjáreigenda á fjallskilasvæðinu.

    Samkvæmt 49. gr. laga um fjallskil ber sveitarfélagi að tryggja að til sé fjárrétt, en af 51. gr. sömu laga má ráða að það sé samkomulagsatriði við fjallskilaskylda aðila hvort og þá hve mikill hluti kostnaðar er greiddur af sveitarfélaginu. Sjá nánar í minnisblaði.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Nefndin tekur fyrir sitt leyti jákvætt í að gerð verði rétt fyrir fjallskilasvæðið en telur jafnframt æskilegt að samkomulag sé á meðal fjallskilaskyldra aðila um staðsetningu hennar og að leitað verði eftir því. Í því sambandi óskar nefndin eftir því að viðkomandi aðilar líti til þess við gerð tillögu að staðarvali að kostnaði við réttarbyggingu sé haldið í lágmarki.

    Í umræðum nefndarinnar kom fram að við gerð nýlegrar réttar í Kolgrafafirði hafi bærinn lagt til timbur í réttargerðina auk vinnu starfsmanns úr áhaldahúsi, en að fjallskilaskyldir aðilar hafi að öðru leyti tekið að sér alla vinnu við smíði réttarinnar í góðu samkomulagi sín á milli.

    Samkvæmt 51. gr. laga nr. 6/1985 um afréttarmálefni, fjallskil og fleira skal kostnaður við byggingu nýrrar réttar greiddur af fjallskilasjóði, hafi ekki náðst samkomulag um annað, og sveitarstjórn er heimilað að leggja gjald á fjallskilaskylda aðila vegna réttarbyggingar. Komi fram beiðni um réttarbyggingu á fjallskilasvæðinu er það verkefni bæjarráðs eða bæjarstjórnar að kanna grundvöll þess að samkomulag náist milli Grundarfjarðarbæjar og fjallskilaskyldra aðila um þátttöku sveitarfélagsins í kostnaði við bygginguna.

    Bókun fundar Bæjarstjórn tekur undir afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar um málið, sem borið verður undir fjallskilaskylda aðila í útsveit.
  • Vegna mála sem hafa verið í vinnslu hjá skipulagsfulltrúa var óskað eftir samantekt lögmanns um leiðbeiningar um ferli framkvæmdaleyfisumsókna.

    Minnisblað um málefnið lagt fram til kynningar.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279
  • Skipulagsstofnun hefur opnað nýja skipulagsvefsjá þar sem má nú nálgast á sama stað allt gildandi svæðis-, aðal- og deiliskipulag, uppdrætti og greinargerðir ásamt stafrænum aðal- og deiliskipulagsgögnum.

    skipulagsvefsja.is
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279
  • Greint frá umræðum á fundi bæjarins með sérfræðingi á tæknisviði Vegagerðarinnar 17. apríl sl. vegna endurhönnunar á Grundargötu m.t.t. umferðaröryggis.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Bærinn hefur óskað eftir aðkomu Vegagerðarinnar að því að endurskoða umgjörð og frágang í Grundargötu, sem er þjóðvegur í þéttbýli, til að bæta umferðaröryggi.

    Nanna sagði frá fundi sínum og bæjarstjóra með fulltrúa Vegagerðarinnar, þar sem farið var yfir fjölmörg þau atriði sem brennur á bænum að leysa varðandi Grundargötuna og er háð því hvernig Vegagerðin skilgreinir og gengur frá Grundargötunni.

  • 8.11 2601004 Framkvæmdir 2026
    Kynnt fyrir nefndinni að útboðsgögn vegna gatnagerðar auk fleiri innviða á iðnaðarsvæðinu vestan við Kverná voru unnin sl. vetur og eru tilbúin og eru framkvæmdir fyrirhugaðar síðar á árinu. Ennfremur eru tilbúin gögn vegna gatnagerðar við Hrannarstíg 42-46 (vestan við Fellaskjól), hvoru tveggja unnið af EFLU.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Lagt fram til kynningar
  • 8.12 2511002 LIFE-ICEWATER
    Lagðar fram til kynningar fréttir af ársfundi Icewater verkefnisins, sem haldinn var í Grundarfirði 14.-15. apríl 2026.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Nanna greindi einnig frá fundi með Akureyrarbæ í dag, þar sem hún kynnti Icewater-verkefni bæjarins og stefnumörkun bæjarstjórnar um blágrænar lausnir.

    Nanna fór einnig yfir helstu verkefni sem vinna á innan Icewater í ár. M.a. sagði hún frá því að hafinn væri undirbúningur að uppbyggingu í Paimpolgarði og "Hönnugili".

  • Skipulagsfulltrúi og bæjarstjóri lögðu fram yfirlit sem þau tóku saman um helstu verkefni á sviði nefndarinnar á yfirstandandi kjörtímabili, en verkefnin hafa verið bæði mörg og stór.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Bæjarstjóri og skipulagsfulltrúi fóru yfir samantektina og verkefni tímabilsins.

    Þessi samantekt markar verklok nefndarinnar á tímabilinu, á þeim verkefnum sem bæjarstjórn setti á dagskrá og fól nefndinni að vinna að. Yfirlitið er tekið saman sem skýrsla um starfið á tímabilinu, fyrir nefnd og bæjarstjórn, auk þess sem hafnarstjórn kemur verulega að skipulagsstarfi á tímabili. Ekki síst er yfirlitið þó gert til að íbúar geti nálgast upplýsingar um verkefnin á einum stað og þær breytingar sem unnið hefur verið að í samstilltu átaki nefnda og bæjarstjórnar.

    Kynningin verður birt undir málinu.

    Haldnir hafa verið 43 bókaðir fundir á tímabilinu, að þessum meðtöldum. Auk þess hefur verið haldinn fjöldi opinna húsa og kynningarfunda um einstök skipulagsverkefni. Nefndin hefur gengist fyrir árlegu umhverfisrölti um bæinn (2 göngukvöld á hverju vori) og haldið sl. 2 ár kynningarfundi í tengslum við umhverfisröltið. Á tímabilinu var tekið upp það verklag að skipa 2 fulltrúa (af D- og L-lista) sem bakhjarla eða starfshóp fyrir stóru skipulagsverkefnin (iðnaðarsvæðið, íbúðarsvæði í Ölkeldudal og Framnesið) og gaf það fyrirkomulag betri tengingu skipulagsvinnunnar við skipulagsnefnd og bæjarstjórn. Tveir fulltrúar úr nefndinni taka nú þátt í hugmyndavinnu og undirbúningi bæjarstjórnar að útivistarsvæðum í upplandi bæjarins.

    Skipulagsfulltrúi og bæjarstjóri óskuðu eftir að koma á framfæri og bóka sérstakar þakkir og hrós til nefndarmanna fyrir gott og eljusamt starf á kjörtímabilinu, og góða samvinnu.

9.Hafnarstjórn - 30

Málsnúmer 2605001FVakta málsnúmer

Til máls tóku JÓK og GS.

GS gerði grein fyrir fundi hafnarstjórnar.
  • Hafnarstjóri fór yfir stöðu framkvæmda og helstu verkefna og starfsemi hafnarinnar.

    Sigurður Valur skipulagsfulltrúi sat undir þeim hluta þessa dagskrárliðar sem fjallaði um lóðamál og gatnagerð, og bókað er undir þessum lið.
    Hafnarstjórn - 30 Verkið "Grjótvörn við Norðurgarð" (landfylling í "krika") - verkstaða:

    Samið var við lægstbjóðanda í útboði verksins, sjá meðfylgjandi frétt. Verkið gengur ágætlega og er á áætlun. Ívið meira af grjóti mun fara í verkið heldur en gert var ráð fyrir. Verklok eru áætluð 1. júní nk. Til verður viðbótarland sem nýtist til að breikka umferðarleiðir, bæði fyrir akandi og gangandi.

    Við grjótvörnina nýju, sem færð er utar, mun koma ný flotbryggja og hefur hún verið keypt skv. tilboði Köfunarþjónustunnar til hafnarinnar. Hún kemur til landsins 15. maí nk. Búið er að staðsteypa stólpa fyrir hana, af heimaverktaka, skv. tilboði verks. Landgangur að flotbryggju er einnig smíðaður hér heima skv. tilboði sem aflað var í verkið.

    Um leið og útboðsverkinu lýkur, verður farið í að steypa plönin á svæðinu.


    Smábátahöfn - framkvæmdir:

    Unnið er að útfærslu á auknu öryggi við smábátahöfn við Suðurgarð hvað varðar aðstöðu til olíuafgreiðslu.
    Einnig er unnið að því að leggja viðbót við vatnslögn niður að smábátabryggju.
    Verið er að yfirfara öryggisbúnað við flotbryggjur til að uppfylla nýjar kröfur.
    Verið er að setja tvo nýja bekki á bílaplanið nyrst á smábátahöfn, en áhaldahús/eignaumsjón smíðaði þá úr rekavið fyrir höfnina og verða þeir festir niður á svæðinu.


    Aðrar framkvæmdir:

    Verið er að færa til annan löndunarkranann á Miðgarði, þann sem var útá enda og verður hann nú staðsettur sömu megin og hinn kraninn, eða við norðurhlið Miðgarðs.

    Skipt verður um einn stiga utan á eldri hluta Norðurgarðs.


    Lóðamál og gatnagerð á hafnarsvæði, Framnes austan við Nesveg:

    Hafnarstjóri (og skipulagsfulltrúi) sagði frá samtali sínu og skipulagsfulltrúa við Olíudreifingu um lóðamál fyrirtækisins á svæðinu. Unnið er að gerð nýrra lóðablaða/merkjalýsinga, í takt við nýtt deiliskipulag svæðisins, m.a. fyrir lóðina Nesveg 4B þar sem olíutankur stendur. Hafnarstjóri sagði frá álitaefnum í tengslum við frágang lóðablaða, en málið er í vinnslu.

    Fyrir liggur hönnun á götunni sem liggur sem framlenging á Bergþórugötu og niður fyrir hótel og netaverkstæði. Unnið er að undirbúningi/hönnun í samvinnu við Veitur og Olíudreifingu.

    Starfsmannamál:

    Þrír sumarstarfsmenn hófu störf 20. apríl og einn til viðbótar kemur um miðjan maí, en auglýst var eftir starfsfólki.


    Fjármál og landaður afli:

    Samkvæmt tölum hafnarstjóra var landaður afli fiskiskipa fyrstu fjóra mánuði ársins kominn í tæplega 11.110 tonn, en var á sama tíma í fyrra tæp 6.328 tonn.

    Hafnarstjóri sagði frá því að staðan væri sú 5. maí að tekjur væru orðnar 73 millj. kr., rekstrarkostnaður 32 millj. kr. og afkoman því 41 millj. kr. Á sama tíma fyrir ári var afkoman um 7 millj.kr.

  • Farið yfir ýmis atriði tengd móttöku skemmtiferðaskipa.

    Hafnarstjórn - 30 Fjöldi og bókanir:

    Bókaðar eru 85 heimsóknir skemmtiferðaskipa með ca. 72.000 farþegum í ár, frá 17. maí og fram yfir miðjan september.
    Til samanburðar komu 75 skip árið 2025, með um 70.000 farþega, en brúttótonnatala skipa er svipuð bæði árin.


    Miami:

    Hafnarstjóri tók þátt f.h. hafnarinnar í SeaTrade Global kaupstefnunni fyrir skemmtiferðakip á Miami um miðjan apríl sl. Hann lét vel af þátttökunni og viðskiptavinir hafnar voru almennt mjög ánægðir og jákvæðir í garð íslensku áfangastaðanna. Mun meiri jákvæðni var ríkjandi en fyrir ári síðan, þegar augljóst var að viðskiptavinir höfðu áhyggjur af mikilli hækkun innviðagjalda og afnámi tollfrelsis, sem nú hefur fundist viðunandi niðurstaða á.

    Hafsteinn, Björg og Garðar sögðu frá opnum fundi sem höfnin efndi til 28. apríl sl. Boðað var til hans til samtals um skemmtiferðaskipakomur ársins, þróunarmál og aðstöðu hafnar þessu tengt. Fundurinn var vel sóttur og komu fram gagnlegar hugmyndir og ábendingar sem unnið er nú með.

    Umræða varð m.a. um þau áform hafnarinnar, að setja upp markaðsrými á neðstu hæð gamla frystihússins, við Nesveg 4, og opna þar inní húsið frá "hafnartorginu" (opnu svæði sunnan við húsið), og leist fundarfólki almennt vel á þau áform.

  • Farið yfir ýmis atriði sem snerta eignina.

    Hafnarstjórn - 30 Breyting á fasteignamati:

    Sótt var um lækkun fasteignamats eignarinnar og hefur hún tekið gildi, en mat hússins lækkaði úr 305 í 175 millj. kr. Það mun þýða lægri stimpilgjöld við þinglýsingu afsals vegna fasteignakaupanna og ennfremur lækkun fasteignagjalda.


    Viðmið um útleigu húss:

    Við kaup fasteignarinnar var megintilgangurinn sá að eignast lóðarréttindin og möguleikann á að geta þróað og úthlutað lóðinni til framtíðaruppbyggingar á hafnarsvæðinu. Á nýjum lóðavef Grundarfjarðarbæjar er lóðin tilgreind sem tækifæri til uppbyggingar.

    Í 4. gr. hafnarreglugerðar Grundarfjarðarhafnar segir:
    Hafnarstjórn hefur ákvörðunarvald um rekstur hafnarinnar, svo sem ráðstöfun á aðstöðu,
    þ.m.t. leigu á húsnæði í eigu hafnarinnar og landi hennar.

    Hafnarstjórn mun leitast við að auglýsa lóðina sem uppbyggingarsvæði, en að sinni er ekki farið í nánari vinnu við skilgreiningu á framtíðarnýtingu hennar eða þeirrar starfsemi sem sóst verður eftir á lóðina. Það er vinna sem bíður a.m.k. fram á haustið. M.v. núverandi forsendur og ástand húss, og á meðan uppbyggingaraðili er ekki til staðar, stendur ekki til af hálfu hafnarstjórnar að rífa húsið. Að því sögðu er það stefna hafnarstjórnar að leitast við að fá tekjur út á fasteignina, á móti rekstrargjöldum, en að hafa þurfi skýr viðmið um hvernig það verði gert.

    Lögð fram og rædd drög að viðmiðum (reglum) hafnarstjórnar við útleigu rýmis í húsinu.
    Við kaup eignarinnar fylgdu samningar við tvo aðila um leigu í húsinu, auk þess sem langtímasamningur er um leigu fyrir fjarskiptamastur á þaki hússins.

    Hafnarstjórn samþykkir samhljóða meginviðmið um leigu á einstökum hlutum (rými) í húsinu og felur bæjarstjóra og hafnarstjóra að útbúa auglýsingu um rými til útleigu. Hafnarstjóra, í samráði við hafnarstjórn, falið umboð til að leigja út rými, en að gera þurfi hafnarstjórn grein fyrir umsóknum og leigusamningum.


    Framkvæmdir hafnarinnar í húsinu - markaðstorg:

    Kynntar voru hugmyndir um að taka hluta af rými á neðstu hæð hússins (suðaustur endi) þar sem gamli flökunarsalurinn var, og útbúa það þannig að hægt verði að opna fyrir sölutorg/bása þar inni í tengslum við "hafnartorg" á svæðinu úti fyrir, á meðan tímabil skemmtiferðaskipa er í gangi. Söluaðilum/þjónustuaðilum verði boðið að leigja rými/bás fyrir verslun/þjónustu, skv. nánari reglum/viðmiðum um það.

    Ennfremur verði leitast við að tengja "hafnartorg" þ.e. opna hafnarsvæðið við Nesveg (frá hafnarvog að húsinu Nesvegi 4) við bryggjur og uppí miðbæ, þannig að greiðar umferðarleiðir gangandi fólks liggi þarna í gegn en jafnframt tækifæri til að veita þjónustu við ferðamenn s.s. með sölubásum eða útistarfsemi.

    Samþykkt samhljóða að heimila hafnarstjóra að fara í minniháttar breytingar á rýminu, í samræmi við umræður fundarins, þannig að það henti fyrir þessi not. Ennfremur að veita honum heimild til að láta fjarlægja eða lagfæra utanhússklæðningu húss að hluta til.

  • Í kjölfar kaupa á Nesvegi 4 hefur höfnin óskað eftir breytingu á lóðarmörkum eignarinnar, þannig að sá hluti lóðar sem notaður hefur verið undir bílastæði að sunnanverðu, verði hluti af svæði sem í deiliskipulagstillögu er nú nefnt „hafnartorg“. Lóðin minnkar þá skv. framlagðri tillögu.
    Tillaga var gerð til skipulagsnefndar / bæjarstjórnar, og einnig um að samhliða verði deiliskipulagsmörkum breytt.

    Tilgangur breytingarinnar er að nýta betur svæðið sem áður var bílastæði við Nesveg 4 og bæta flæði gangandi umferðar til og frá hafnarsvæði að miðbæ og auka umferðaröryggi, með því að tengja það betur við „hafnartorgið“.

    Lóðin að Nesvegi 4 er hluti af Deiliskipulagi Framness austan við Nesveg, en hafnartorgið eða opna svæðið milli hafnarhúss að Nesvegi 2 og hússins að Nesvegi 4 er hluti af Deiliskipulagi Grundarfjarðarhafnar, sem nú er í vinnslu.
    Lagt er til að deiliskipulagsmörkum verði breytt samhliða þessari breytingu á lóðarmörkum Nesvegar 4, þannig að „bílastæðahlutinn“ falli innan marka nýs Deiliskipulags Grundarfjarðarhafnar sem er í vinnslu, en ekki innan deiliskipulags hafnarsvæðisins (Framnes austan við Nesveg). Hafnartorgið verði þannig skýrari heild.
    Hafnarstjórn - 30 Lagt fram til kynningar og staðfest af hafnarstjórn.
    Erindið var tekið fyrir hjá skipulags- og umhverfisnefnd í gær og samþykkt af hálfu nefndarinnar.

  • Farið yfir stöðu málsins.

    Hafnarstjórn - 30 Á fundi bæjarstjórnar í apríl sl. var samþykkt til auglýsingar skv. 41. gr. skipulagslaga tillaga skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar að Deiliskipulagi Grundarfjarðarhafnar. Um er að ræða umtalsvert breytta tillögu frá þeirri tillögu sem auglýst var 17. febrúar sl. og dregin til baka 26. febrúar sl., sbr. frétt á bæjarvef sama dag.

    Hin endurskoðaða tillaga verður þó ekki lögð fram á þessu kjörtímabili, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, heldur bíður hún nýrrar bæjarstjórnar að afloknum sveitarstjórnarkosningum. Í samræmi við hefðbundið verklag eru tillögur ekki gerðar opinberar við afgreiðslu bæjarstjórnar fyrr en þær eru opinberlega auglýstar og 6 vikna auglýsingatími hefst.

    Samkvæmt 3. gr. hafnarreglugerðar fyrir Grundarfjarðarhöfn, er það hafnarstjórn sem gerir tillögur til bæjarstjórnar um skipulagsmál á hafnarsvæðinu, enda hafi tillögurnar fengið umfjöllun skipulagsnefndar.

    Í því ljósi að tillagan hefur verið afgreidd af bæjarstjórn, en ekki enn auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga, finnst hafnarstjórn rétt að leggja til við bæjarstjórn að tillagan verði engu að síður gerð aðgengileg til skoðunar, og mætti það gerast með því að skjölin á þessum fundi verði opnuð undir fundargerðinni.

    Hafnarstjórn vill einnig í ljósi umræðna síðustu vikna, árétta að í dag er í gildi fyrir umrætt svæði deiliskipulag frá 2008 fyrir hafnarsvæðið, en þar er gert ráð fyrir neðanbyggðarvegi og landfyllingu, í takt við þáverandi og núverandi aðalskipulag. Sjá fylgiskjöl undir þessu máli. Samkvæmt því mætti leggja neðanbyggðarveg í samræmi við þetta gildandi deiliskipulag.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu hafnarstjórnar.
  • Lögð fram til kynningar beiðni um upplýsingar sem varða tilurð og rökstuðning fyrir deiliskipulagstillögu þeirri sem lögð var fram 17. febrúar sl. og um kostnað við skipulagsgerðina. Einnig svarbréf lögmanns bæjarins við bréfinu.


    Hafnarstjórn - 30
  • Lögð fram til kynningar gögn frá Cruise Iceland.
    Hafnarstjórn - 30
  • Lögð fram til kynningar samantekt Cruise Iceland í kjölfar góðrar ferðar á kaupstefnuna SeaTrade Global í Miami í apríl sl. Í samantektinni koma ennfremur fram horfur í bókunartölum fyrir landið allt.
    Hafnarstjórn - 30
  • Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands af fundum númer 476., 477. og 478, sem haldnir voru í október, nóvember og desember.
    Hafnarstjórn - 30
  • Lagðar fram til kynningar fundargerðir funda nr. 479, 480, 481 og 482 sem haldnir voru í janúar til apríl 2026.

    Hafnarstjórn - 30

10.Verklagsreglur tilkynninga um slys

Málsnúmer 2604016Vakta málsnúmer

Lagðar fram verklagsreglur vegna tilkynninga um slys starfsfólks, sem bæjarráð samþykkti á 654. fundi sínum.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi verklagsreglur.

11.Innkaupareglur

Málsnúmer 1601012Vakta málsnúmer

Lagðar fram innkaupareglur frá árinu 2016, sem lagt er til að verði lagðar niður.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að innkaupareglur frá árinu 2016 verði felldar niður og felur bæjarstjóra að undirbúa tillögu að nýjum reglum sem komi til afgreiðslu hjá bæjarstjórn.

12.Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga - Samþykkir

Málsnúmer 2605010Vakta málsnúmer

Lagðar fram til fyrri umræðu uppfærðar samþykktir FSS.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi samþykktir FSS.

13.Sorpurðun Vesturlands - Ársreikningur og umhverfisupplýsingar fyrir árið 2025

Málsnúmer 2604023Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Sorpurðunar Vesturlands vegna ársins 2025 ásamt umhverfisupplýsingum.

Til máls tóku JÓK og DM.

DM vakti athygli á því að Sorpurðun Vesturlands greiddi 33 millj. kr. í tekjuskatt til ríkisins, þar sem félagið er einkahlutafélag, en sinnir samt lögbundinni þjónustu.

14.Breiðafjarðarnefnd - Fundargerðir 2026

Málsnúmer 2603010Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 241. fundar Breiðafjarðarnefndar sem haldinn var 24. febrúar sl.



Fylgiskjöl:

15.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2026

Málsnúmer 2603004Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga;



Fundargerð 995. fundar sem haldinn var 10. mars sl.

Fundargerð 996. fundar sem haldinn var 20. mars sl.

Fundargerð 997. fundar sem haldinn var 17. apríl sl.

16.Forsætisráðuneyti - Ný atvinnustefna Íslands samþykkt

Málsnúmer 2604022Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tilkynning forsætisráðuneytisins um nýja atvinnustefnu Íslands.

17.Samband íslenskra sveitarfélaga - Íslensku menntaverðlaunin

Málsnúmer 2605007Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um tillögur til tilnefninga Íslensku menntaverðlaunanna.

Bæjarstjórn beinir erindinu til skólanefndar og skólastjórenda bæjarins.

18.Ríkislögreglustjórinn - Ráðstefna Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra 16. október 2026

Málsnúmer 2605006Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Ríkislögreglustjóra um árlega ráðstefnu Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra sem haldin verður 16. október nk.

19.Náttúruhamfaratrygging Íslands - Boð á ársfund NTÍ, 21. maí nk.

Málsnúmer 2605005Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Náttúruhamfaratryggingar Íslands (NTÍ) með boði á ársfund NTÍ sem haldinn verður 21. maí nk.

20.Cohn&Wolfe - Staða skemmtiferðasiglinga á Íslandi Morgunverðarfundur 26. maí á Vinnustofu Kjarval

Málsnúmer 2605004Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Cohn&Wolfe um morgunverðarfund um stöðu skemmtiferðasiglinga á Íslandi sem haldinn verður 26. maí nk.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 17:08.