309. fundur 12. mars 2026 kl. 14:00 - 16:27 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK) forseti bæjarstjórnar
  • Heiðrún Hallgrímsdóttir (HH)
    Aðalmaður: Garðar Svansson (GS)
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
  • Bjarni Sigurbjörnsson (BS)
  • Loftur Árni Björgvinsson (LÁB)
  • Davíð Magnússon (DM)
    Aðalmaður: Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Forseti setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Minnispunktar bæjarstjóra

Málsnúmer 2205020Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri fór yfir minnispunkta sína, sbr. framlagt skjal.

2.Störf bæjarstjórnar á kjörtímabilinu 2022-2026

Málsnúmer 2205021Vakta málsnúmer

Forseti sagði frá því að Kjördæmavika Alþingis hafi verið síðustu vikuna í febrúar. Í spjall í Ráðhúsið komu þrír þingmenn Sjálfstæðisflokks, þar á meðal Ólafur Adólfsson, þingmaður í okkar kjördæmi, en þeir voru einnig með opinn fund í Sögumiðstöðinni. Þrír þingmenn Samfylkingar buðu sveitarstjórnarfulltrúum á Snæfellsnesi í samtal á Arnarstapa 25. febrúar Fjórir fulltrúar fóru úr Grundarfirði.

Forseti sagði frá því að bæjarfulltrúar hefðu boðið gestum og gangandi í kaffispjall sl. laugardag í Sögumiðstöðinni. Góð mæting var og góðar umræður, mestmegnis um skipulagsmál.

Aðalfundir SSV ofl. stofnana verða 25. mars nk. í Borgarnesi.

Aðalfulltrúar með setu á aðalfundi SSV eru Jósef Ó. Kjartansson, Garðar Svansson og Ágústa Einarsdóttir. Varafulltrúar eru Sigurður Gísli Guðjónsson, Signý Gunnarsdóttir og Bjarni Sigurbjörnsson. Verði forföll í hópi framangreindra fulltrúa veitir bæjarstjórn Björgu Ágústsdóttur bæjarstjóra og Lofti Á. Björgvinssyni bæjarfulltrúa umboð til að vera fulltrúi bæjarins með atkvæðisrétt, í stað kjörinna fulltrúa og varamanna þeirra.

Samþykkt samhljóða.

3.Ályktun um viðhald þjóðvega á Snæfellsnesi

Málsnúmer 2009014Vakta málsnúmer

Rætt um slæmt ástand þjóðvega á Snæfellsnesi.

Bæjarstjóra falið að senda erindi til Vegagerðarinnar og koma á framfæri áhyggjum bæjarstjórnar af ástandinu, sem og að óska eftir upplýsingum um fyrirhugaðar lagfæringar og viðhaldsframkvæmdir.

Samþykkt samhljóða.

4.Bæjarráð - 651

Málsnúmer 2602008FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 651. fundar bæjarráðs.
  • Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.
    Bæjarráð - 651
  • 4.2 2602002 Greitt útsvar 2026
    Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar í janúar 2026.
    Bæjarráð - 651 Samkvæmt yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 5,7% miðað við sama tímabil í fyrra.
  • Lögð fram tillaga slökkviliðsstjóra um að farið verði að skoða valkosti og undirbúa kaup nýrrar slökkvibifreiðar.
    Bæjarráð - 651 Rætt um þörf fyrir endurnýjun á nýrri slökkvibifreið og valkosti í þeim efnum.

    Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra að skoða nánar valkosti um endurnýjun slökkvibifreiðar og leggja tillögu fyrir bæjarráð í lok mars.

    Einnig rætt um mögulega björgunarmiðstöð. Bæjarráð leggur til að ónefnd gata nr. 14 í deiliskipulagstillögu Grundarfjarðarhafnar verði tekin frá fyrir slökkvistöð. Mögulega yrðu lóðamörkin færð aðeins til.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir tillögu og afgreiðslu bæjarráðs um að taka frá lóð í vinnu við deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar fyrir slökkvistöð og björgunarmiðstöð.
  • Bæjarstjórn fól bæjarráði að taka yfirfarna tillögu að nýrri samþykkt um stöðuleyfi til endanlegrar afgreiðslu og auglýsa hana. Ennfremur fól bæjarstjórn bæjarráði að taka til endurskoðunar gjaldskrá fyrir stöðuleyfi og gera tillögu um breytingar á henni.

    Guðmundur Rúnar Svansson, aðstoðarmaður skipulags- og byggingarfulltrúa, hefur séð um undirbúning tillögunnar.

    Bæjarráð - 651 Guðmundur fór yfir helstu breytingar sem gerðar eru með framlögðum drögum að endurskoðaðri samþykkt.

    Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samþykkt um stöðuleyfi en gjaldskrá er í vinnslu og stefnt að því að taka hana fyrir á næsta fundi bæjarráðs.

    Samþykkt samhljóða.
  • 4.5 2509012 Gjaldskrár 2026
    Lögð fram gjaldskrá fyrir námur í eigu Grundarfjarðarbæjar.

    Gjald fyrir efnistöku í námu í Hrafnsá er 500 kr./m3, auk verðbóta frá setningu gjaldskrár.
    Lögð er til lækkun gjalds fyrir efnistöku efst í Hrafnsá, gegnt aðstöðuhúsum Skotfélagsins, þannig að þar verði gjaldið 300 kr./m3 í stað 500 kr./m3 af efni.
    Bæjarráð - 651 Samþykkt samhljóða breyting á gjaldskrá fyrir námur.


    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu bæjarráðs og breytingu á gjaldskrá fyrir námur.
  • Í tillögum COWI um ofanvatnsskipulag felst að Hrannarstígurinn sé eitt meginburðarsvæði vatns niður frá efri byggðum, og að í Hrannarstíg verði að leggja hvað mestu vinnuna í að taka á móti og leiða vatn í viðtaka (þ.e. m.a. með blágrænum fráveitulausnum).
    Bæjarráð - 651 Nanna fór yfir tillögu úr skýrslu COWI að regnbeðum á Hrannarstíg. Einnig svæði á Ölkelduvegi og við Samkomuhús Grundarfjarðar.

    Nanna lagði til breytta forgangsröðun blágrænna lausna í Hrannarstíg. Bæjarráð samþykkir að lögð verði áhersla á að leysa vatnsmál og að farið verði í regnbeð austanmegin á Hrannarstíg.

    Bæjarráð samþykkir jafnframt að Nönnu verði veitt heimild til að leggja fram hugmynd um að veita regnvatni af þaki Samkomuhúss í blágræna viðtaka. Henni er einnig veitt umboð til að undirbúa framkvæmd vestan við lóð nr. 37 við Ölkelduveg, þar sem vandamál eru til staðar út af vatnsrás

    Samþykkt samhljóða.

  • Lögð fram til afgreiðslu drög að samstarfssamningi Grundarfjarðarbæjar við UMFG, en íþrótta- og tómstundafulltrúi hefur rætt við fulltrúa félagsins um málið.

    Einnig lagður fram listi yfir verkefni sem formaður UMFG hefur sinnt og óskar UMFG eftir stuðningi bæjarins til að ráða framkvæmdastjóra félagsins í 50% stöðu.

    Lagðar fram upplýsingar um aðkomu nágrannasveitarfélaga til íþróttafélaga vegna framkvæmdastjórastöðu.
    Bæjarráð - 651 Farið yfir fyrirliggjandi drög að samningi við UMFG.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra og íþrótta- og tómstundafulltrúa að vinna áfram með samningsdrögin. Bæjarráð tekur vel í að eiga samtal við fulltrúa UMFG um ráðningu framkvæmdastjóra.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lagt fram erindi Lionsklúbbs Grundarfjarðar í tölvupósti dags. 11. febrúar 2026. Bæjarráð - 651 SGG vék af fundi undir þessum lið og varaformaður tók við stjórn fundarins.

    Bæjarráð þakkar Lionsklúbbnum erindið og samþykkir að þiggja gott boð.

    Samþykkt samhljóða.

    SGG tók aftur sæti sitt á fundinum.
    Bókun fundar Bæjarstjórn þakkar fyrir gott boð.
  • Lagður fram tölvupóstur Magneu Marinósdóttur varðandi fræðslu fyrir innflytjendur í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.

    Magnea fékk styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála til að standa fyrir fræðsluvinnustofum fyrir innflytjendur. Verkefnið er í beinu framhaldi af fyrra verkefni sem hún var með fyrir síðustu Alþingiskosningar.

    Bæjarstjóri, skrifstofustjóri og forstöðumaður menningar- og markaðsmála áttu fjarfund með Magneu sl. mánudag. Fyrsta lausa helgin hjá Magneu er 17.-18. apríl nk.

    Lagt fyrir bæjarráð til ákvörðunar um að halda slíka vinnustofu.

    Til skoðunar væri einnig, hvort halda ætti sérstaka kynningu fyrir fólk með annað móðurmál (helst í mars) um verkefni bæjarstjórnar/bæjarins almennt og að túlkar yrðu hafðir með.
    Bæjarráð - 651 Bæjarráði líst vel á verkefnið og samþykkir það og jafnframt tímasetningu vinnustofunnar.

    Samþykkt samhljóða.
  • Lögð fram til kynningar starfsskýrsla Ungmennafélags Grundarfjarðar mars 2025 - febrúar 2026.
    Bæjarráð - 651
  • Lagður fram til kynningar ársreikningur UMFG fyrir árið 2025.
    Bæjarráð - 651
  • Lögð fram til kynningar gögn Markaðsstofu Vesturlands um almyrkva á sólu 12. ágúst nk.

    Einnig minnispunktar Pálma Jóhannssonar, forstöðumanns menningar- og markaðsmála um málefnið.

    Málið er í undirbúningi og er Pálmi okkar aðaltengiliður vegna þess.
    Bæjarráð - 651
  • Lagt fram til kynningar bréf bæjarstjóra dags. 17. febrúar sl. í samráðsgátt um umsögn bæjarins um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.
    Bæjarráð - 651
  • Lögð fram til kynningar staðfesting á vottun Earth Check árið 2026, en þetta er í 16. skipti sem sveitarfélögin á Snæfellsnesi hljóta vottunina.

    Bæjarráð - 651
  • Lögð fram til kynningar fundargerð 200. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands sem haldinn var 12. febrúar sl., ásamt bréfi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra til Vegagerðarinnar og bréfi Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins til Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi.

    Bæjarráð - 651
  • Lagt fram til kynningar bréf Lánasjóðs sveitarfélaga þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn Lánasjóðsins.
    Bæjarráð - 651
  • Lögð fram tilkynning Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga um Sjávarútvegsfund 2026 sem haldinn verður 4. mars nk. á Akureyri.

    Bæjarráð - 651
  • Lagt fram til kynningar bréf Resource International ehf. varðandi ráðstefnu um málaflokk urðunar á Íslandi, en ráðstefnan verður haldin 20. mars nk.
    Bæjarráð - 651

5.Skólanefnd - 188

Málsnúmer 2602007FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 188. fundar skólanefndar.
  • Rætt við bæjarstjórn um málefni leikskólastigsins.

    GGG sat dagskrárliðinn að hluta, undir lok fundar.

    Skólanefnd - 188 Á fundinum viðraði skólanefnd við bæjarstjórn áhyggjur sínar af fækkun barna á leikskólastigi. Á komandi hausti stefnir í að einungis verði rúmlega 40 börn samanlagt á Leikskólanum Sólvöllum og leikskóladeildinni Eldhömrum, 5 ára leikskóladeild sem rekin er í húsnæði grunnskólans og undir yfirstjórn hans. Svo fámennar einingar veki spurningar um fyrirkomulag í rekstri, bæði faglega og fjárhagslega.

    Leikskóladeildin Eldhamrar var stofnuð þar sem skortur var á húsnæði í Leikskólanum Sólvöllum fyrir þann fjölda barna sem þá var. Nú hefur þessi staða snúist við, en á Sólvöllum stefnir í að börnin verði rétt í kringum 30 við upphaf komandi skólaárs, en að 13 börn fari á Eldhamra í ágúst.

    Skólanefnd telur að skoða þurfi vel þann möguleika að sameina aftur starfsemi leikskólastigsins. Skólanefnd telur að það sé mikilvægur útgangspunktur í þessari stöðu í dag, að bæði Eldhamrar og Sólvellir búi að hæfu fólki og afar góðu faglegu starfi, sem við megum vera stolt af. Það sé fyrst og fremst fjöldi (fækkun) leikskólabarna sem kalli á þetta endurmat nú.

    Skólanefnd óskar eftir stuðningi bæjarstjórnar til að fara í skoðun á þessari stöðu og ræða við fulltrúa skólasamfélagsins, og - eftir atvikum - að gera síðan tillögu til bæjarstjórnar.

    Bæjarfulltrúar lýstu því yfir, að þeir geri ekki athugasemd við fyrirhugaða skoðun skólanefndar á málinu, en lögðu áherslu á að vandað verði til verka og unnið markvisst að niðurstöðu.

    Hér viku bæjarfulltrúar af fundi.

    Samþykkt af skólanefnd að ræða við helstu aðila. Einnig, að leita til sérfræðinga Ásgarðs, skólaráðgjafar, eftir því sem þörf er á stuðningi við skoðun skólanefndar á faglegum þáttum málsins.

6.Skipulags- og umhverfisnefnd - 276

Málsnúmer 2603001FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 276. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Á fundi sínum 24. febrúar sl. lagði hafnarstjórn til við bæjarstjórn að gerðar yrðu breytingar á framlagðri deiliskipulagstillögu Grundarfjarðarhafnar, í kjölfar breyttra forsendna við undirritun bindandi kauptilboðs hafnarinnar á Nesvegi 4 þann 20. feb. sl. Bæjarstjórn samþykkti þá tillögu á fundi sínum 26. febrúar sl. og var deiliskipulagstillaga sú sem auglýst hafði verið 17. febrúar sl., skv. 41. gr. skipulagslaga, tekin úr auglýsingu.

    Í kjölfar þess var boðað til þessa fundar, sem er sameiginlegur fundur skipulags- og umhverfisnefndar, hafnarstjórnar og bæjarstjórnar, til að ræða breyttar forsendur og þau atriði sem skipta máli við gerð nýrrar deiliskipulagstillögu.

    Í upphafi fundar vakti bæjarstjóri athygli nefndarmanna á því að hver nefndarmaður þyrfti að gæta vel að hæfi sínu. Hafi nefndarmaður í hyggju að standa að andmælum við deiliskipulagstillögu eða styðja kæru, þurfi hann að íhuga vel stöðu sína og hæfi við umfjöllun og afgreiðslu tillögu, sem nefndarmaður í skipulags- og umhverfisnefnd.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 276 Í samræmi við breyttar forsendur og fyrrnefnda ákvörðun bæjarstjórnar 26. febrúar sl. er nú hafin vinna við gerð breyttrar deiliskipulagstillögu hafnarsvæðisins. Í samræmi við tillögu hafnarstjórnar þann 24. febrúar, sem samþykkt var af bæjarstjórn, er gert ráð fyrir að áfram sé "unnið að nýjum neðanbyggðarvegi og viðlegukanti, enda tekur mörg ár að tryggja stuðning fyrir fjárhagshlut ríkisins í slík mannvirki" eins og segir í bókun hafnarstjórnar.

    Farið var yfir forsendur og helstu breytingar, sem vilji er til að gera á tillögu að deiliskipulagi Grundarfjarðarhafnar, í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar.

    Áfram er gengið út frá því að nýr vegur komi sem tengi hafnarsvæðið (norðurhluta) við þjóðveginn, austan Gilóss. Einnig er gert ráð fyrir að nýr viðlegukantur komi meðfram landfyllingu eins og í fyrri tillögu, en það er í samræmi við óskir hafnarstjórnar um að falla frá lengingu Miðgarðs sem viðbótarviðlegu fiskiskipa. Viðlegukantur við landfyllingu er talinn betri kostur en lenging Miðgarðs, skv. ráðgjöf Vegagerðarinnar (hafnasvið), m.t.t. áhrifa á hafnaraðstæður.

    Helstu breytingar sem ræddar voru á fundinum og unnið verður að eru eftirfarandi:

    - Ný landfylling sunnan Miðgarðs verði minnkuð sjávarmegin
    - Lóðum á þeirri landfyllingu verði fækkað frá fyrri tillögu
    - Svæði kringum Gilós verði enn opnara, landfylling stytt/minnkuð til austurs.
    - Skoðað verði fyrirkomulag lóða austan Gilóss/við Suðurgarð, sem og á fremstu lóð vestan Gilóss (nr. 6 í tillögu) og skerpt á skilmálum þeirra. Lóðir nr. 1-5 verði minnkaðar, svo og byggingareitir. Þar verði áfram lögð áhersla á aðlaðandi og snyrtilega ásýnd, sbr. fordæmi t.d. frá Torfunesbryggju á Akureyri og áréttað að lóðirnar séu ætlaðar fyrir þjónustu, eins og fram hefur komið í þegar kynntum skilmálum.
    - Breyting verði gerð á lóðum á landfyllingu sunnan við (ofan við) nýjan neðanbyggðarveg. Endurskoðaðar verði stærðir og lóðarmörk. Áréttuð verði enn frekar í skilmálum aðlaðandi ásýnd göngustígs (Lengju) og gróðurbeðs sem komi á milli núverandi íbúðarbyggðar og hafnarsvæðis. Einnig verði áréttuð snyrtileg ásýnd bygginga og lóða á landfyllingu, séð frá húsum við Grundargötu og göngustígnum.

    Fleiri atriði nefnd og rædd, en framangreindar eru þær forsendur sem lagðar eru til grundvallar í vinnu við gerð breyttrar deiliskipulagstillögu.

    Formaður ber upp tillögu um að vinna við breytta deiliskipulagstillögu muni byggja á þessum forsendum. Samþykkt með fjórum atkvæðum nefndarmanna, ÁEK situr hjá.
    Aðrir gestir fundarins, bæjarfulltrúar og hafnarstjórn, lýstu sig ennfremur samþykka þessum forsendum.

    Skipulagsfulltrúa falið að vinna áfram að undirbúningi breyttrar tillögu á þessum forsendum.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.

7.Skipulags- og umhverfisnefnd - 277

Málsnúmer 2603002FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 277. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Tillaga á vinnslustigi vegna rammahluta aðalskipulags, um blágrænt ofanvatnsskipulag, var kynnt skv. 30. gr. skipulagslaga í Skipulagsgátt, á vef bæjarins, í héraðsfréttablaðinu Skessuhorni, auk þess sem útprentuð tillaga lá frammi í Ráðhúsi og í Sögumiðstöðinni, á tímabilinu 16. febrúar sl. til 2. mars sl. Haldið var opið hús í Sögumiðstöðinni vegna tillögunnar, 19. og 21. febrúar sl.

    Alls bárust 7 umsagnir frá eftirfarandi aðilum:

    Minjastofnun Íslands
    Slökkviliði Grundarfjarðar
    Náttúruverndarstofnun
    Veitum
    Náttúrufræðistofnun
    Hafrannsóknastofnun
    Veðurstofu Íslands

    Einnig lögð fram samantekt umsagna og tillaga skipulagsfulltrúa til nefndarinnar að viðbrögðum við umsögnum.

    Umsagnirnar má finna inná Skipulagsgátt.

    Ennfremur lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi vegna rammahluta til auglýsingar skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Við gerð tillögunnar hefur verið höfð hliðsjón af þeim ábendingum/umsögnum sem bárust við vinnslutillöguna.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 277 Farið var yfir umsagnir og viðbrögð við þeim, sem nefndin samþykkir fyrir sitt leyti.

    Einnig var farið yfir framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi; rammahluta aðalskipulags vegna blágræns ofanvatnsskipulags, og rætt um einstaka þætti.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagða tillögu og leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 31. gr. skipulagslaga með hefðbundnum hætti, með þeim minniháttar lagfæringum sem ræddar voru á fundinum.

    Nefndin leggur til að haft verði opið hús til kynningar og umfjöllunar um tillöguna eftir að hún hefur verið auglýst.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu og afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar. Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna til athugunar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga og auglýsa hana síðan, með minniháttar lagfæringum, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga.
    Opið hús verði til kynningar og umfjöllunar um tillöguna eftir að hún hefur verið auglýst.
  • Vinnslutillaga um breytingu á aðalskipulagi vegna viðbótarlóða vestast á Grundargötu (Háubakkar) var auglýst í Skipulagsgátt á tímabilinu 18. febrúar til 2. mars sl. Tillagan var ennfremur kynnt á vef bæjarins, í héraðsfréttablaðinu Skessuhorni, auk þess sem útprentuð tillaga lá frammi í Ráðhúsi og í Sögumiðstöðinni. Opið hús var haldið miðvikudaginn 25. febrúar kl. 13:00-14:00 í Ráðhúsi Grundarfjarðar.

    Umsagnir bárust frá Slökkviliði Grundarjarðar, Minjastofnun Íslands og Heilbrigðiseftirliti Vesturlands.

    Innsendar umsagnir má finna í Skipulagsgátt.

    Einnig lögð fram samantekt umsagna og tillaga skipulagsfulltrúa til nefndarinnar að viðbrögðum við þeim.

    Ennfremur lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi, til auglýsingar skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna stækkunar á reit fyrir íbúðarbyggð, Háubakkar, og samhliða minnkun á reit AF-1. Höfð hefur verið hliðsjón af ábendingum í innkomnum umsögnum, við gerð tillögunnar.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 277 Farið var yfir umsagnir sem bárust við auglýsta vinnslutillögu og viðbrögð við þeim, sem nefndin samþykkir fyrir sitt leyti.

    Einnig var farið yfir framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi, til auglýsingar skv. 31. gr. skipulagslaga, vegna stækkunar á reit fyrir íbúðarbyggð, Háubakkar, og samhliða minnkun á reit AF-1. Höfð hefur verið hliðsjón af ábendingum í innkomnum umsögnum, við gerð tillögunnar. Rætt um einstaka þætti.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagða tillögu að breytingu aðalskipulags og leggur við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 31. gr. skipulagslaga, með hefðbundnum hætti.

    Nefndin leggur til að haft verði opið hús til kynningar og umfjöllunar um tillöguna eftir að hún hefur verið auglýst.

    Bókun fundar Til máls tóku JÓK og BÁ.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu og afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
    Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna til athugunar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga og auglýsa hana síðan, með minniháttar lagfæringum, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga.

    Opið hús verði til kynningar og umfjöllunar um tillöguna eftir að hún hefur verið auglýst.
  • Unnið er að gerð tillögu um deiliskipulag með nýjum íbúðarlóðum vestast á Grundargötu, neðan götu (Háubakkar), sbr. aðalskipulagsbreytingu skv. 2. dagskrárlið þessa fundar.

    Landhalli er talsverður á Háubökkum sem taka þarf mið af við deiliskipulagsgerðina, en tækifæri eru til að setja þar niður einstakar útsýnislóðir. Farið var yfir forsendur skipulagshönnunar og kosti varðandi fyrirkomulag lóða á svæðinu og tengingu þeirra við Grundargötu. Taka þarf tillit til hvassrar suðvestanáttar þannig að bílskúrar snúi ekki í þá átt. Loks var rætt um mögulegar stærðir lóða og húsa og þarfir hvað það varðar.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 277 Skipulagsfulltrúa falið að vinna áfram að gerð deiliskipulagstillögu til framlagningar skv. 41. gr. skipulagslaga, með hliðsjón af umræðum fundarins.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar. Deiliskipulagið er í vinnslu.
  • Haldið var áfram umræðum um gerð nýrrar tillögu að breyttu deiliskipulagi í framhaldi af sameiginlegum fundi skipulags- og umhverfisnefndar, hafnarstjórnar og bæjarstjórnar þann 3. mars sl. Á þeim fundi var samþykkt að vinna með ákveðna hugmynd, sem fól í sér minni landfyllingu, fækkun lóða (sjávarmegin á landfyllingu), að Gilósnum yrði gert hærra undir höfði og fleiri breytingar.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 277 Rætt um þá stjórnsýslumeðferð að afturkalla deiliskipulagsbreytingu og að eðlilegt sé að leggja nýja tillögu fram til auglýsingar skv. 31. gr. skipulagslaga, þar sem skipulagslýsing og vinnslutillaga hafa þegar verið auglýst.

    Ekki var lögð fram tillaga fyrir fundinn, en skipulagsráðgjafar fóru yfir kynningu, þar sem tíunduð voru atriði sem nefndin þarf að móta nánar skilmála um við gerð uppfærðrar deiliskipulagstillögu.

    Horfa þarf til nýrra tækifæra sem tengjast stækkuðu hafnarplani (svæði kringum hafnarhús) nú þegar bærinn hefur eignast Nesveg 4. Lagt er til að bílastæði sem fylgdu þeirri lóð verði færð yfir á hafnarplanið. Með því verði tenging við miðbæinn og höfnina styrkt og miðbæjarstarfsemi í heild, og tækifæri opnast til að koma upp lifandi starfsemi í og við Nesveg 4.

    Hafnarstjórn hefur lagt til að nýr þjóðvegur (neðanbyggðarvegur) verði nefndur Íshúsvegur og verður unnið áfram með það heiti.

    Rætt var um stærðir lóða, hæð húsa á einstökum lóðum, nýtingarhlutföll og samhengi þess við stærðir húsa, hugmyndir um útfærslu húsa á einstökum lóðum - einkum á svæðinu næst smábátahöfn/Suðurgarði - og þá um hversu nákvæma skilmála ætti að setja til að ná fram ásýnd eða "stemmningu" eins og á því svæði.

    Farið var heildstætt yfir skipulagssvæðið að nýju, út frá breyttum forsendum. Sérstaklega farið yfir mikilvægi skilmála. Hægt er að gera þá stífari og nota þá til að beina tiltekinni starfsemi á ákveðin svæði innan skipulags og setja stífari skilmála um form húsa. Tekin dæmi af uppbyggingu á öðrum hafnarsvæðum og sýnd dæmi af húsagerðum. Hægt er að setja skilmála um þakform og liti bæði bygginga og þaka. Séu slíkir skilmálar fyrir hendi er hægt taka mið af því við gerð ásýndarmynda í kynningarefni. Nú þegar eru skilmálar um glýjulaus þök.

    Sérstaklega rætt um skilmála um sameiginlegt útlit á syðstu lóðunum, þ.e. við Suðurgarðinn, þar sem aðkoma er að bænum. Rætt um skýra skilmála fyrir það svæði um útlit, klæðningarefni og liti. Fyrsta lóð vestan Gilóss yrði einnig hluti þess reits og með sömu eða svipaða skilmála.

    Rætt um hönnun útlits og að það fari ekki að öllu leyti eftir stærð húsa hversu stór þau virðast. Brjóta megi upp útlit þeirra þannig að ásýnd breytist og þetta mætti ef til vill útfæra í skilmálum.

    Rætt um "stóru myndina" aftur. Tengingu deiliskipulagssvæðisins við núverandi byggð og hæðarsetningu húsa við Grundargötu. Hvaða þjónustu þarf og hvar hún sé að dreifast um bæinn. Rifjað upp að á hafnarsvæðinu hafa ekki verið lausar neinar atvinnulóðir um árabil. Verið sé að hugsa langt fram í tímann með þessu skipulagi og það sé bæði mikil fyrirhöfn og óhagstætt að vinna skipulag fyrir lítil svæði í einu. Þá glatast líka tækifærið til að ná heildstæðri hugsun í gegnum svæði. Nefnt var, að það sé einstök staða að náðst hafi að vinna upp deiliskipulagsáætlanir fyrir mörg svæði bæjarins á ekki lengri tíma, en staðan var þannig fyrir örfáum árum að afar lítill hluti þéttbýlisins var deiliskipulagður.

    Einnig var rætt um meðferð vinnugagna. Skipulagsráðgjafar hafa lagt fram grunn fyrir samtal á vinnufundum til að byggja samtalið við nefndina á, nú í framhaldi þess að nefndin hafi afturkallað fyrri tillögu sem komin var í auglýsingu. Mikilvægt sé að velta við hverjum steini, árétta þörf og draga fram hugmyndir nefndarinnar við mótun þessarar mikilvægu framtíðarsýnar sem birtast munu í uppfærðri deiliskipulagstillögu fyrir hafnarsvæðið.
    Ekki er því litið á þessi vinnugögn ráðgjafa sem tillögur, enda hafa ráðgjafar ekki lagt þau fram fyrir fundi og þau hafa ekki verið vistuð sem slík í skjalakerfi, enda endurspegla þau ekki eiginlegar tillögur. Ekki eru gerðar athugasemdir við þetta vinnulag.

    Skipulagsfulltrúa falið að vinna áfram að nýrri deiliskipulagstillögu með hliðsjón af umræðum nefndarinnar.
    Bókun fundar Til máls tóku JÓK og BS.

    Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Á 651. fundi bæjarráðs 26. febrúar sl. var rætt um staðsetningu fyrir lóð fyrir slökkvilið (eða um "björgunarmiðstöð"). Bókun bæjarráðs var svohljóðandi:

    "Einnig rætt um mögulega björgunarmiðstöð. Bæjarráð leggur til að ónefnd gata nr. 14 í deiliskipulagstillögu Grundarfjarðarhafnar verði tekin frá fyrir slökkvistöð. Mögulega yrðu lóðamörkin færð aðeins til."

    Bæjarstjóri og skipulagsfulltrúi hafa einnig fundað með stjórn Björgunarsveitarinnar Klakks, þar sem rætt var um þessa staðsetningu sem hugsanlegan framtíðarstað fyrir húsnæði björgunarsveitar.

    Málið lagt fram til að fá afstöðu skipulags- og umhverfisnefndar til tillögu bæjarráðs.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 277 Greint frá umræðum fundar bæjarstjóra og skipulagsfulltrúa með stjórn Bjsv. Klakks fyrr um daginn. Núverandi húsnæði Björgunarsveitarinnar að Sólvöllum 17a er víkjandi í aðalskipulagi.

    Fulltrúar stjórnar Klakks voru samþykkir því að tekið yrði frá framtíðarbyggingarsvæði á þessum stað, án þess þó að í því felist skuldbinding um að í framtíðinni eigi sveitin sameiginlegt húsnæði með öðrum.

    Um er að ræða lóð sem hægt væri að ganga frá með litlum tilkostnaði ef þurfa þykir.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að lóðin sé tekin frá undir björgunarmiðstöð með aðkomuvegi neðan lóðar. Skoða þarf nánar stærðir lóðar og húss, sem og húshæð.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar um að umrædd lóð verði tekin frá fyrir þessi not, þ.e. aðstöðu fyrir slökkvilið, björgunarsveit og mögulega skylda starfsemi (björgunarmiðstöð). Fyrirvari er gerður um stærð lóðar/lóða og húss/húsa.
  • Lögð fram til samþykktar óveruleg breyting á deiliskipulagi Ölkeldudals.
    Um er að ræða einfalda leiðréttingu þar sem tvær byggingarmagnstölur víxluðust milli dálka í skilmálatöflu (lóðir við Ölkelduveg 39-43). Málsmeðferð er því skv. grein 5.8.2 um óverulega breytingu í skipulagsreglugerð nr. 90/2013.


    Skipulags- og umhverfisnefnd - 277 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir samhljóða breytinguna og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa breytinguna í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ennfremur telur nefndin að ekki sé um nein grenndaráhrif að ræða enda ekki um útlitsbreytingu að ræða og hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Ekki er því þörf á að grenndarkynning fari fram í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar. Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að ganga frá breytingunni í samræmi við ákvæði skipulagslaga.
  • Lögð fram tillaga að nýrri samþykkt um stöðuleyfi sem verið hefur í vinnslu.

    Ennfremur er tilbúin tillaga að fjárhæð stöðuleyfisgjalds til afgreiðslu hjá bæjarráði/bæjarstjórn.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 277 Farið yfir framlögð drög og þau rædd.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti samþykktina og að hún verði lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar samhliða nýrri gjaldskrá stöðuleyfisgjalda.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar, en málið er jafnframt sérliður á dagskrá bæjarstjórnarfundarins.
  • Grundarfjarðarbær óskaði fyrir hönd landeiganda Látravíkur 2 eftir undanþágu frá greinum 5.3.2.5-d (um fjarlægð frístundahúss frá stofnvegi) og 5.3.2.14 (um fjarlægð frá vötnum, ám og sjó) í skipulagsreglugerð nr. 90/2013.

    Umhverfis- og auðlindaráðherra veitti með bréfi dagsettu 23. september 2020 undanþágu frá ofangreindum ákvæðum í samræmi við 12. mgr. 45. gr. skipulagslaga 123/2010.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 277 Ástæðan fyrir framlagningu á þessu bréfi nú, er að verið er vinna að því að ljúka afgreiðslu málsins, sem er byggingarleyfisumsókn lóðarhafa.

    Svarbréf ráðuneytisins var ekki lagt fyrir skipulags- og umhverfisnefnd þegar það barst, en rétt þykir að leggja það fram til kynningar. Málið er að öðru leyti í höndum byggingarfulltrúa.

    Lagt fram til kynningar.
  • Lagt fram til kynningar erindi Jóhanns Jóns Ísleifssonar varðandi málsmeðferð tillögu um deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar, sem auglýst var 17. febrúar sl.

    Þrátt fyrir að bæjarstjórn hafi tekið tillöguna úr auglýsingu 26. febrúar sl., að tillögu hafnarstjórnar, þótti rétt að svara erindinu þar sem það lýtur að stjórnsýslumeðferð málsins. Með svari skipulagsfulltrúa fylgdi greinargerð lögmanns bæjarins, sem jafnframt fór yfir málsmeðferð að beiðni skipulagsfulltrúa. Ekki voru forsendur fyrir ógildingu eða afturköllun, að mati lögmannsins.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 277 Lagt fram til kynningar.
  • Greint var frá nýlegum fundi skipulagsfulltrúa og þjónustufulltrúa með stöðuleyfishöfum á miðbæjarreit.

    Fyrirspurn var lögð fram um byggingar á vegum Skotgrundar, Skotfélags Snæfellsness, í Kolgrafafirði á landi í eigu Grundarfjarðarbæjar. Skipulagsfulltrúa falið að funda með stjórn Skotfélagsins, í samráði við byggingarfulltrúa.

    Greint var frá fyrirspurn um túlkun aðalskipulagsheimildar til byggingar frístundahúsa á reitnum F-1, frá hluta eigenda Neðri-Lár um heimildir í aðalskipulagi vegna fyrirhugaðrar deiliskipulagsgerðar. Erindinu hefur verið svarað.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 277

8.Hafnarstjórn - 29

Málsnúmer 2603003FVakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 29. fundar hafnarstjórnar.
  • Umræða í tengslum við mál undir dagskrárlið 2, vinna við breytingu á tillögu um deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar.

    Hafnarstjórn - 29 Sú staðreynd hefur blasað við í mörg ár að á hafnarsvæðinu sjálfu er engin laus lóð undir atvinnustarfsemi. Eins og fram kom í síðustu fundargerð hafnarstjórnar hefur þegar verið ráðstafað því viðbótarlandi sem til varð á landfyllingu á norðursvæði hafnarinnar, austan Nesvegar, eins og beinlínis kemur fram í skilmálum nýsamþykkts deiliskipulags þess svæðis. Með kaupum á Nesvegi 4 kemur höfnin til með að ráða yfir rúmlega 7.200 m2 svæði á heppilegum stað og er ætlun hafnarstjórnar að núverandi hús á Nesvegi 4 víki í framtíðinni fyrir nýrri starfsemi. Ekki er fyrirhugað að hafnarsjóður leggi út í kostnað við rif hússins, a.m.k. ekki að svo stöddu, heldur er með kaupunum fyrst og fremst verið að tryggja framtíðarsvæði undir atvinnulóðir. Gera má ráð fyrir að fyrirkomulagi lóða á svæðinu verði breytt, þ.e. núverandi Nesvegi 4 og Norðurgarði 2. Þegar kaupin eru að fullu frágengin mun hafnarstjórn jafnframt koma þessu svæði á framfæri og auglýsa það sem laust athafnasvæði/lóðir, skv. nánari skilmálum.

  • Farið yfir málið, í beinu framhaldi af fundi með skipulags- og umhverfisnefnd, þar sem hafnarstjórn og hafnarstjóri voru gestir.

    Hafnarstjórn - 29 Á fundi sínum 24. febrúar sl. lagði hafnarstjórn til við bæjarstjórn að gerðar yrðu breytingar á framlagðri deiliskipulagstillögu Grundarfjarðarhafnar, í kjölfar breyttra forsendna við undirritun bindandi kauptilboðs hafnarinnar á Nesvegi 4 þann 20. feb. sl. Bæjarstjórn samþykkti þá tillögu á fundi sínum 26. febrúar sl. og var deiliskipulagstillaga sú sem auglýst hafði verið 17. febrúar sl. tekin úr auglýsingu. Vísað er í dagskrárlið 1 á þessum fundi, sem og fundargerð 28. fundar hafnarstjórnar 24. febrúar sl.

    Í samræmi við breyttar forsendur og fyrrnefnda ákvörðun bæjarstjórnar 26. febrúar sl. er nú unnið að gerð breyttrar deiliskipulagstillögu hafnarsvæðisins. Eins og rætt var á fundi skipulags- og umhverfisnefndar fyrr í dag eru helstu breytingar þær að ný landfylling sunnan Miðgarðs er minnkuð og lóðum þar með fækkað frá fyrri tillögu, svæði kringum Gilós breytist, skerpt verður á skilmálum fyrir lóðir austan Gilóss/við Suðurgarð o.fl. Tillagan er í vinnslu og styður hafnarstjórn þá vinnu og þær breytingar sem samþykkt var að leggja til sem forsendur breyttrar tillögu á fundi skipulags- og umhverfisnefndar nú áðan.

    Á 651. fundi bæjarráðs 26. febrúar sl. lagði bæjarráð til að ónefnd gata nr. 14 í (eldri) deiliskipulagstillögu Grundarfjarðarhafnar verði tekin frá fyrir slökkvistöð, mögulega með breyttum lóðarmörkum út frá þörfum um stærð lóðar. Um er að ræða lóð sem kæmi við hlið (fyrir sunnan) hús Soffaníasar Cecilssonar hf. sem stendur við Borgarbraut 1. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti að í framsetningu nýrrar deiliskipulagstillögu verði sú lóð merkt og tekin frá undir þessi not.

    Hafnarstjórn fór yfir gamlar ljósmyndir og loftmyndir af hafnarsvæðinu, m.a. af svæðinu neðan Grafar, austan við Gilósinn. Í greinargerð fyrri deiliskipulagstillögu er m.a. að finna ljósmynd frá 1957 sem sýnir íshús og fleiri byggingar á kambi rétt austan við Gilós. Athyglisvert er hve mikið land hefur verið austan Gilóss á þessum tíma og byggingar.
    Með vísan í "íshús" sem þarna stóð á sínum tíma leggur hafnarstjórn til að nýr neðanbyggðarvegur, sem tengja á hafnarsvæði norður við þjóðveg 54 austan Gilóss, fái heitið "Íshúsvegur".

    Samþykkt samhljóða.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir tillögu hafnarstjórnar um að nýr neðanbyggðarvegur, sem tengja á hafnarsvæði norður við þjóðveg 54 austan Gilóss, fái heitið "Íshúsvegur".

    Samþykkt samhljóða.

9.Öldungaráð - 14

Málsnúmer 2602011FVakta málsnúmer

Til máls tóku JÓK og BÁ.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 14. fundar öldungaráðs.
  • Ingveldur Eyþórsdóttir forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga kom inn á fundinn og kynnti verkefni sem unnið er að á Vesturlandi undir fyrirsögninni „Gott að eldast“.

    Öldungaráð - 14 Ingveldur sagði frá stöðu verkefnisins sem nær yfir allt Vesturland. Svæðinu er þó skipt niður í hluta og er unnið með Snæfellsnes sem heild. Ætlunin er að samþætta þjónustu við eldri borgara á vegum ríkis, sveitarfélaga og sjálfseignarstofnana (s.s. hjúkrunarheimila).

    Ragnheiður vísaði í fyrri umræðu öldungaráðs og taldi að bæta þyrfti úr því þegar forföll verða í heimaþjónustu inná heimilum eldri borgara. Eins nefndi hún að veita þyrfti eldri borgurum þjónustu eða stuðning við snjómokstur.

    Björg sagði frá breytingum í starfsmannahópi heimaþjónustunnar í Grundarfirði, en það er Félags- og skólaþjónustan sem sér um og stýrir þeirri þjónustu fyrir sveitarfélögin. Tveir einstaklingar sinna þjónustunni í samtals 1,1 stöðugildi, eins og þetta er núna. Breytingar geta hæglega orðið á þjónustuþörf.

    Ingveldur sagði frá breytingum í utanumhaldi þjónustunnar og þátttöku FSSF í "Dalaker" sem er skráningarkerfi fyrir þjónustu, sem á að auka yfirsýn um veitta heimaþjónustu.

    Aðspurð telja fulltrúar í öldungaráði að almennt viti eldri borgarar í Grundarfirði af þeirri þjónustu sem er í boði fyrir þau, við heimaþjónustu, af hendi FSSF. Þau séu sjálf dugleg að ræða þessi mál við aðra og benda þeim á þá valkosti sem eru í boði.

    Að beiðni bæjarstjóra mun Ingveldur skoða hvernig hægt sé að bæta úr því þegar þjónustan fellur niður af einhverri ástæðu, t.d. við forföll starfsmanna, einkum þá að vera með afleysingu tiltæka eftir þörfum. Fundarmenn sammála um að mikilvægt sé að undirbúa starfsemina fyrir sumarleyfi þannig að þjónustan falli ekki niður á lengra tímabili. Illa gekk að manna afleysingar á sumarleyfistíma, þegar auglýst var eftir slíku síðustu sumur. Nánari upplýsingar lagðar fyrir öldungaráð á næsta fundi.

    FSSF hefur verið að skoða það að gera samning við þjónustufyrirtæki sem myndi senda starfsmann til að sinna heimilisþrifum sérstaklega. Þannig væri betur hægt að tryggja samfellda þjónustu allt árið. Á móti myndi félagslega þættinum verða sinnt af starfsfólki FSSF.

    Tímalína "Gott að eldast" var þannig framsett að ætlunin var að taka Snæfellsnesið í janúar 2025. Þetta hefur tafist þar sem innleiðingin hefur gengið seinlega á öðrum stöðum á Vesturlandi. Samkomulag og breytingar, í samningum við ríkið um innleiðinguna, hafa gengið hægt, og hefur því verkefnið dregist. Á Snæfellsnesi er HVE sterkasti samnefnarinn í þessari þjónustu og erum við því háð góðu samstarfi við stofnunina.

    Ingveldur nefndi að byrjað er að vinna við "Mómakerfi" hjá FSSF sem er sameiginlegt teymi á Snæfellsnesi sem metur þá þjónustu sem eldri borgarar þurfa á svæðinu.

    Verkefnið "Gott að eldast" var gefið sem verkefni til tveggja ára, en nú er komið að endurnýjun og þarf að vinna nánar í því, m.a. að koma á samvinnu við ríkið. Ekki er vitað eins og stendur hvernig þróunin verður að þessu leyti, en verkefninu er ekki lokið.

    Ingveldur svaraði einnig ýmsum fyrirspurnum um félagsþjónustu og þjónustu við aldraða, á vegum FSSF. Að því búnu vék hún af fundi og var þakkað fyrir upplýsingarnar.

  • 9.2 2511002 LIFE-ICEWATER
    Nanna Vilborg Harðardóttir verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála hjá Grundarfjarðarbæ kom inn á fundinn. Nanna fór yfir verkefni og framkvæmdir við Blágrænar ofanvatnslausnir í Grundarfirði. Öldungaráð - 14 Nanna fór í gegnum glærukynningu og sagði frá verkefninu sem hlaut LIFE-styrk frá Evrópusambandinu, en verkefnið er til sex ára, við erum núna á öðru ári þess. Hún fór sérstaklega yfir helstu framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á þessu ári. Verkefnið tengist einnig markmiðum um gönguvænni bæ og gróðurríkara umhverfi.

    Góðar umræður áttu sér stað eftir erindi Nönnu.

  • Farið yfir stígamál í Grundarfirði og fyrirhugaðar framkvæmdir í þeim málum. Öldungaráð - 14 Nanna sagði frá undirbúningi og áformum um endurbætt stígakerfi, leiðir og áningarstaði.

    Ráðið lýsti yfir ánægju með erindið.

    Í framhaldi varð umræða um hvar eigi að setja niður bekki við göngustíga og gönguleiðir og var ákveðið að ráðið myndi setja upp tillögu um hvar bekkir ættu að vera settir upp í Grundarfirði, en fulltrúar ráðsins unnu einmitt slíka tillögu til bæjarins í fyrravor og var bekkjum fjölgað verulega.

  • Nanna fór yfir aðgengismál í íþróttamiðstöð Grundarfjarðar og þær framkvæmdir sem eru skipulagðar þar. Öldungaráð - 14 Nanna er jafnframt aðgengisfulltrúi Grundarfjarðarbæjar. Nanna og Hinrik, íþrótta- og tómstundafulltrúi, hafa unnið greiningu um hvar og hvernig megi bæta aðgengi í íþróttahúsi, sundlaug og útisvæði. Unnið er skv. leiðbeiningum og gátlista Öryrkjabandalags Íslands, ÖBÍ. Nanna fór yfir skjalið og rætt var um þær úrbætur sem hægt er að gera með einföldum hætti.

    Ráðið lýsir yfir ánægju með þær framkvæmdir sem eru skipulagðar fyrir íþróttamiðstöðina að þessu leyti.
  • Öldungaráð - 14 Rætt var um þörf á snjómokstursþjónustu við eldri borgara. Ótækt væri að sjá eldri borgara puðast við að moka frá húsi sínu til að komast út þegar þau hefðu ekki heilsu til þess. Spurt var hvort ekki væri hægt að koma upp kerfi þar sem eldri borgarar gætu beðið um mokstur frá húsi eða bílastæði, gegn gjaldi að hluta.

    Formaður spurði um greiðslur í orlofssjóð húsmæðra í Grundarfirði og velti fyrir sér hverjir væru forsvarsmenn fyrir þennan sjóð. Fram kom að samkvæmt lögum um húsmæðraorlof þá kjósa héraðssambönd Kvenfélagasambands Íslands orlofsnefndir hver í sínu umdæmi. Orlofsnefndin skipuleggur orlof húsmæðra í sínu umdæmi. Fyrir Grundarfjörð væri það Kvenfélagasamband Snæfellsness- og Hnappadalssýslu.

    Grundarfjarðarbær greiðir vissa fjárhæð árlega í þennan sjóð, lögum samkvæmt.

10.Skólanefnd - Tillaga um breytingar á leikskólastigi

Málsnúmer 2603013Vakta málsnúmer

Lögð er fram tillaga frá skólanefnd um breytingar á leikskólastigi.



Á fundi skólanefndar og bæjarstjórnar 17. febrúar sl. viðraði skólanefnd við bæjarstjórn áhyggjur sínar af fækkun barna á leikskólastigi, en á komandi hausti stefnir í að einungis verði tæplega 30 börn á Leikskólanum Sólvöllum þegar 13 börn fara í fimm ára leikskóladeildina Eldhamra.



Skólanefnd telur að svo fámennar einingar hljóti að vekja spurningar um fyrirkomulag í rekstri, bæði faglega og fjárhagslega. Skólanefnd leitaði eftir heimild bæjarstjórnar til að skoða þann möguleika að sameina aftur starfsemi leikskólastigsins. Í bókun skólanefndar 17. febrúar sl. kom fram að nefndin telur að það sé afar mikilvægur útgangspunktur í stöðunni í dag, að bæði Eldhamrar og Sólvellir búi að hæfu fólki og afar góðu faglegu starfi, sem við megum vera stolt af. Það sé fyrst og fremst fjöldi (fækkun) leikskólabarna sem kalli á endurmat nú.



Til máls tóku JÓK, LÁB, HH, BÁ og ÁE.

Í tillögunni kemur fram að skólanefnd hafi átt samtöl við helstu hagaðila málsins og leggur skólanefnd til við bæjarstjórn að frá og með komandi skólaári, sem hefst í ágúst nk., færist starfsemi fimm ára leikskóladeildar aftur til baka og sameinist starfsemi Leikskólans Sólvalla. Elsti árgangur leikskólastigs verði þá áfram á Leikskólanum Sólvöllum að loknu sumarleyfi. Áfram verði þó gert ráð fyrir öflugu samstarfi eldri barna á leikskólastigi og yngri barna á grunnskólastigi, í samræmi við lög.

Í tillögu skólanefndar kemur fram að ástæðan sé fyrst og fremst breyttar lýðfræðilegar forsendur, þ.e. nemendaþróun. Tillagan snúist um að sameina og efla það faglega starf sem unnið er og að styrkja enn frekar mannauðinn.

Í máli bæjarstjóra kom fram að skólanefnd hafi vissulega rætt það, að þegar aftur komi til fjölgunar barna á leikskólastiginu þá sé það ljóst að ekki sé verið að færa aftur hluta leikskólabarna milli húsnæðis leik- og grunnskóla. Það felist í þessari tillögu, að húsnæðismál leikskóla verði, þegar að því kemur, leyst með öðrum hætti í tengslum við starfsemi Leikskólans Sólvalla.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skólanefndar.

Samþykkt samhljóða.

11.Útboð á sölu byggingarréttar á miðbæjarreit

Málsnúmer 2504009Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkti á 306. fundi sínum 12. febrúar sl. að veita bjóðanda í byggingarrétt á miðbæjarreit frest til 9. mars 2026 til að skila gögnum í samræmi við útboðsskilmála svo unnt væri að ganga til samninga á grundvelli fyrri ákvarðana í málinu.



Svar barst frá bjóðanda 6. mars sl., þar sem hann óskar eftir að falla frá umsókn sinni (boði). Um sé að ræða "gríðarlega spennandi verkefni, en miðað við mína reynslu [...] og fjármögnunarmöguleika á svæðum utan Reykjavíkursvæðis, þá teljum við þetta eins og staðan er núna frekar erfitt viðfangs" eins og sagði í svarpósti bjóðanda, sem óskaði bæjarstjórn velfarnaðar með verkefnið.



Svar bjóðanda lagt fram. Fyrir liggur að ekki verður af samningssambandi við bjóðanda.

Bæjarstjórn áréttar að fyrri skilmálar, sem samþykktir voru 2025 um nýtingu lóðar, eru óbreyttir.

12.Ný samþykkt og gjaldskrá stöðuleyfa

Málsnúmer 2505026Vakta málsnúmer

Lagt fram til afgreiðslu tillaga að endurskoðaðri samþykkt um stöðuleyfi og tillaga um gjaldskrá.



Bæjarstjórn samþykkir endurskoðaða samþykkt um stöðuleyfi og gjaldskrá stöðuleyfa.

Samþykkt samhljóða.

13.Alþingi - Til umsagnar 505. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

Málsnúmer 2603005Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar og umsagnar tölvupóstur nefnda- og greiningarsviðs Alþingis varðandi 505. mál Umhverfis- og samgöngunefndar. Um er að ræða breytingu á sveitarstjórnarlögum. Umsagnarfrestur er til 20. mars nk.

Bæjarstjóri mun ganga frá umsögn um frumvarpsdrögin.

14.Forsætisráðuneytið - Vatnaskil í þjóðlendumálum - ráðstefna í Safnahúsinu 12. mars

Málsnúmer 2603008Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur forsætisráðuneytisins um ráðstefnu um þjóðlendumál sem haldin er í dag, 12. mars.

15.Samband íslenskra sveitarfélaga - Rafmagnsreikningurinn, Hver hagnast - hver borgar

Málsnúmer 2603009Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga um ráðstefnu Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum. Ráðstefnan verður haldin 18. mars nk.

16.Breiðafjarðarnefnd - Fundargerðir 2026

Málsnúmer 2603010Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 240. fundar Breiðafjarðarnefndar sem haldinn var 20. janúar sl.

Fylgiskjöl:

17.SSKS - Fundargerðir 2026

Málsnúmer 2602004Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 88. stjórnarfundar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum sem haldinn var 21. janúar sl.

18.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2026

Málsnúmer 2603004Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga:

Fundargerð 992. fundar sem haldinn var 23. janúar sl.

Fundargerð 993. fundar sem haldinn var 18. febrúar sl.

Fundargerð 994. fundar sem haldinn var 3. mars sl.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 16:27.