Heimsókn frá Landbúnaðarháskóla Íslands
Í apríl sl. fengum við góða gesti frá Landbúnaðarháskóla Íslands en þar voru á ferð nemendur í náminu EnChil – Umhverfisbreytingum á Norðurslóðum – sem er kennt í samstarfi við Háskólann í Helsinki og Háskólann í Lundi. Í náminu í heild er verið að fara í alls konar þætti sem snerta þessar breytingar.
Nemendur voru í vettvangsferð um Snæfellsnes í tengslum við áfanga þar sem áherslan er á mannlega þáttinn – skynjun fólks á breytingum, hvort breytingar hafi orðið, hvað fólki finnst ef ákveðin atriði breytast o.s.frv. Í grunninn er þetta þjálfun í þessum mannfræði rannsóknum, en líka að nemendur fái tilfinningu fyrir því hvað íbúarnir eru að upplifa.
Nemendurnir, ásamt kennurum, fengu kynningu á þeim vandamálum sem Grundfirðingar glíma við með aukinni úrkomu og hvernig við ætlum að takast á við hluta af þessum vandamálum með blágrænum ofanvatnslausnum. Farið var yfir ICEWATER styrkinn sem Grundarfjarðarbær hefur nýlega fengið í málefnið og í lok heimsóknar var farið í göngu um bæinn.
Við þökkum gestunum kærlega fyrir heimsóknina!