Framkvæmdir við neðanverðan Hrannarstíg (frá Grundargötu að Nesvegi og í nágrenni) 

  

Eins og áður hefur verið kynnt, þá hefur Grundarfjarðarbær verið að endurbæta gangstéttar og göturými víða í bænum, m.a. á Hrannarstíg. Nú er hafinn áfangi á neðanverðum Hrannarstíg, frá Kjörbúðinni og niður að Nesveg, og aðeins inní götuna við Sólvelli, sjá mynd:

 

Hönnun var í höndum landslagsarkitektastofunnar Landslag
 

Framkvæmdir eru hafnar við að endurnýja gangstétt og koma fyrir tilheyrandi blágrænum beðum á Hrannarstíg neðanverðum, þ.e. frá Kjörbúðinni og niður að Nesvegi. Í Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2019-2039 er gert ráð fyrir að innleiddar verði blágrænar lausnir í þéttbýlinu, sem er bæði í senn fráveitulausn og upplyfting grænna svæða í bæjarumhverfinu. Gangstéttin verður breið og góð og bætir til muna öryggi vegfarenda á Hrannarstíg. Götulýsing er einnig endurnýjuð.

 

 

Verktaki er Jk & Co ehf                                                                              Nýjir ljósastaurar verða settir upp

 

Gangstéttar og stígar mynda mikilvægt „net“ gönguleiða um bæinn. Skoðað var hvar þurfi að bæta umferðartengingar, hvernig megi gera stéttar og stíga aðgengilega fyrir mismunandi ferðamáta og hvernig hönnun hjálpar til þegar kemur að vetrarþjónustu, t.d. snjómokstri.

Breidd gangstéttar verður um 2,5-4,5 metrar og verður hún mótuð í lífrænum línum. Hér er unnið á svæði sem er skilgreint sem „miðbæjarsvæði“ og verður hellulögn og gróður í takt við það. Mun meira er lagt í fagurfræðina og frágang á þessu svæði en mörgum öðrum.

Íbúar hafa kallað eftir auknu umferðaröryggi og það verður best gert með því að draga úr aksturshraða. Hönnun götunnar tekur mið af því. Það ætti að verða mun auðveldara og öruggara fyrir gangandi íbúa og gesti að fara leiðar sinnar um svæðið, t.d. fyrir leikskólabörn að komast til og frá skólanum sínum. Í aðalskipulaginu er einmitt gert ráð fyrir að Hrannarstígur verði gönguvænni gata, en að akstur þungaflutningabíla verði frekar beint um Borgarbraut, að og frá Nesvegi og hafnarsvæði.

Hvað varðar lóð heilsugæslustöðvar að Hrannarstíg 7, þá var sérstaklega reiknað út göturými m.t.t. aksturs sjúkrabílsins, sem þar hefur aðstöðu, en gott aðgengi hans þarf að sjálfsögðu að tryggja.

 Samhliða þessu hefur Grundarfjarðarbær látið skoða ofanvatnsmálin. Umhverfið okkar þarf að geta tekið við öllu því vatni sem himnarnir senda okkur, stundum í stórum skömmtum. Farin er sú leið að nýta „blágrænar ofanvatnslausnir“ í göturýmum, en segja má að það sé leið náttúrunnar til að taka við vatni. Í framtíðinni verða grænir gróðurreitir og gegndræp „regnbeð“ hluti af göturýmum, með það hlutverk að taka við vatni.

 

 Sniðteikning af Hrannarstíg. Regnbeð eru sérstaklega hönnuð til þess að taka við regnvatni og leiða það niður í jarðveginni til þess að minnka álag á fráveitukerfi bæjarins.

 

Í ár er ætlunin að endurnýja gangstéttina norðan megin í Hrannarstíg og aðeins inní götuna Sólvelli. Þessi verkáfangi verður gerður í þremur skrefum. Byrjað verður á svæðinu frá gamla bílaþvottaplaninu og niður að Sólvöllum (sem nú þegar hefur verið byrjað á). Næst verður stétt tekin frá Sólvöllum niður að Nesvegi og að lokum verður farið í eyju og gangbrautir við Kjörbúðina. Verktaki er JK & Co, skv. samningi á grundvelli verðkönnunar sem fram fór um verkið.

Þetta er framkvæmdin sem farið verður í nú í ár. Seinna meir verður svo gangstéttin sunnan megin í götunni fjarlægð og ný lögð í staðinn ásamt gróðurbeðum. Um þann frágang verður haft samráð við eigendur fasteigna sunnan megin í götunni.

Einnig verður haldið áfram með frágang á efri hluta Hrannarstígs, auk ýmissa annarra endurbóta og viðgerða á gangstéttum og stígum í bænum, sem nánar verður kynnt á vef bæjarins.

---

Það er viðbúið að einhver óþægindi verði fyrir húseigendur meðan á framkvæmdum stendur, einkum við innkeyrslur á bílaplön. Við vonumst til að íbúar sýni þessu skilning, því markmiðið er betra og öruggara umhverfi.