Hafnarstjórn Grundarfjarðarbæjar
Fundargerð
6. fundur hafnarstjórnar Grundarfjarðar haldinn í Ráðhúsi Grundarfjarðar,
þriðjudaginn 10. september 2019, kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Björg Ágústsdóttir (BÁ), formaður, Runólfur Guðmundsson (RUG) og Sólrún Guðjónsdóttir (SG).
Fundargerð ritaði:Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri.
Formaður setti fund. Gengið var til dagskrár.
1. |
Hafnargerð 2019-2020, Lenging Norðurgarðs - 1901030 |
|
Farið yfir stöðu hafnarframkvæmda.
Farið var yfir drög að útboðsgögnum um rekstur stálþils vegna lengingar Grundarfjarðarhafnar. Ætlunin er að útboð verði auglýst síðar í þessari viku.
Helstu verkþættir eru: - Gerð á 90 m löngum bermugarði. - Rekstur 122 stálþilsplatna, akkerisplötur steyptar, uppsetning staga og festinga. - Jarðvinna aftan við stálþil. - Kantbitar steyptir með pollum, uppsetning á stigum og fríholtum.
Einnig lagt fram til kynningar bréf sem sent var tilteknum húseigendum vegna efnisflutninga og fyrirhugaðra framkvæmda.
Hafnarstjórn samþykkir fyrirliggjandi útboðsgögn með ábendingum eftir yfirferð sína, og að útboð verði auglýst í kjölfarið.
Hafnarstjórn samþykkir jafnframt að fela Eflu, verkfræðistofu, að ljúka hönnun á þekju og rafmagni vegna lengingar Norðurgarðs.
Hafnarstjórn óskar eftir því að kostnaðaráætlun verði ekki lögð fram í tilboðsferlinu, fyrr en af hálfu Vegagerðarinnar við tilboðsopnunina sjálfa.
Ofangreindir liðir samþykktir samhljóða. |
|
|
|
2. |
Spurningar vegna hafnarframkvæmda 18.07.2019 - 1907037 |
|
Lagt fram erindi Kristins G. Jóhannssonar, móttekið 18.07.2019, sem hann sendir bæjarstjórn fyrir hönd bænda í Eyrarsveit. Erindinu hefur verið beint til hafnarstjórnar. |
|
Hafnarstjórn felur bæjarstjóra að svara spurningum/athugasemdum þeim sem lagðar eru fyrir í erindinu í sjö liðum, um markmið hafnarframkvæmdarinnar, heildarkostnað, fjármögnun og fleira. |
|
|
|
3. |
Breyting á aðalskipulagi vegna hafnarframkvæmda - 1904011 |
|
Bæjarstjóri kynnti stöðu málsins, en skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt aðalskipulagsbreytinguna, vegna lengingar Norðurgarðs og tilheyrandi efnistöku. Bæjarráð hefur staðfest afgreiðsluna og tillagan verið send Skipulagsstofnun til yfirferðar. |
|
|
|
4. |
Hafnasamband Íslands - fundargerð 414 - 1909007 |
|
Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
|
|
|
5. |
Fundargerðir Siglingaráðs - fundir 14, 15 og 16 - 1909018 |
|
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. |
|
|
|
6. |
Hafnasamband Íslands - Ráðstefna um konur og siglingar - 1909017 |
|
Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
Fundargerð upplesin og staðfest.
Fundi slitið kl. 18:55.
Björg Ágústsdóttir (BÁ) |
|
Runólfur Guðmundsson (RUG) |
Sólrún Guðjónsdóttir (SG) |
|
|
|