1. |
Byggingaleyfi - Sæból 31b. - 1904030 |
|
Sótt er um byggingaleyfi vegna breytinga á hurðum að Sæbóli 31b. |
|
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingaleyfi að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með síðari breytingum.
|
|
|
|
2. |
Byggingaleyfi - Fellasneið 8 - 1902018 |
|
Lögð fram breytingartillaga af afstöðu húss að Fellasneið 8. |
|
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir breytingu á afstöðu hússins að Fellasneið 8 að undangengnu samþykki nágranna.
|
|
|
|
3. |
Stöðuleyfi - Sólvellir 5 - 1905025 |
|
Lögð fram umsókn um stöðuleyfi þar sem Rútuferðir ehf. óska eftir stöðuleyfi fyrir 2 gáma inná lóð sinni að Sólvöllum 5. |
|
Lísa Ásgeirsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út stöðuleyfi fyrir 2 gáma á lóðinni að Sólvöllum 5 til 29.03.2020.
|
|
|
|
4. |
Fyrirspurn - Húsfélag Sólvalla 6 - 1905022 |
|
Lögð fram fyrirspurn frá húsfélagi Sólvalla 6 um uppsetningu stoðveggs, bílastæði við baklóð og væntanlega ofanábyggingu. |
|
Skipulags- og umhverfisnefnd telur ekki óeðlilegt að reistur sé veggur allt að 1,8 m. m.v. gólfkvóta lóðanna að Sólvöllum 8 og 10. Formlegri umsókn þarf að fylgja samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Hvað varðar bílastæði við nýja götu sunnan við Sólvelli 6 telur nefndin rétt að leita nýrra leiða.
Fyrirhuguð yfirbygging fellur vel að þeim hugmyndum um Framnes sem fram eru komnar í tillögu á vinnslustigi fyrir endurnýjun Aðalskipulags í Grundarfirði.
Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við fyrirspyrjendur um framkomnar hugmyndir.
|
|
|
|
5. |
Grundarfjarðarbær og UMFG - Staðsetning á pannavelli - 1905026 |
|
Grundarfjarðarbær og UMFG óska eftir leiðbeiningum varðandi staðsetningu fyrir Pannavöll. |
|
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að lagt verði undirlag sem hæfir pannavellinum og hann staðsettur á grasbalanum þar sem ærslabelgurinn er nú þegar.
|
|
|
|
6. |
TSC ehf. - Fyrirspurn um samræmi við skipulag. - 1905024 |
|
Lögð fram fyrirspurn frá Mörtu Magnúsdóttur um samræmi við skipulag vegna starfsemi menningarhúss að Sólvöllum 8. |
|
Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á, að í tillögu á vinnslustigi fyrir endurskoðun Aðalskipulags í Grundarfirði er Framnes skilgreint sem athafnasvæði og fellur því menningarhús vel að þeirri skilgreiningu.
Áætluð starfsemi er því í samræmi við nýtt Aðalskipulag sem nú er í breytingaferli.
Nefndin leggur áherslu á að notkun húsnæðisins sé rétt skráð og að sótt sé um þær breytingar sem áætlaðar eru ásamt teikningum.
|
|
|
|
7. |
Umhverfisrölt 2019 - 1905027 |
|
Lögð fram til kynningar auglýsing vegna umhverfisrölts sem haldið verður dagana 20. og 21. maí n.k. |
|
Skipulags- og umhverfisnefnd ásamt bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar boða til umhverfisrölts, þar sem fulltrúar skipulags- og umhverfisnefndar, bæjarfulltrúar og bæjarstjóri, munu ganga með bæjarbúum um svæði í bænum. Markmiðið er að ræða það sem betur má fara í umhverfinu og lausnir til úrbóta.
Umhverfisrölt verður sem hér segir:
Rauða hverfið: Mánudagur 20. maí kl. 19:30 Aðkomusvæði Skógræktar Græna hverfið: Mánudagur 20. maí kl. 20:30 Kaffi 59 Bláa hverfið: Þriðjudagur 21. maí kl. 19.30 Sögumiðstöðin Gula hverfið: Þriðjudagur 21. maí kl. 20.30 Dvalarheimilið Fellaskjól
Skipulags- og umhverfisnefnd hvetur bæjarbúa til þess að taka þátt.
|
|
|
|
8. |
Grund 2 - 1902033 |
|
Lagt fram bréf dags. 08.05.19 vegna úrvinnslu umsóknar um byggingarleyfi fyrir Grund 2. |
|
Lagt fram til kynningar.
|
|
|
|
9. |
Stöðuleyfi - Látravík 2 - 1811048 |
|
Farið yfir stöðu máls eftir fund sem skipulags- og byggingarfulltrúi og formaður nefndar áttu með umsækjanda. |
|
Lagt fram stöðuleyfi fyrir frístundahús í Látravík 2, dags. 7.5.2019 sem gildir til 7.8.2019.
|
|
|
|
10. |
Deiliskipulag - Skerðingsstaðir - 1803056 |
|
Lagðar fram umsagnir sem borist hafa vegna kynningar á skipulagslýsingu vegna deiliskipulags fyrir Skerðingsstaði. |
|
Lagt fram til kynningar.
|
|
|
|