Prentað föstudaginn 13. desember kl. 11:16 af www.grundarfjordur.is

Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729 | Sími: 438 6630 | Fax: 430 8501 | Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is


Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Bæjarráð, fundur nr. 526
Dags. 27. Mars 2019

 

Bæjarráð Grundarfjarðarbæjar

 

Fundargerð

 

 

526. fundur bæjarráðs Grundarfjarðarbæjar haldinn í Ráðhúsi Grundarfjarðar,

 miðvikudaginn 27. mars 2019, kl. 09:00.

 

 

Fundinn sátu:

Heiður Björk Fossberg Óladóttir (HBÓ), formaður, Hinrik Konráðsson (HK), Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS) og Björg Ágústsdóttir (BÁ), bæjarstjóri.

 

Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri.

 

1.

Malbik 2019 - 1903039

 

Davíð Örn Jónsson, aðstoðarmaður skipulags- og byggingarfulltrúa, sat fundinn undir þessum lið.

Lagt var fram yfirlit verkstjóra áhaldahúss og aðstoðarmanns skipulags- og byggingarfulltrúa um áætlaða þörf fyrir endurbætur (yfirlögn) á malbiki.
Fyrir liggur tilboð frá Malbikun Akureyrar, sem mun setja upp malbikunarstöð á Snæfellsnesi í sumar.
Farið var yfir yfirlitið og rætt um framkvæmdir, sem reiknaðar hafa verið til verðs, m.v. fyrirliggjandi tilboð.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að farið verði í malbikun á allt að 5500 m2 af götum með viðgerðaryfirlögn innanbæjar, með fyrirvara um nánari skoðun á m2-fjölda einstakra verka. Undirbúin verði tillaga um viðauka við fjárhagsáætlun á næsta bæjarstjórnarfundi.

 

Varðandi yfirborðsfrágang nýrrar götu milli Nesvegar og Sólvalla ("Framnesvegar") liggur fyrir verðsamanburður á malbiki og steypu. Með vísan í það að álag og þungaumferð um götuna verður mikil, þá samþykkir bæjarráð að gatan verði steypt. Bæjarstjóra falið að koma því verki í útboð.

 

 

2.

SSV - Starfsmaður v. almannavarna, kostnaður - 1903032

 

Fyrir liggur tillaga frá SSV um kostnaðarskiptingu vegna ráðningar í tímabundið starf verkefnisstjóra Almannavarnanefndar Vesturlands, frá 1. júní 2019 til 31. maí 2020.
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) ráða verkefnisstjóra til starfa. Sveitarfélögin á Vesturlandi greiða hluta kostnaðar, eða samtals kr. 3.500.000. Sveitarfélögin skipta launakostnaði á milli sín þannig:
Hvert sveitarfélag greiðir kr. 150.000 í fasta greiðslu, en kostnaði að upphæð kr. 2.000.000 verður skipt á milli sveitarfélaganna á Vesturlandi eftir íbúafjölda þeirra þann 1. janúar 2019.

Samþykkt samhljóða.

 

 

3.

Heildarstefna fyrir Grundarfjarðarbæ - 1903009

 

Lögð fram verkefnistillaga og verðtilboð frá Capacent.

Farið yfir fyrirliggjandi verkefnistillögu Capacent að vinnu með bænum að því að móta mótun heildarstefnu.
Bæjarstjóra falið að afla frekari upplýsinga hjá Capacent um tillöguna.

 

 

4.

Leikskólinn Sólvellir - Lengri opnunartími yfir sumar - 1903038

 

Lagt er til að skoðaðir verði möguleikar á frekari opnun leikskóla yfir sumartíma frá og með árinu 2020 og að metinn verði sá kostnaður sem því fylgir. Slíkt fyrirkomulag miði að því að foreldrar leikskólabarna og starfsfólk leikskóla hafi aukið val um hvenær þeir taki sumarfrí en börn fengju að lágmarki fjögurra vikna samfellt sumarfrí.

Samþykkt samhljóða að óska eftir kostnaðarmati bæjarskrifstofu og leita umsagnar skólanefndar og leikskólastjóra.

 

 

5.

Golfklúbburinn Vestarr - Um rekstur tjaldsvæðis 2019 - 1903041

 

Fyrir liggur hugmynd Golfklúbbsins Vestarrs um að taka að sér rekstur tjaldsvæðis Grundarfjarðarbæjar sumarið 2019.
Ennfremur voru lagðar fram niðurstöður úr rekstri tjaldsvæðis sl. þrjú sumur.
Í sumar verður tjaldsvæðið með í Útilegukortinu. Tekjumódel svæðisins verður með breyttu sniði þess vegna, auk þess sem það getur þýtt breytingar á þjónustuþyngd á svæðinu.
Bæjarráð tekur jákvætt í að hugmyndin verði skoðuð fyrir sumarið 2020.

Samþykkt samhljóða.

 

 

6.

Framkvæmdir 2019 - 1902049

 

Davíð Örn Jónsson, aðstoðarmaður skipulags- og byggingarfulltrúa, sat fundinn undir þessum lið.

Davíð sagði frá því að foktjón hefði orðið á þaki verknámshúss sl. mánudag, 25. mars sl. og sýndi myndir af því. Tjónið hefur verið tilkynnt til tryggingarfélags bæjarins. Skemmdir og áætlun um viðgerðir verður metin þegar færi gefst.

 

 

7.

Samband ísl. svf. - Minnisblað um áformaða skerðingu tekna Jöfnunarsjóðs - 1903022

 

Lagt fram til kynningar.

Bæjarráð mótmælir harðlega áformum ríkisstjórnarinnar um að skerða framlög til Jöfnunarsjóðs sveitafélaga á árinu 2020 um 2,8 milljarða.
Þessi mikla skerðing mun hafa mikil áhrif á tekjur sveitarfélaga sem nú þegar eiga undir högg að sækja.

Bæjarráð hvetur ríkisstjórnina til þess að endurskoða áform sín um að skerða framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

 

 

8.

SSV - Aðalfundur og dagskrá 3. apríl 2019 - 1903030

 

Lagt fram til kynningar.

 

 

9.

SSV - Málefni fatlaðra, uppgjör 2018 - 1903027

 

Lagt fram til kynningar.

 

 

10.

Vesturlandsstofa - Ráðning í stöðu forstöðumanns Mars 2019 - 1903031

Lagt fram til kynningar.

 

 

11.

Vinnumálastofnun - B.T. forstöðumanna stofnana ríkisins og framkvæmdastjóra sveitarfélaga - 1903014

Lagt fram til kynningar.

 

 

12.

Hrafnshóll - kynning á hentugum íbúðabyggingum f. sveitarfélög - 1903023

Lagt fram til kynningar.

 

 

13.

Útlendingastofnun - Samningur - 1903017

Lagt fram til kynningar.

 

 

14.

Fyrirspurn vegna Grundargötu 31 - 1903026

Lagt fram til kynningar.

 

 

15.

Golfklúbburinn Vestarr - Boð á aðalfund 27. mars 2019 - 1903040

Lagt fram til kynningar.

 

 

Fundi slitið kl. 13:45.

 

 

 Heiður Björk Fossberg Óladóttir (HBÓ)

 

 Hinrik Konráðsson (HK)

 Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS)

 

 Björg Ágústsdóttir (BÁ)

 

 

 

         

 


Til baka