Prentað föstudaginn 13. desember kl. 09:50 af www.grundarfjordur.is

Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729 | Sími: 438 6630 | Fax: 430 8501 | Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is


Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Skipulags- og umhverfisnefnd, fundur nr. 193
Dags. 24. Júlí 2018

 

Skipulags- og umhverfisnefnd Grundarfjarðarbæjar

 

Fundargerð

 

 

193. fundur skipulags- of umhverfisnefndar haldinn í Ráðhúsi Grundarfjarðar,

 þriðjudaginn 24. júlí 2018, kl. 17:00.

 

 

Fundinn sátu:

Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS) formaður, Bjarni Sigurbjörnsson (BS), Helena María Jónsdóttir (HMJ) og Signý Gunnarsdóttir (SG).

 

Fundargerð ritaði:  Unnur Þóra Sigurðardóttir, formaður.

 

Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

 

1.

Grundarfjarðarflugvöllur-deiliskipulag - 1802038

Skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu erindisins vegna forfalla skipulags- og byggingarfulltrúa og þar sem ekki náðist að afla fullnægjandi upplýsinga um atriði sem fram koma í umsögn Skipulagsstofnunar um tillöguna.

 

 

2.

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi að Hálsi - 1803060

Tillaga um breytingu á deiliskipulagi fyrir Háls var auglýst þann 2. júní og var frestur til að gera athugasemdir til 16. júlí sl. Engar athugasemdir bárust.

Þar sem engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma er skipulags- og byggingarfulltrúa falið skv. 2. mgr. í gr. 5.7.1 í skipulagsreglugerð að senda breytingu á deiliskipulagi fyrir Háls til athugunar hjá Skipulagsstofnun.

 

 

3.

Grundargata 82 og 90 - Grenndarkynning - 1805031

Tillaga að byggingum á lóðunum Grundargötu 82 og Grundargötu 90 hafa verið grenndarkynntar. Alls bárust 3 athugasemdir.

Skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu erindisins vegna forfalla skipulags- og byggingarfulltrúa.

 

 

4.

Umhverfisrölt - 1806022

Farið var yfir umhverfisskýrslu, hún skoðuð og rædd.
Skipulags- og byggingarnefnd óskar efti því að blóm verði sett í blómaker bæjarins og að passað verði uppá að nægilega margar ruslatunnur
verði til taks fyrir hátíðina okkar.

Einnig viljum við leggja til að verkefni vinnuskólans í framtíðinni verði skoðuð með tilliti til umhverfisskýrslu.

Vert er að kanna hvort hægt sé að koma á samstarfi við Skógræktarfélagið um umhirðu gróðurs á vegum bæjarins.

 

 

5.

Aðalskipulag Grundarfjarðar 2018 - 2038 - 1805034

Næstu skref og famvinda aðalskipulags rædd. Aðkallandi verkefni kynnt.

 

 

 

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

 

Fundi slitið kl. 21:00.

 

 

 

 Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS)

 

 Bjarni Sigurbjörnsson (BS)

 Helena María Jónsdóttir (HMJ)

 

 Signý Gunnarsdóttir (SG)

 

 

 

         


Til baka