Prentað þriðjudaginn 10. desember kl. 05:22 af www.grundarfjordur.is

Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729 | Sími: 438 6630 | Fax: 430 8501 | Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is


Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Skipulags- og umhverfisnefnd, fundur nr. 191
Dags. 5. Júní 2018

 

 

Grundarfjarðarbær

 

Fundargerð

 

 

191. fundur umhverfis- og skipulagsnefndar haldinn í Ráðhúsi Grundarfjarðar,

 þriðjudaginn 5. júní 2018, kl. 12:00.

 

 

Fundinn sátu:

Ólafur Tryggvason (ÓT) formaður, Vignir Smári Maríasson (VSM) aðalmaður, Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS) varamaður, Runólfur J. Kristjánsson (RJK), Hrund Pálína Hjartardóttir (HPH) og Þorsteinn Birgisson (ÞB) skipulags- og byggingafulltrúi.

 

Fundargerð ritaði:  Þorsteinn Birgisson, skipulags- og byggingafulltrúi.

 

 

 

1.

Berserkseyri, lýsing á aðalskipulagi/deiliskipulagi - 1704007

 

Breyting á aðalskipulagi/deiliskipulagi fyrir Berserkseyri

Skipulags - og umhverfisnefnd hefur fjallað um minnisblaðið um úrvinnslu athugasemda vegna kynningar á vinnslustigi.

Skipulags - og umhverfisnefnd samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að aðalskipulagstillagan verði auglýst í samræmi við skipulagslög að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar

Skipulags - og umhverfisnefnd samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði auglýst í samræmi við skipulagslög

2.

Umsókn um lóð - 1704017

 

Afltak ehf. leggur fram fyrirspurn og tillögu varðandi byggingu á lóðinni Ölkelduveg 17 og skil á lóðinni Ölkelduveg 19.

Skipulags- og umhverfisnefnd áréttar bókun sína um tímamörk á úthlutun lóða frá fundi nr.190 22.5.2018 þar sem nefndin fól Skipulags- og byggingarfulltrúa að fella úr gildi þær lóðaúthlutanir sem fallnar voru á tíma.

Samkvæmt fyrri bókunum nefnda er úthlutun lóðarinna fallin úr gildi og því ekki hægt að afgreiða þessa fyrirspurn.

Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að endurauglýsa þessar lóðir, ásamt öðrum lausum lóðum.

Nefndinni lýst vel á að parhús verði byggt á lóðinni Ölkelduveg 17 eða jafnvel að lóðirnar að Ölkelduvegi nr. 17 og 19 verði sameinaðar undir raðhús/parhús.

Samþykkt samhljóða.

 

 

 

Fundi slitið kl. 13:30.

 

 

 

 

 

Ólafur Tryggvason (ÓT)

 

 Vignir Smári Maríasson (VSM)

 Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS)

 

 Runólfur J. Kristjánsson (RJK)

 Hrund Pálína Hjartardóttir (HPH)

 

 Þorsteinn Birgisson (ÞB)

 

 

 


Til baka