Grundarfjarðarbær
Fundargerð
188. fundur umhverfis- og skipulagsnefndar haldinn í Ráðhúsi Grundarfjarðar,
miðvikudaginn 4. apríl 2018, kl. 12:00.
Fundinn sátu:
Ólafur Tryggvason (ÓT), formaður, Vignir Smári Maríasson (VSM), Helena María Jónsdóttir (HMJ), Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS), Jósef Ó. Kjartansson (JÓK) og Þorsteinn Birgisson (ÞB), skipulags- og byggingafulltrúi.
Fundargerð ritaði: Þorsteinn Birgisson, skipulags- og byggingafulltrúi.
1. |
Tillaga að Deiliskipulagi - Kolgrafafjörður - 1803036 |
|
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi áfangastaðar við Kolgrafafjörð , sem unnin er af ráðgjafafyrirtækinu Alta og dags. 4. apríl 2018. |
|
Grundarfjarðarbær hefur í samstarfi við landeigendur og vegagerð unnið tillögu að deiliskipulagi áfangastaðar við Kolgrafafjörð. Tillagan hefur verið kynnt á vinnslustigi, ásamt forsendum hennar og unhverfismati, sbr. 4 mgr. 40.gr skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og grein 5.6.1 í skipulagsgerð nr. 90/2013 m.s.br. Umhverfis- og skipulagsnefnd Grundarfjarðarbæjar samþykkir að auglýsa tillögu að deiliskipulagi áfangastaðar við Kolgrafafjörð. Tillagan er sett fram á uppdrætti og í greinargerð dags. 4. apríl 2018.
|
|
|
|
2. |
Tillaga að Deiliskipulagi- Kirkjufellsfoss - 1803035 |
|
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi við Kirkjufellsfoss, sem unnin er af ráðgjafafyrirtækinu Alta og dags.3.apríl 2018. |
|
Grundarfjarðarbær hefur í samstarfi við landeigendur jarðarinnar Kirkjufells unnið tillögu að deiliskipulagi fyrir svæði við Kirkjufellsfoss. Tillagan hefur verið kynnt á vinnslustigi, ásamt forsendum hennar og unhverfismati, sbr. 4 mgr. 40.gr skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og grein 5.6.1 í skipulagsgerð nr. 90/2013 m.s.br. Umhverfis- og skipulagsnefnd Grundarfjarðarbæjar samþykkir að auglýsa tillögu að deiliskipulagi við Kirkjufellsfoss og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar. Tillagan er sett fram á uppdrætti og í greinargerð dags. 3. apríl 2018 og felur m.a. í sér staðsetningu á nýju bílastæði vestan við fossinn með áningarstað þar sem notalegt verður að setjast niður, njóta útsýnis og fræðast um svæðið. Gert er ráð fyrir gönguleiðum, upplýsingaskiltum og salernisaðstöðu á svæðinu. Hugað er sérstaklega að aðgengi fyrir alla frá bílastæði að fossinum |
|
|
|
3. |
Skerðingsstaðir: Deiliskipulag - 1803056 |
|
Umsókn um leyfi til að skipuleggja jörðina Skerðingsstaði. |
|
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að heimila gerð deiliskipulags fyrir jörðina Skerðingsstaði, jafnframt verði landnotkun svæðisins breytt í aðalskipulagsvinnu Grundarfjarðarbæjar. |
|
|
|
4. |
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi að Hálsi - 1803060 |
|
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi að Hálsi í Grundarfirði. |
|
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir jörðina Háls. Skipulags- og byggingafulltrúa falið að setja deiliskipulagið í auglýsingaferli. |
|
|
|
5. |
Pylsuvagn - Stöðuleyfi - 1501017 |
|
Stöðuleyfi: Bongo slf sækir um um stöðuleyfi fyrir Matvagn ( pylsuvagn)við Grundargötu 35. |
|
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að fela byggingafulltrúa að gefa út stöðuleyfi. |
|
|
|
6. |
Leikskólinn Sólvöllum, breyting - 1803057 |
|
Leikskólinn, stækkun á andyri. |
|
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4. í byggingarreglugerð 112/2012 með síðari breytingum. |
|
|
|
Fundi slitið kl. 13:00.
Ólafur Tryggvason (ÓT) |
|
Vignir Smári Maríasson (VSM) |
Helena María Jónsdóttir (HMJ) |
|
Unnur Þóra Sigurðardóttir (UÞS) |
Jósef Ó. Kjartansson (JÓK) |
|
Þorsteinn Birgisson (ÞB) |
|
|
|
|