Grundarfjarðarbær
Fundargerð
12. fundur menningarnefndar haldinn í Ráðhúsi Grundarfjarðar,
miðvikudaginn 31. janúar 2018, kl. 10:00.
Fundinn sátu:
Bjarni Sigurbjörnsson (BS), formaður, Hrafnhildur Jóna Jónasdóttir, Sigríður Hjálmarsdóttir (SH), embættismaður og Unnur Birna Þórhallsdóttir.
Fundargerð ritaði:Sigríður Hjálmarsdóttir, menningar- og markaðsfulltrúi.
1. |
Styrkumsóknir til SSV - 1801044 |
|
Menningar- og markaðsfulltrúi kynnir þær umsóknir sem sendar voru til Uppbyggingarsjóðs Vesturlands.
Varðandi fræðslu- og upplýsingaskilti þá kallar menningarnefnd eftir því að fá upplýsingar um stöðu verkefnisins í mars þar sem áætluð verklok eru um miðjan maí. |
|
|
|
2. |
Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðar 2018 - 1801045 |
|
Metþátttaka var í Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðar árið 2017 en þá var þemað "veður". Ræddar ýmsar hugmyndir að þema fyrir árið 2018 og var ákveðið að hafa það "fuglar og dýr". |
|
|
|
3. |
Rökkurdagar 2018 - 1801046 |
|
Ákveðið að hinir árlegu Rökkurdagar verði haldnir í kringum tímabilið 10.-20. október. |
|
|
|
4. |
Stefnumótun um menningarhús Grundarfjarðar - 1801047 |
|
Bæjarstjórn kallaði eftir stefnumótun menningarnefndar um framtíð og hlutverk menningarhúsa bæjarins. Menningarnefnd mun kynna sér málin nánar og gera tillögu að stefnu. |
|
|
|
5. |
Sögumiðstöðin - 1801048 |
|
Farið yfir samning Grundarfjarðarbæjar og Svansskála sem rekur Kaffi Emil í Sögumiðstöðinni. Nefndin vill að Sögumiðstöðin nýtist betur fyrir fólkið í bænum eins og verið hefur í gegnum tíðina og lagt var upp með í samningi. Endurskoða þarf samninginn og hyggst nefndin boða rekstraraðila á sinn fund til að fara yfir stöðu mála. |
|
|
|
Fundi slitið kl. 12:10.
Bjarni Sigurbjörnsson (BS) |
|
Hrafnhildur Jóna Jónasdóttir (HJJ) |
Sigríður Hjálmarsdóttir (SH) |
|
Unnur Birna Þórhallsdóttir (UBÞ) |
|
|
|
|