Leita
Stærsta letur
Miðstærð leturs
Minnsta letur
Fimmtudagur 2. september 21:51
  Forsíða   Ferðaþjónusta   Menntun   Daglegt líf   Íþróttir   Stjórnsýsla   Þjónusta   Höfnin 
   
 
Á döfinni
SMÞMFFL
2930311234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293012
3456789
September 2010

Framundan

Skrá atburði, smelltu hér
Fundargerðir
1.september 2010
2. fundur hafnarstjórnar
26.ágúst 2010
387. fundur bæjarráðs
23.ágúst 2010
118. fundur umhverfisnefndar
18.ágúst 2010
50. fundur menningar- og tómstundanefndar
Spurningin

Hvaða ár var Setbergskirkja reist?

1872

1882

1892

1902

1912

Stjórnsýsla - Nýlegt safn
Daglegt líf - Nýlegt safn
Menntun - Nýlegt safn
Kvenfélagið Gleym mér ey  Prenta síðu

Kvenfélagið Gleym mér ei 

Eyrarsveit

 

Fréttir

 

Starfsemi

Félagar eru yfirleitt um 50 og hittast á jólafundi og aðalfundi eftir áramót. Þá er boðið upp á kynningu eða fræðslu af einhverju tagi. Starfið fer aðallega fram í vinnunefndum sem taka að sér sitt verkefnið hver. Starf í kvenfélagi eða öðrum félögum er tilvalin leið fyrir nýaðflutt fólk til að kynnast íbúunum.

Jólafundur er skemmtifundur með góðum mat eða veislukaffi og gamanefni ýmis konar. Þá er hægt að bjóða með sér gestum og er það góð leið til að kynnast starfinu og félagskonum.
Aðrar skemmtanir eru eftir ástæðum hverju sinni og sum árin er farið í orlof eina helgi og menningarlífið á viðkomandi svæði skoðað.
Nýjar félagskonur eru alltaf velkomnar.  

 

Fjáraflanir 

Kvenfélagið stendur fyrir fjáröflunum til styrktar góðum málefnum í Grundarfirði.

Þær helstu eru:

Sjómannadagskaffi

Kökubasar á 17. júní

Kakó- og vöfflusala á hátíðinni „Á góðri stund“

Fjölskyldudagurinn, laugardag fyrir fyrsta sunnudag í aðventu.

Erfidrykkjur

 

Styrkir

Málefni sem hafa notið stuðnings kvenfélagskvenna eru meðal annarra:

Leiktæki í Leikskólanum Sólvöllum og Grunnskóla Grundarfjarðar

Saumavélar í Grunnskóla Grundarfjarðar

Stillanlegt rúm fyrir Dvalarheimilið Fellaskjól

Fermingarkirtlar fyrir Grundarfjarðarkirkju

Fjárstuðningur við búnað kirkjunnar

Styrkir til fjölskyldna sjúklinga

Styrkur til skammtímavistunar á Gufuskálum

Lækningatæki

 

Stjórn Kvenfélagsins: 

Mjöll Guðjónsdóttir, formaður

sími: 898 2702

mjoll(hjá)sc.is

 

Bryndís Theodórsdóttir, ritari

sími: 438-6788 / 862 1355

bryndis(hjá)grundarfjordur.is

 

Sólrún Guðjónsdóttir, gjaldkeri

sími: 849 1015

solrun(hjá)fsn.is     

 

Varastjórn:

Arna Mjöll Karlsdóttir

Eygló Jónsdóttir

Helga María Jóhannesdóttir

 

 

Fulltrúi í stjórn Dvalarheimilisins Fellaskjóls: Sigríður Diljá Guðmundsdóttir

Fulltrúi í stjórn Minningastsjóðs Dvalarheimilisins Fellaskjóls: Sigríður Diljá Guðmundsdóttir

 

Kvenfélagasamband Íslands

 

Meðal efnis:

Svæðasambönd
Kvenfélög
Húsfreyjan
Hugmyndabanki
Handverk
Leiðbeiningastöð heimilanna
Tenglar

 

 

Ágrip af sögu Kvenfélagsins Gleym mér ei í tilefni af 75 ára afmæli félagsins þann 10. júní 2007.

 

Kvenfélagið Gleym mér ei var stofnað sunnudaginn 10. júlí 1932 í Þinghúsinu að Grund. Stofnendur voru 17 að tölu. Félagið stóð fyrir jólatrésskemmtunum fyrir börn, gekkst fyrir starfrækslu matjurtagarða og hélt saumanámskeið til að efla heimilisiðnað. Félagið keypti spunavél sem staðsett var á Grund fyrstu árin en var á Hömrum eftir að nýja húsið reis.
Kvenfélagið gekkst fyrir því að styðja barnmörg og fátæk heimili og upp úr því var stofnaður Líknarsjóður sem veitti bæði peningagjafir en keypti einnig ýmis tæki og lyf til útláns eða sölu eftir aðstæðum.
Kirkju- og safnaðarmál voru félagskonum hugleikin. Keypt var orgel fyrir safnaðarstarfið í Grafarnesi, hökull og fermingarkirtlar fyrir Setbergskirkju og átti félagið stóran þátt í byggingu og búnaði Grundarfjarðarkirkju sem vígð var 1966.
Fyrstu árin var reynt að fara í skemmtiferðir á 10 ára fresti.
Námskeið og kynnisferðir, árshátíðir og Góugleði, Sjómannadagskaffi og Basardagurinn eru áberandi póstar í starfi félagsins.
Ýmis ráð hafa verið notuð til að afla fjár til styrktar góðum málefnum:
Sala minningarkorta, útgáfa á Minni Eyrarsveitar, kökubasar, umsjón með erfidrykkjum, kirkjukaffi og jólakortasala.
Og Kvenfélagið hefur víða látið muna um sig á seinni árum: Leiktæki í Leikskólann Sólvöllum og Grunnskóla Grundarfjarðar, Saumavélar í grunnskólann, stillanlegt rúm fyrir Dvalarheimilið Fellaskjól, styrkur til skammtímavistunar á Gufuskálum og lækningatæki.

Ábyrgðarmaður: Sunna Njálsdóttir 
Áskrift að fréttum
 
Gott að vita

 

Um Grundarfjörð

  

Skipulagsmál

 

Sundlaug

 

Tjaldsvæði, verðskrá

 

Sorphirðudagar

 

Fundir bæjarstjórnar

Gaman að skoða

 

Myndabanki

 

Eyrbyggja - Sögumiðstöð

 

Örnefnavefur

 

Þjónustusíða eldri borgara

 

Jeratún


 

 

 

 

 

 

 

 

Hvað eru margir hér?
Það eru að skoða www.grundarfjordur.is
 
Grundarfjarðarbær Grundargötu 30, 350 Grundarfjörður | kt.: 520169-1729
Simi: 430 8500 | Fax: 430 8501
Netfang: grundarfjordur@grundarfjordur.is
Fyrirspurnir | Veftré | Leit | Skilmálar